Skessuhorn


Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202010 Í fundargerð byggingarnefnd- ar leik- og grunnskólans á Klepp- járnsreykjum frá 17. desember síð- astliðnum kemur fram að áætl- að er að ráðstafa um 80 milljón- um króna í lagfæringar á húsnæði grunnskólans en komið hefur í ljós að ástand elsta hluta grunnskóla- hússins er „verra en vonir stóðu til,“ eins og bókað er í fundar- gerð. Fram kemur að nefndin hef- ur rætt áður um ástand skólabygg- ingarinnar og meðal annars skoð- að kostnaðartölur við lagfæring- ar í samanburði við nýbyggingu. Á þessu ári er ráðstafað fimm millj- ónum króna í lagfæringar á grunn- skólahúsinu, árið 2021 er ráðstaf- að 25 milljónum króna og árið 2023 er áætlað að verja 50 milljón- um í lagfæringar, alls 80 milljón- um króna á næstu fjórum árum. Að sögn Ragnars Frank Kristjánsson- ar sviðsstjóra hjá Borgarbyggð var framkvæmd ástandsskoðun á skóla- húsinu á síðasta ári. Sú skoðun hafi ekki leitt í ljós neinar skemmdir sem hafi áhrif á heilsu fólks. Hins vegar sé einangrun í þaki ábóta- vant og holrými undir gólfi á stóra ganginum hafi leitt í ljós að styrkja þurfi gólfplötu. Þá þurfi að lag- færa þann hluta hússins sem rúm- ar smíðastofu. Á fundi byggingarnefndar í des- ember var ákveðið að veita hærra fjármagni til endurbóta á grunn- skólalóðina á Kleppjársreykjum; 50 milljónum í stað 30 milljóna í áætlun. Þá var sömuleiðis ákveðið að veita 40 milljónum króna í lóð við nýja leikskólann sem nú er ver- ið að byggja áfast grunnskólahús- inu. Fram kemur í fundargerðinni að búið er að ljúka við þriðjung af verkinu og er góð framvinda í verk- efninu. Áfram er stefnt að starfsemi leikskólans Hnoðrabóls flytji frá Grímsstöðum í húsið fyrir upphaf næsta skólaárs. Í nýbyggingunni verða sömuleiðis skrifstofur starfs- fólks leik- og grunnskólans. mm/ Ljósm. Mats Wibe Lund. Í desembermánuði var úthlutað fjórum rað- og parhúsalóðum við Fagralund á Akranesi. Hvorki fleiri né færri en 61 lóðaumsókn barst í þessar fjórar lóðir og því þurfti að draga um lóðirnar. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir þennan mikla fjölda umsókna til vitnis um þá eftirspurn sem er eftir lóðum í bænum. „Þetta sýnir hversu mikil ásókn er í áframhald- andi uppbyggingu hér á Akranesi og hvað það gengur vel almennt, sem er mjög jákvætt,“ segir Sævar ánægður í samtali við Skessuhorn. Hann segir þennan fjölda um- sókna ekki hafa komið sér stórlega á óvart. „Við vorum komin með tilfinningu fyrir því að eftirspurn eftir áframhaldandi uppbyggingu væri mikil. Þess vegna erum við núna að reyna að spýta enn frekar í svo eftirspurn eftir lóðum í bænum verði mætt,“ segir hann. „Við erum þegar farin að undirbúa úthlutanir á næstu raðhúsalóðum. Þær verða við Akralund 8 til 14, 16 til 18 og 20 til 26,“ bætir bæjarstjórinn við. Fyrstu skrefin á Langasandsreit Sömuleiðis segir Sævar stjórn- endur Akraneskaupstaðar vinna að undirbúningi á útboði lóða við Suðurgötu. „Það yrði fyrsti hlutinn af þeirri byggð sem köllum orðið í daglegu tali Langasandsreit, en kölluðum áður Sementsreit,“ segir bæjarstjórinn. „Það er ánægjulegt að taka fyrstu skrefin í uppbygg- ingu á Langasandsreit sem hef- ur verið unnið að í mörg ár í góðu samstarfi við íbúa,“ segir Sævar. Í því samhengi bætir hann því við að hönnun Faxabrautar sé á loka- metrunum. Aðeins þurfi að ljúka hönnun ákveðinna þátta sem snúa að Veitum og það sé mjög langt komið. „Að svo búnu verður verkið boðið út og við gerum ráð fyrir því að Faxabraut verði í uppbyggingu á þessu ári og næsta,“ segir hann, en sú framkvæmd heyrir undir Vega- gerðina og það er ríkið sem borg- ar. „Það er ekki fyrr en þeirri fram- kvæmd lýkur að við getum haldið áfram að úthluta lóðum á Langa- sandsreitnum. Við gætum klárað gatnagerðina samhliða vinnu við Faxabraut og farið í úthlutun lóða um leið og þeirri framkvæmd er lokið,“ segir hann. 165 íbúðir í byggingu Um þessar mundir eru í byggingu á Akranesi samtals 165 íbúðir; tíu einbýlishús, 32 íbúðir í rað- og parhúsum og 123 íbúðir í fjölbýlis- húsum. Auk þess er verið að vinna úthlutunargögn fyrir þrjár par- og raðhúsalóðir við Akralund, sam- tals tíu íbúðir, sem og átta lóðir við Suðurgötu með samtals 18 íbúð- um, eins og Sævar vísar til hér að ofan. „Þegar fyrrnefndar lóðir við Fagralund, Akralund og Suður- götu færast á byggingarstig verða 38 íbúðir til viðbótar í byggingu. jafnframt er að klárast skipulag fjölbýlishúsalóða milli Asparskóga og Þjóðbrautar sem mun fljótlega fara í úthlutun, en þar eru þrjár lóðir með á bilinu 54-75 íbúðir,“ segir bæjarstjórinn. Tíu íbúðir fyrir fatlaða og öryrkja Nýverið var lóðinni við Þjóð- braut 3 úthlutað til Bestlu bygg- ingafélags, en fyrirtækið reis- ir um þessar mundir fjölbýlishús við Dalbraut 4. „Ánægjulegt er að segja frá því að við fengum jákvæða niðurstöðu í umsókn til Íbúðalána- sjóðs, sem heitir núna Skipulags- og umhverfisstofnun, um húsnæð- isframlög til byggingar tíu íbúða fyrir fatlaða og öryrkja. Það mun- um við nýta á Dalbrautarreitn- um. Átta íbúðir munu væntanlega rísa strax á Þjóðbraut 3, í samstarfi við Brynju hússjóð og verktakann Bestlu,“ segir Sævar. „Innviðir stækki í takt“ Af öðrum framkvæmdum er það helst að segja að skipulagsvinna stendur yfir við Skógahverfi 3, sem nær til svæðisins frá Akralundi í átt að Skógræktinni. Í Skógahverfi 3 verður gert ráð fyrir einbýlishúsa- lóðum, en eftirspurn eftir þeim hefur ekki verið jafn mikil upp á síðkastið og eftir par- og raðhúsa- lóðum. „Sem stendur er engin ein- býlishúsalóð laus til umsóknar, en það hefur ekki verið mikil vöntun. Sést það til dæmis á því að par- og raðhúsalóðunum fjórum sem ný- lega var úthlutað í Fagralundi var breytt í skipulaginu. Þar voru áður einbýlishúsalóðir en ekki var eftir- spurn eftir þeim,“ segir Sævar. „En ég á von á því að þegar lokið verð- ur við gerð skipulags Skógahverfis þá bætist við einbýlishúsalóðir og fleiri par- og raðhúsalóðir,“ bæt- ir hann við. „Mikilvægt er einnig að huga að því að innviðir stækki í takt við stækkandi bæjarfélag og var skólalóð sem fyrirhuguð er fyr- ir leikskóla og grunnskóla stækkuð um einn hektara í skipulagi. Í und- irbúningi er hönnun á nýjum leik- skóla sem verður sex deildir, með möguleika á stækkun í átta deild- ir. Þessi leikskóli verður byggður á þessu og næsta ári,“ segir bæjar- stjórinn að endingu. kgk Ástand skólahúss verra en talið hafði verið Mikil eftirspurn eftir lóðum á Akranesi 61 umsókn barst um fjórar par- og raðhúsalóðir við Fagralund á Akranesi þegar þeim var úthlutað í desember. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi. Ljósm. úr safni/ kgk. Fylgst með ljósabúnaði VESTURLAND: Lögregla fylgdist náið með og hafði af- skipti af allnokkrum ökumönn- um í vikunni sem leið vegna ófullnægjandi ljósabúnaðar bif- reiða. Nú hafa ný umferðarlög tekið gildi þar sem kveðið er á um að dagljósabúnaður að aftan skuli notaður öllum stundum, líkt og framljós bifreiðanna. Nokkrir voru sektaðir sem höfðu ljósabúnað ekki í lagi. Þá voru jafnframt höfð afskipti af ökumönnum sem höfðu lagt bifreiðum sínum gegnt aksturs- stefnu, en slíkt er einnig óheim- ilt samkvæmt nýjum umferð- arlögum. Einn var stöðvaður fyrir að hreinsa ekki rúðurn- ar hjá sér í liðinni viku og var gert að greiða 20 þúsund króna sekt fyrir athæfið. Hafði hann hvorki haft fyrir því að hreinsa fram- né hlíðarrúður bifreiðar- innar. -kgk Stungið af frá tjóni AKRANES: Ekið var á kyrr- stæðan bíl sem lagt hafði ver- ið við Stekkjarholt á Akranesi á mánudag. Talið er að atvikið hafi átt sér stað milli kl. 15 og 16. Ekki er vitað hver var þar að verki. Á vettvangi sást aðkoma bifreiðar að vinstra afturhorni tjónuðu bifreiðarinnar, þar sem hjólför voru sjáanleg. Ekki er vitað hver var þarna á ferðinni en lögregla minnir á að vegfar- endum er skylt að láta vita af umferðaróhöppum. -kgk Aflatölur fyr- ir Vesturland 11.-17. janúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 25.690 kg. Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs SH: 17.551 kg í þremur róðr- um. Arnarstapi: Engar landanir á tímabilinu. Grundarfjörður: 4 bátar. Heildarlöndun: 166.499 kg. Mestur afli: Runólfur SH: 60.696 kg í einni löndun. Ólafsvík: 15 bátar. Heildarlöndun: 263.141 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 42.990 kg í einum róðri. Rif: 12 bátar. Heildarlöndun: 164.968 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 32.273 kg í einni löndun. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 24.383 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 13.155 kg í einum róðri. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Runólfur SH - GRU: 60.696 kg. 13. janúar. 2. Sigurborg SH - GRU: 51.959 kg. 13. janúar. 3. Rifsnes SH - ÓLA: 42.990 kg. 11. janúar. 4. Farsæll SH - GRU: 36.710 kg. 13. janúar. 5. Rifsnes SH - RIF: 32.073 kg. 16. janúar. -kgk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.