Skessuhorn - 22.01.2020, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 2020 11
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi óskar eftir að ráða verkefnastjóra. Starfsstöðin
er í Borgarnesi, en í starfinu felast fjölmörg tækifæri til að starfa að fjölbreyttum og
áhugaverðum verkefnum um allt Vesturland.
Viltu vera með okkur og sækja fram?
VERKEFNASTJÓRI
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Skipulagning, umsjón og kennsla
á námskeiðum Símenntunarmiðstöðvarinnar
• Ráðgjöf og upplýsingamiðlun til stofnana,
fyrirtækja og einstaklinga varðandi sí- og
endurmenntun
• Úttekt á sí- og endurmenntun innan fyrirtækja
og gerð símenntunaráætlana
• Uppbygging á samstarfi við stofnanir og
fyrirtæki á svæðinu
• Þátttaka í ýmsum þróunar- og
samstarfsverkefnum á sviði framhaldsfræðslu
• Umsjón með samfélagsmiðlum og vefsíðu
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun, s.s. á sviði náms-
og starfsráðgjafar og/eða menntavísinda
• Víðtæk reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking á atvinnulífi á Vesturlandi er kostur
• Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
• Frumkvæði, framsýni og skipulagshæfni
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta og færni í að tileinka sér
tækninýjungar
Umsóknarfrestur til og með 26. janúar nk.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi
er sjálfseignarstofnun, starfar á sviði
fullorðinsfræðslu og rekur tvær starfsstöðvar
á Vesturlandi – á Akranesi og í Borgarnesi.
Starfsemi Símenntunarmiðstöðvarinnar
hefur farið vaxandi undanfarin ár og fjölmörg
tækifæri eru til staðar til að starfa að
fjölbreyttum og áhugaverðum verkefnum
í landshlutanum innan fullorðinsfræðslunnar
og í samstarfi við hagsmunaaðila hverju sinni.
www.simenntun.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is
Síðastliðið haust var gengið frá
samningi milli Landsbókasafns Ís-
lands og Skessuhorns ehf. um raf-
ræna birtingu allra tölublaða Skessu-
horns frá upphafi útgáfunnar 1998
á vefnum timarit.is. Nú er lokið við
að setja efnið inn og aðgengilegt
þeim sem vilja glugga í það. Alls
er nú 21 árgangur af blaðinu kom-
inn í birtingu; árin 1998 til og með
2018. Á vefnum timarit.is er ým-
ist hægt að kalla fram öll tölublöð
eða framkvæma atriðaleit og birt-
ast þá viðkomandi efnisorð í þeim
prentmiðlum sem gert hafa viðlíka
samning við Landsbókasafnið. mm
Um helgina var greint frá því hverj-
ir taka þátt í Söngvakeppni sjón-
varpsins að þessu sinni, en sigur-
vegari keppninnar verður fulltrúi
Íslands í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva í vor. Meðal kepp-
enda er Helga Ingibjörg Guðjóns-
dóttir á Akranesi. Hún syngur lag-
ið Klukkan tifar, ásamt Ísold Wil-
berg Antonsdóttur. Lagið er eftir
Birgi Stein Stefánsson og Ragnar
Má jónsson, en Stefán Hilmarsson
samdi textann. Upp á enska tungu
nefnist lagið Meet me halfway og
höfundar enska textans eru þeir
Birgir Steinn, Ragnar Már og Stef-
án.
Helga og Ísold munu flytja lagið
á fyrri undanúrslitakvöldi söngva-
keppninnar laugardaginn 8. febrú-
ar næstkomandi.
kgk
Skessuhorn nú
aðgengilegt á timarit.is
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir (t.h.)
og Ísold Wilberg Antonsdóttir flytja
lagið Klukkan tifar í Söngvakeppni
sjónvarpsins.
Tekur þátt
í Söngvakeppni sjónvarpsins