Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 68

Morgunblaðið - 24.05.2020, Page 68
af öllum sumarvörum ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is Mánudaga - Sunnudaga 12-18 Frí heimsending Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU FYRIR ÞÁ SEM VERSLA FYRIR 5.000 EÐA MEIRA WWW.ILVA.IS GILDIR Í VEFVERSLUN Í MAÍ 25%Sparadu- LISSABON NY Tungusófi. L258 x D138 cm. 219.900 kr. Nú 164.900 kr. ENIX stóll. Svartur/króm. 9.900 kr. Nú 6.900 kr.EMILIA stóll. Bleikur/málmur. 29.900 kr. Nú 21.900 kr. Milford & Selva MILFORD garðborð. Ø120 cm. Dökkgrá polystone plata, málmfætur. 99.900 kr. Nú 74.925 kr. SELVA garðstóll. Ýmsir litir. 14.900 kr. Nú 11.175 kr. MaíTILBOÐ WWW.ILVA.IS/TILBOD 25% 27% 31% Nú stendur yfir ný myndlistarsýning í Galleríi Gróttu, sýningarsal Seltjarnarness á Eiðis- torgi, en hún var opnuð um leið og opna mátti söfn á ný. Sýningin ber titilinn Hvern- ig á ekki að deyja / How Not to Die og á henni er röð níu mynda sem sýna jurtir og líffæri en verkin vann Bjarni í Lúxemborg sumarið 2018. Nafnið á myndaröðinni er dregið af titli bókar eftir bandarískan lækni, Michael Greger, sem er ákafur talsmaður jurta- fæðis og hollustu í mataræði og hefur orðið eins konar æðstiprestur margra sem aðhyllast veganlífsstíl. FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Úlfar Finnbjörnsson, yfirmatreiðslu- maður á Grand hóteli Reykjavík, hefur verið kallaður „villti kokkur- inn“ vegna áhuga á veiði og villibráð, en færri vita að hann er mikill áhuga- maður um fugla og hefur um árabil lagt sitt af mörkum til að efla stokk- andastofninn í tjörn við heimili sitt. „Ég er hálfgerður atferlisfræðingur og mig hefur lengi langað til þess að merkja ungana til að sjá hvort þeir koma aftur,“ segir hann. Um liðna helgi fóru Úlfar og fjöl- skylda fyrir stokkandapari og 11 ungum frá tjörn við heimili þeirra í Mosfellsbæ að Varmá, þar sem þau kvöddu fuglana að sinni. „Þetta er sjötta árið sem við fylgjum þeim að Varmá og það er alltaf sérstök sakn- aðarstund,“ segir Úlfar. Hólkurinn gerir gæfumuninn Skömmu eftir að Úlfar og Sigrún Hafsteinsdóttir fluttu í Mosfells- bæinn útbjuggu þau tjörn við húsið. Hann segir að fljótlega hafi endur komið á tjörnina en þær hafi verið varar um sig, hræddar og styggar. Eftir nokkur ár hafi honum verið bent á að sniðugt væri að setja hólk ofan í tjörnina, þar sem kollan gæti verpt og legið á eggjum í næði og friði fyrir rándýrum. Síðan hafi sama parið haldið sig á tjörninni nema þegar hún hafi verið ísi lögð. Á vorin hafi fleiri steggir bæst í hópinn til að eiga við kolluna og jafnvel hafi fleiri kollur komið til að slást við hana um hreiðurstæðið. „Steggurinn hennar er samt sá sem ræður og eftir að kollan hans til margra ára hefur sinnt sínu hefur komið fyrir að hann hafi mætt með aðra kollu, sem hefur síðan verpt á sama stað. Hann er sem sagt ekki við eina fjölina felldur og hún er glyðra, en þau taka alltaf saman aftur.“ Gamla parið er spakt á tjörninni en Úlfar segir að fylgdarsveinarnir séu stressaðir. Hann segir gaman að fylgjast með öndunum og rifjar upp að eitt sinn hafi gamli steggurinn mætt með eina unga og farið með hana framan við hólkinn. „Hann benti á hreiðurstæðið með goggnum, svona rétt eins og í teiknimynda- sögu, og eftir langa mæðu flaug hún upp á hólkinn. „Ertu hálfviti,“ heyrði maður hann segja áður en hann flaug á eftir henni, ýtti á hausinn á henni og henti henni niður. Þá áttaði hún sig á því hvert hún ætti að fara.“ Kollan verpir einu eggi á dag og þegar öll eru komin byrjar hún að liggja á og eggin klekjast síðan á sama klukkutímanum. „Það líður leiðinlega stuttur tími frá því ung- arnir koma og þangað til þau vilja fara niður á Varmá, þar sem þau eru í einhvern tíma áður en þau halda áfram niður í fjöru.“ Þegar fyrsti unginn fellur úr hólknum í tjörnina líður ekki á löngu þar til mamman fer sömu leið og síð- an kemur hver unginn á fætur öðr- um. „Við erum alltaf í viðbragðs- stöðu og þegar þau vilja fara vísum við þeim leiðina niður að Varmá, göngum á undan strollunni yfir hljóðmön, eftir götu og yfir aðra þar sem við þurfum gjarnan að stöðva umferðina svo unga fjölskyldan kom- ist sína leið. En þetta hefur alltaf gengið vel.“ Karlinn fjöllyndur og hún er glyðra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Að heiman Úlfar Finnbjörnsson fylgir kollunni og ungunum að Varmá.  Úlfar Finnbjörnsson heldur utan um stokkandapar og ungana Fyrsta flugið Ungi yfirgefur hólk- inn og annar bíður átekta. Víðir úr Garði var einum leik frá því að mæta Barce- lona í Evrópu- keppni bikarhafa seint á níunda áratug síðustu aldar. Á íþróttasíðum Morgun- blaðsins í dag er fjallað um fótboltaævintýrið í Garðinum þar sem Víðis- menn, með stóran hóp af heimamönnum, komust upp í efstu deild og léku þar samtals í fjögur ár, ásamt því að leika til úrslita í bikarkeppninni. »56-57 Víðir nærri því að mæta Barcelona Hvernig á ekki að deyja í Gróttu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.