Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202026
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvaða þorramatur þykir
þér bestur?
Spurni g
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Bergmann Þorleifsson
Allur.
Tinna Benediktsdóttir
Sviðasulta.
Sigurður Gunnarsson
Hrútspungar og sviðasulta.
Sigmar Stefnisson
Svið.
Alexander Sigmarsson
Slátur.
Hið árlega Kútmagakvöld Lions-
klúbbs Nesþinga, Slysavarnadeild-
arinnar Helgu Bárðardóttur og
Leikfélags Ólafsvíkur var hald-
ið í félagsheimilinu Röst um liðna
helgi. Veislan er ætluð fyrir íbúa
60 ára og eldri og er fyrir margt
löngu búin að skapa sér fastan sess
í menningarlífinu. Um 80 miðar
voru seldir á skemmtunina og mik-
ið fjör. Gestir gæddu sér ekki ein-
göngu á kútmögum heldur alls-
kynst sjávarfangi sem félagar í þess-
um þremur félögum höfðu und-
irbúið af stakri list. Þetta kvöld var
í engu frábrugðið þeim fyrri, en
auk kútmaganna má nefna að í boði
voru djúpsteiktar gellur, kinnfisk-
ur, siginn fiskur, hvalur og plokk-
fiskur, svo fátt eitt sé nefnt, ásamt
tilheyrandi meðlæti. Feðgabandið
sá um tónlistina á skemmtuninni.
Nefna má að á Kútmagakvöldinu
er alltaf farið í ásadans og að þessu
sinni voru það þær jóhanna Gunn-
arsdóttir og Svanhildur Pálsdóttir
sem unnu hann og fengu þær veg-
leg verðlaun. þa
Lið Grundarfjarðar í fyrstu deild
kvenna í blaki tók á móti HK b í
íþróttahúsi Grundarfjarðar fimmtu-
daginn 16. janúar síðastliðinn.
HK b var um miðja deild á með-
an UMFG var í næst neðsta sætinu
fyrir leikinn. Gestirnir byrjuðu leik-
inn af miklum krafti og voru komn-
ar í 3-10 snemma í leiknum. Þá
tóku heimamenn við sér og minnk-
uðu muninn í 7-10. HK b konur
settu næstu tvö stig en þá komu átta
stig frá heimamönnum í röð og þær
náðu yfirhöndinni. UMFG sigr-
aði fyrstu hrinuna 25-19 og komst
í 1-0. Í annarri hrinu mættu gest-
irnir ívið grimmari og ákveðnir í
að jafna. Það tókst þeim eftir harða
baráttu en hrinan endaði 20-25
gestunum í vil og staðan því orð-
in 1-1. Í þriðju hrinunni small eitt-
hvað rétt saman hjá heimamönn-
um því þær léku á als oddi. Röðuðu
niður stigunum og kláruðu hrinuna
25-17 og staðan því orðin 2-1 fyr-
ir UMFG. Svipað var upp á ten-
ingnum í fjórðu hrinunni sem jafn-
framt varð síðasta hrinan því að
heimamenn sigruðu hana 25-19 og
tryggðu sér þannig kærkominn 3-1
sigur á HK b. Þetta var aðeins ann-
ar sigur UMFG í deildinni en næsti
leikur liðsins verður miðvikudaginn
22. janúar er stelpurnar heimsækja
Aftureldingu X sem situr í fjórða
sæti deildarinnar. tfk
Snæfellskonur máttu sín lítils gegn
Íslandsmeisturum Vals á útivelli
þegar liðin mættust í Domino‘s
deild kvenna í körfuknattleik á
miðvikudagskvöld. Valskonur voru
sterkari allan tímann og sigruðu að
lokum örugglega, 93-54. Snæfell
lék án Gunnhildar Gunnarsdóttur
og Emese Vida og til að bæta gráu
ofan á svart sneri Rósa Kristín Indr-
iðadóttir sig illa snemma í leiknum
og gat ekki haldið áfram.
Upphafsfjórðungur Snæfells var
afleitur, þar sem liðið skoraði að-
eins fimm stig. Valskonur skoruðu
hins vegar 29 stig og stóðu því með
pálmann í höndunum strax eftir
fyrsta leikhluta. Snæfellskonur léku
miklu betur í öðrum leikhluta, en
Valsliðið var engu að síður sterk-
ara. Þegar flautað var til hálfleiks
höfðu Íslandsmeistararnir 31 stigs
forskot, 56-25.
Snæfell átti erfitt uppdráttar eftir
hléið, skoraði aðeins tíu stig í þriðja
leikhluta gegn 20 stigum Vals og
staðan var 76-35 fyrir lokafjórð-
unginn. Snæfellskonur náðu rétt
aðeins að klóra í bakkann í loka-
fjórðungnum, skoruðu þar 19 stig
gegn 17 stigum Vals. Lokatölur
voru 93-54 fyrir Val.
Rebekka Rán Karlsdóttir var
stigahæst í liði Snæfellskvenna með
ellefu stig, Tinna Guðrún Alexand-
ersdóttir skoraði tíu, Helga Hjördís
Björgvinsdóttir var með níu stig og
níu fráköst, Vera Pirttinen skoraði
níu stig og tók sex fráköst, Amarah
Coleman var með sex stig, Björg
Guðrún Einarsdóttir skoraði fimm
og þær Anna Soffía Lárusdóttir og
Hrafnhildur Magnúsdóttir skoruðu
tvö stig hvor.
Sylvía Rún Hálfdánardóttir var
atkvæðamest í liði vals með 24
stig, níu fráköst og sex stolna bolta,
Kiana johnson var með 23 stig, ell-
efu fráköst og sex stoðsendingar,
Helena Sverrisdóttir skoraði 16
stig, tók níu fráköst og gaf sjö stoð-
sendingar og Dagbjört Samúels-
dóttir var með 14 stig.
snæfell situr í sjötta sæti deildar-
innar með átta stig, fjórum stigum
á undan Breiðabliki en tólf stigum
á eftir Haukum í sætinu fyrir ofan.
Næsti leikur liðsins er Vesturlands-
slagur gegn Skallagrími á morgun,
fimmtudaginn 23. janúar. Sá leikur
fer fram í Stykkishólmi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ sá.
Skallagrímur reið ekki feitum
hesti frá viðureign sinni við Hamar,
þegar liðin mættust í 1. deild karla
í körfuknattleik á föstudag. Leik-
ið var í Hveragerði og það voru
heimamenn sem sigruðu örugg-
lega, 110-78.
Borgnesingar byrjuðu leikinn
illa, skoruðu ekki stig fyrstu sex
mínúturnar og á meðan komust
Hvergerðingar í 15-0. Skallagríms-
menn náðu þó ágætis rispu eftir
að þeir komust á blað og minnk-
uðu muninn í tíu stig áður en fyrsti
leikhluti var úti, 22-12. Þeir voru
ákveðnir í öðrum leikhluta, héldu
áfram að minnka muninn og þegar
sex mínútur voru til hálfleiks höfðu
þeir minnkað muninn í fimm stig,
30-25. En Hvergerðingar enduðu
fyrri hálfleikinn á góðum spretti,
héldu Borgnesingum stigalausum
næstu mínúturnar og leiddu með
18 stigum í hléinu, 43-25.
Hamarsmenn voru öflugri í síð-
ari hálfleik. Þeir juku forskot sitt
lítið eitt í þriðja leikhluta og leiddu
með 23 stigum að honum loknum.
Staðan var 76-53 að honum lokn-
um og brekkan orðin æði brött fyrir
Borgnesinga. Þeir náðu ekki að laga
stöðuna í lokafjórðungnum. Þvert á
móti bættu Hvergerðingar lítið eitt
við forskot sitt og sigruðu að lokum
með 32 stigum, 110-78.
Kristófer Gíslason var stigahæst-
ur í liði Skallagríms með 18 stig og
sjö fráköst. Kenneth Simms skor-
aði 14 stig og tók níu fráköst, Isa-
iah Coddon var með 14 stig einnig,
Davíð Ásgeirsson og Kristján Örn
Ómarsson skoruðu átta stig hvor,
Hjalti Ásberg Þorleifsson skor-
aði sjö stig, Arnar Smári Bjarna-
son skoraði sex stig og Davíð Guð-
mundsson skoraði þrjú stig.
Everage Lee Richardsson skoraði
22 stig fyrir Hamar, tók níu fráköst
og gaf átta stoðsendingar. Ragnar
jósef Ragnarsson skoraði 22 stig,
Michael Philips skoraði 19 stig og
tók tíu fráköst og Matej Buovac
skoraði 18 stig og tók tólf fráköst.
Skallagrímur hefur fjögur stig
í áttunda sæti deildarinnar, jafn
mörg og Snæfell í sætinu fyrir ofan
en tveimur stigum meira en botnlið
Sindra. Næsti leikur Borgnesinga er
útileikur gegn toppliði Hattar. Lið-
in mætast á Egilsstöðum á morgun,
fimmtudaginn 23. janúar.
kgk/ Ljósm. Skallagrímur.
Góður sigur
hjá Grundfirðingum
Eldri íbúar skemmtu
sér á Kútmagakvöldi
Stórt tap í Hveragerði
Sáu aldrei til sólar