Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202024
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Guðmunda Smáradóttir hefur ver-
ið ráðin í starf mannauðs- og gæða-
stjóra við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og hóf hún störf um áramót-
in. Guðmunda er með meistara-
gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla
Íslands með áherslu á stjórnun og
stefnumótun. Þá hefur hún lok-
ið PLD námi (Program Leader-
ship Development) frá IESE við-
skptaháskólanum í Barcelona, auk
þess að hafa lokið markþjálfunar-
námi og sótt námskeið í opinberri
stjórnsýslu í MPA námi við HÍ, auk
fjölda annarra stjórnunartengdra
námskeiða. Nú síðast starfaði Guð-
munda sem starfsþróunarstjóri hjá
Valitor, en þar áður sem forstöðu-
maður Opna háskólans í HR. Enn
fremur hefur hún starfað sem fram-
kvæmdastjóri símenntunarmið-
stöðvar og að markaðs- og fræðslu-
málum hjá FÍS (nú Félag atvinnu-
rekenda), þá hefur hún gegnt ýms-
um nefndar- og félagsstörfum.
„Ég hlakka til þessa að takast á
við starfið og þær spennandi áskor-
anir sem LBHÍ stendur frammi fyr-
ir. Skólinn hefur sett fram metnað-
arfulla stefnu til næstu ára sem skóli
lífs og lands og er það tilhlökkunar-
efni að taka þátt í þeirri spennandi
vegferð sem framundan er,“ segir
Guðmunda um sýn sína til starfs-
ins.
-fréttatilkynning
Fiskistofa hefur látið smíða, í sam-
starfi við Hafrannsóknastofnun og
hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, smá-
forritið Afladagbókina. Innleiðing
á notkun smáforritsins fyrir snjall-
tæki í stað afladagbóka á pappír
hefst á næstunni. Stærri skip skila
rafrænum afladagbókum til Fiski-
stofu en flestallir smábátar hafa
fram til þessa skilað afladagbókum
á pappír.
Hægt er að sækja nýja forritið í
App Store og Play Store í snjall-
tækjum en beðið er eftir reglugerð
frá atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytinu um notkun smáfor-
ritsins áður en hún getur hafist.
Afladagbókin virkar þannig að ein-
göngu þarf að vera í síma- eða net-
sambandi við upphaf og lok veiði-
ferðar. Afladagbókin skráir sjálf-
krafa staðsetningu bátsins við veið-
ar og skipstjórnarmenn skrá afla,
ástand hans og meðafla með ein-
földum hætti í forritinu.
„Fáum blandast hugur um að
með tilkomu appsins er stigið stórt
framfaraskref sem felur í sér bætta
yfirsýn og vinnusparnað fyrir út-
gerðir, skipstjórnarmenn sem og
stjórnsýslu. Hægt er að hlaða nið-
ur aflaskráningarappinu í gegnum
App Store og Play Store. Það heitir
þar Afladagbókin,“ segir í tilkynn-
ingu frá Fiskistofu. Formleg inn-
leiðing á notkun forritsins hefst í
kjölfar þess að reglugerðarbreyt-
ingar taka gildi.
mm
Í nýjasta tölublaði Náttúrufræð-
ingsins, félagsrits Hins íslenska
náttúrufræðifélags og tímarits Nátt-
úruminjasafns Íslands, er áhuga-
verð grein eftir þær Hrefnu Sig-
urjónsdóttur og Söndru M Gran-
quist. Í greininni er birt niður-
staða rannsóknar á hátterni hrossa.
Hross eru félagslyndar skepn-
ur og mynda mismikil tengsl við
önnur og óskyld hross. „Hestar
kljást og þeir slást – en af hverju?
Í greininni eru teknar saman nið-
urstöður rannsókna á félagshegð-
un 426 hesta í 20 hópum. Rann-
sóknirnar náðu yfir 15 ára tíma-
bil og fóru fram á ellefu stöðum á
landinu. Niðurstöður sýna að sam-
setning hópsins hefur mikil áhrif á
það hversu árásargjörn hrossin eru.
Minnst var árásarhneigðin þar sem
stóðhestur varði hóp hryssna og af-
kvæmi þeirra en hún var einnig lít-
il í hópum þar sem var fjöldi ungra
folalda og samsetning hópsins var
stöðug.“ Þá segir að hrossaeigend-
ur geti nýtt sér þessar niðurstöður,
m.a. með því að skapa aðstæður sem
draga úr árásarhneigð hrossanna og
minnka samkeppni um fóður, skjól
og vatn. Þá skiptir máli að huga að
hópsamsetningu og að halda henni
sem stöðugastri.
mm
Borgarbyggð auglýsti nýverið starf
forstöðumanns Öldunnar í Borgar-
nesi laust til umsóknar. Fimm sóttu
um en einn umsækjandi dró um-
sókn sína til baka. Nú hefur verið
kynnt að Sjöfn Hilmarsdóttir hefur
verið ráðin tímabundið í starf for-
stöðumanns. „Sjöfn er með meist-
arapróf í lögfræði frá Háskólanum
í Reykjavík. Hún hefur góða þekk-
ingu á lögum er varða málefni fatl-
aðra auk reynslu af vinnu við þjón-
ustu við fatlaða. Auk þess hefur hún
einnig lagt stund á nám í sáttamiðl-
un. Sjöfn hefur undanfarið unnið
sem leiðbeinandi og forstöðumað-
ur Frístundar í Borgarnesi. Hún
hefur einnig starfað í Búsetuþjón-
ustu Borgarbyggðar, hjá Umboðs-
manni barna, verið liðveitandi fyrir
félagsþjónustu og tilsjónaraðili fyr-
ir barnavernd, ásamt því að vinna
ýmis störf sem tengjast starfs-
mannamálum, stjórnun, fjármál-
um og rekstri,“ segir í frétt Borgar-
byggðar um ráðninguna.
mm
Mannauðs- og
gæðastjóri hjá LbhÍ
Sjöfn Hilmarsdóttir.
Sjöfn ráðin forstöðumaður
Öldunnar í Borgarnesi
Freyja og Stjarni að kljást.
Ljósm. af forsíðu Náttúrufræðingsins tók Hrefna Sigurjónsdóttir.
Rannsökuðu háttsemi hrossa í haga
Rafræn Afladagsbók að
taka við handskrifaðri