Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2020
varðarstörfunum. Fljótlega kemur í
ljós að Danny býr yfir skyggnigáfu,
hann skynjar að eitthvað hræðilegt
hefur gerst á hótelinu og að illskan
dvelur þar enn. Jack missir fljót-
lega vitið og reynir undir lokin að
myrða eiginkonu sína og son með
sama hætti og fyrri umsjónarmaður
hótelsins gerði. Sá birtist Jack og
hvetur hann til þess að refsa eigin-
konu og barni fyrir slæma hegðun.
Refsingin felst í því að búta þau nið-
ur með öxi.
Tveir heimar
Í grein eftir bókmenntafræð-
inginn Arnar Pálsson, sem birt var í
Lesbók Morgunblaðsins árið 2002,
er fjallað um þá tvískiptingu sem
finna má í kvikmyndum Kubricks,
skiptingu sem Arnar segir að kenna
megi við tvo heima, hinn venjulega
og hinn óvenjulega heim. „Venju-
legi heimurinn er oft sá heimur sem
„venjulegt“ nútímafólk þekkir
kannski hvað best en óvenjulegi
heimurinn er hinsvegar dularfullur
og fjarstæðukenndur. Það er heim-
ur án reglna og ef það fyrirfinnast
reglur í þeim heimi eru þær undar-
legar og óskynsamlegar. Átök milli
þessara tveggja heima má að ein-
hverju leyti finna í öllum kvik-
myndum Kubricks,“ skrifar Arnar
og hittir þar naglann á höfuðið því
eitt af því sem gerir The Shining
einmitt svo eftirminnilega og
óhugnanlega eru þessi óljósu mörk
tveggja heima, hins raunverulega
og óraunverulega og á köflum er
erfitt að átta sig á því hvað er á
seyði. Hvað á sér stað í höfði Jacks
og hvað ekki? Blóðfoss sem streym-
ir úr lyftu er varla raunverulegur
en hann birtist þó hinum unga
Danny og það oftar en einu sinni.
The Shining hefur skotið mörg-
um skelk í bringu á undanförnum 40
árum og skal engan furða. Hún er
„krípí“, eins og unga fólkið myndi
orða það. Blóðið sem flæðir út um
lyftudyrnar, tvíburastúlkurnar sem
mæta Danny á hótelgangi og biðja
hann að leika við sig, fegurðardísin
í baðinu sem reynist vera rotnandi
lík, brjálæðislegt andlitið á Jack
þegar hann hefur brotið gat með
öxi á baðherbergisdyrnar og öskr-
ar á eiginkonu sína ,,Heeeere’s
Johnny“! og þannig mætti áfram
telja. Allt eru þetta þekktar og sí-
gildar hryllingssenur sem sitja í
manni.
Ómennskt álag
Leikur Shelley Duvall í mynd-
inni hefur löngum vakið athygli en
hún var raunverulega óttaslegin
við tökur eða svo segir sagan. Ekki
bætti úr skák fullkomnunarárátta
Kubrick og voru Duvall og Nichol-
son í þrettán mánuði við tökur á
myndinni. Tökudagar voru að auki
allt að 16 klst. langir. Slík törn ætti
að nægja til að æra óstöðugan og til
að bæta gráu ofan á svart var Ku-
brick kuldalegur við Duvall en öllu
vinalegri við Nicholson, eins og sjá
má af upptökum af tökum myndar-
innar.
Á kvikmyndavefnum Looper
er fjallað um ómennskt álagið sem
Kubrick setti á tökulið og leikara
og kemur þar m.a. fram að hann
hafi tekið upp eitt atriði The Shin-
ing, þar sem Duvall er í mikilli
geðshræringu, 127 sinnum. „Hann
var í leit að hinni fullkomnu töku,“
er haft eftir einum leikara myndar-
innar, Joe Turkel, „en slík taka er
ekki til.“ Turkel lék ímyndaðan
barþjón eða mögulega draug í
myndinni og lét Kubrick hann og
Jack Nicholson æfa samtal fyrir eitt
atriði í sex vikur. Skal engan furða
að Nicholson hafi virst raunveru-
lega tæpur á geði í myndinni.
Eitt verður Kubrick aldrei sak-
aður um og það eru óvönduð vinnu-
brögð. Nema þá kannski þegar
kemur að álagi á starfsliðið. Má rétt
ímynda sér hversu mikill tími fór í
tökur á þeim atriðum þar sem
Danny brunar um hótelið á þríhjól-
inu sínu. En afraksturinn er eftir
því, algjörlega fullkominn. Tónlist-
in er líka ein sú áhrifamesta sem
heyrst hefur í kvikmynd af þessu
tagi, seigfljótandi oft á tíðum og
þung en líka tilraunakennd, ekki
síst tónlist Pólverjans Krzysztof
Eugeniusz Penderecki sem lést fyr-
ir skömmu. En tónlistin er líka yfir-
þyrmandi á köflum og háir fiðlu-
tónarnir sem heyrast ítrekað eru
nístandi.
Ekki gallalaus
Ég sá The Shining fyrst þegar
ég var unglingur og heillaðist
mjög. Þetta var hinn fullkomni
hrollur. Nú, um 30 árum síðar, er
myndin enn heillandi en þó ekki al-
veg gallalaus. Ég nefndi tónlistina,
mér finnst hún yfirkeyrð á köflum
enda var hugmyndin væntanlega
að örva hjartsláttinn og láta áhorf-
endum líða illa jafnvel þótt lítið
sem ekkert sé að gerast.
Nicholson er einn af mínum
uppáhaldsleikurum en hann á það
til að ofleika og þegar verst lætur
verður það spaugilegt. Endirinn á
myndinni, þar sem hann situr fros-
inn úti á hlaði með öxina, á að vera
skelfilegur en maður getur ekki
annað en brosað að svipnum á leik-
aranum. Líklega hefur enginn
maður leikið eins svakalega með
augabrúnunum og Nicholson gerir
í þessari mynd.
Svo er það samband fjölskyld-
unnar eða öllu heldur samskipta-
leysi. Aldrei sjást hjónin tala öðru-
vísi saman en þannig að Jack tali
niður til eiginkonu sinnar. Hann er
ógeðfelldur frá upphafi til enda og
fer ansi snögglega úr því að vera
leiðindagaur yfir í að vera sturl-
aður axarmorðingi. Allt er þetta
óhemjukuldalegt, tilfinningalega
séð, en það var líklega ætlunin.
The Shining er unnin af aug-
ljósri natni eins af snillingum kvik-
myndalistarinnar og heldur athygli
manns frá upphafi til enda. Hún
vekur líka spurningar eftir áhorfið
og situr enn í fólki, 40 árum eftir
frumsýningu. Eða er þetta bara
vélarlaus glæsibifreið, eins og
Stephen King orðaði það? Eða
kvikmynd sem er betri en bókin
sem hún er gerð eftir? Dæmi hver
fyrir sig.
Meistaraverk eða vélarlaus bifreið?
Gæsahúð The Shining var frumsýnd árið 1980 og er jafnan talin með bestu hrollvekjum kvikmyndasögunnar. Bĺóðið sem flæðir úr lyftunni vekur hroll.
» Tökudagar voruallt að 16 klst. langir.
Slík törn ætti að nægja
til að æra óstöðugan.
Stanley
Kubrick
Stephen
King
Sturlun Jack Nicholson og Shelley Duvall í einu af þekktustu atriðum hrollvekjusögunnar í The Shining.
AF KVIKMYNDUM
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndin The Shining erjafnan talin með bestuhrollvekjum kvikmynda-
sögunnar og þeir allra hrifnustu
segja hana meistaraverk. Myndin
var frumsýnd fyrir 40 árum, árið
1980, og hefur mörgum orðið hugs-
að til hennar á síðustu vikum og þá
ekki aðeins vegna afmælisins held-
ur þess hryllings innilokunar og
einangrunar sem leikstjórinn Stanl-
ey Kubrick færði svo eftirminnilega
upp á hvíta tjaldið. Útgöngubann í
hinum ýmsu löndum undanfarnar
vikur vegna COVID-19 hefur ef-
laust leitt huga margra að The
Shining eða Duld eins og hún heitir
í íslenskri þýðingu, þó ekki hafi
verið fyrir þrengslum að fara hjá
Jack Torrance og fjölskyldu hans.
Önnur Duld
Handrit myndarinnar skrifaði
Kubrick með Diane Johnson upp úr
samnefndri skáldsögu Stephen
King og var rithöfundurinn afar
óánægður með útkomuna, eins og
frægt er orðið, þótti Kubrick ganga
alltof langt í skáldaleyfi sínu. Þykir
mörgum furða þar sem myndin er
ein sú áhrifamesta í kvikmyndasög-
unni þegar kemur að hrollvekjum.
King lét Kubrick vita af óánægju
sinni sem sneri m.a. að því hvernig
mynd var dregin upp af rithöfund-
inum Jack Torrance sem Jack Nich-
olson oflék eftirminnilega. Torr-
ance er ekki eins ógeðfelldur í
bókinni og í myndinni, að sögn
King, sem þótti myndin í heildina of
kuldaleg. Kubrick vílaði ekki fyrir
sér að breyta endi bókarinnar og
drepa eina af helstu persónum
hennar, yfirkokkinn Halloran sem
Scatman Crothers leikur af mikilli
list í kvikmyndinni. Í viðtölum hef-
ur King líkt The Shining við fagur-
lega hannaða en vélarlausa bifreið.
Og nokkrir gagnrýnendur voru
honum sammála en miklu fleiri þeir
sem lofuðu myndina í hástert.
Sturlun og skyggnigáfa
Aðdáendur myndarinnar láta
sér hina neikvæðu gagnrýni auðvit-
að í léttu rúmi liggja. Vera má að
mikill munur sé á bók og mynd,
þannig er það nú oft þegar kvik-
mynd er gerð eftir bók, en bæði
verk má lofa á sínum forsendum.
Fyrir þá sem ekki vita – og þeir eru
líklega fáir – fjallar The Shining
um Jack Torrance, fyrrverandi
kennara og rithöfund sem ræður
sig sem húsvörð á stóru fjallahóteli
í Klettafjöllum veturlangt. Hann
dvelur þar með eiginkonu sinni,
Wendy (Salley Duvall), og ungum
syni, Danny (Danny Loyd), og
hyggst skrifa bók meðfram hús-
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.isljósmyndastofa
NJÓTUMMINNINGANNA