Skessuhorn


Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 22.01.2020, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202012 jens Heiðar Ragnarsson var í síð- ustu viku ráðinn í starf slökkvi- liðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Hann tekur við starfi slökkviliðsstjóra nú á vor- mánuðum, um leið og hann lýkur skyldum sínum hjá Rafmennt þar sem hann starfar nú. Skessuhorn hitti jens Heiðar að máli síðdegis á mánudag og ræddi við hann um nýja starfið og sitthvað fleira tengt slökkviliði Akraness og Hvalfjarð- arsveitar. Reyndur slökkviliðsmaður jens Heiðar er enginn nýgræðingur þegar kemur að slökkvistarfi, því 1. maí næstkomandi verða 22 ár liðin frá því hann var skipaður í Slökkvi- lið Akraness, eins og liðið hét þá. „Þá var fyrirkomulagið þannig að maður fékk kvaðningu, skipunar- bréf í pósti. Bréfið hljómaði svo- lítið eins og að um herskyldu væri að ræða og undirritað af bæjar- stjóra. Menn voru sem sagt kvaddir í slökkviliðið, beðnir að starfa í lið- inu nema geta gefið rök sem mæltu á móti því,“ segir hann og brosir. „Við vorum tveir sem þá störfuðum í Sementsverksmiðjunni sem vor- um teknir inn það árið,“ segir jens Heiðar, en tekur þó skýrt fram að honum hafi ekki verið nein raun af því að vera kvaddur í slökkviliðið. Þá hefði hann líklega ekki enst í lið- inu allan þennan tíma. „Við vorum búnir að sýna þessu áhuga. Menn gátu ekkert sótt um inngöngu í lið- ið og ég var því mjög ánægður þeg- ar ég fékk skipunarbréfið,“ seg- ir hann og bætir því við að honum hafi alltaf líkað vel að starfa innan slökkviliðsins. Áhuginn liggur þarna „Þetta er frábær félagsskapur og allan þennan tíma höfum við ver- ið ótrúlega heppin með stjórnend- ur og alla sem eru í liðinu. Þetta hefur verið svakalega samheldinn hópur og virkur, skemmtilegur fé- lagsskapur og ég hefði aldrei vilj- að missa af þessu,“ segir jens Heið- ar. „Til marks um það fannst mér ótrúlega jákvætt að helmingur af endanlegum umsækjendum um starf slökkvilðsstjóra kom úr lið- inu sjálfu, við vorum fimm úr lið- inu sem sóttum um. Það sýnir bara andann í þessu slökkviliði, menn eru reiðubúnir að stíga inn og taka við keflinu. En þrátt fyrir það verð- ur áfram góður andi innan liðsins þó einn hafi verið valinn til starfs- ins,“ segir jens Heiðar. En af hverju ákvað hann að sækjast eftir starf- inu? „Það blundaði alltaf í mér. Mér hefur gengið vel sem flokkstjóri og ég hef verið innvinklaður í stjórn- unina bæði á vettvangi og núna síð- ast í þjálfun og æfingum liðsins. Ég bætti við mig rekstrarnámi, útskrif- aðist 2019 úr rekstrariðnfræði í HR og fannst þetta rökrétt skref þegar Þráinn [Ólafsson; innsk. blms.] til- kynnti að hann ætlaði að stíga til hliðar. Mér fannst kominn tími til að prófa allavega að sækja um og sjá hvernig það færi,“ segir hann. „Mér finnst þetta spennandi starf og áhugavert. Áhugi minn liggur þarna, maður lifir svolítið og hrær- ist í þessu,“ bætir hann við. Blundaði í honum Þegar starf slökkviliðsstjóra var auglýst snemma í desember lá fyr- ir að Þráinn, forveri jens Heiðars í starfi, myndi láta af störfum á ára- mótum, en ráðningarferlið myndi standa fram í janúar. Því var viðbú- ið að nýr slökkviliðsstjóri gæti ekki hafið störf þá og þegar. jens Heiðar kveðst vonast til að geta byrjað í nýja starfinu sem fyrst. „Vinnan mín er þannig að febrúar er prófamánuður og ég verð að skila honum af mér. En þetta er allt gert í samkomulagi við minn atvinnurekanda. Hann er opinn fyrir því að hleypa mér í burtu þegar hann nær utan um þau verkefni sem ég hef á minni könnu með öðrum mannskap,“ segir hann. „Ég kem aldrei seinna en 1. maí, en stefni að því að koma fyrr og von- andi gengur það eftir,“ bætir jens Heiðar við. Þangað til hann tekur við nýju starfi er Björn Bergmann Þórhallsson starfandi slökkviliðs- stjóri liðsins. jens Heiðar segir þá hafa verið í góðu sambandi frá því hann var ráðinn slökkviliðsstjóri. jens starfar núna hjá Rafmennt, eftirmenntunarstofnun sem býður rafiðnaðarmönnum upp á alls kyns námskeið. Hann sjálfur lærði til raf- virkja og bætti síðan við sig námi í rafiðnfræði. „Það hefur allt snúist voða mikið um rafmagn hjá mér í gegnum tíðina,“ segir hann léttur í bragði. „Allt sem snýr að öllu raf- iðnnámi fer í gegnum Rafmennt, svo sem námssamningar, sveinspróf og ýmislegt fleira tengt náminu. Það er allt á okkar könnu og við vinnum mikið fyrir mennta- og menningar- málaráðuneytið,“ segir hann. Flokkstjóri og þjálfari En jens Heiðar hefur líka komið nálægt námi og menntun í störf- um sínum innan slökkviliðsins, sem stjórnandi og þjálfunarstjóri. „Slökkviliðið er þannig uppbyggt að það er slökkviliðsstjóri, aðstoð- arslökkviliðsstjóri og síðan fjór- ir flokkstjórar. Ég hef verið flokks- tjóri síðan 2008, yfir björgun fast klemmds fólks úr mannvirkjum og farartækjum,“ segir hann. „Ég var búinn að bæta við mig stjórnend- anámi fyrir stjórnendur hlutastarf- andi slökkviliða og svo fórum við tveir árið 2018 og lærðum það sem kallað er þjálfunarstjóri II. Síðan þá höfum við haldið utan um þjálfun slökkviliðsins. Það hafa svolítið ver- ið að breytast kröfurnar sem gerð- ar eru til slökkviliðsmanna, einkum með nýrri reglugerð sem tók gildi í ágúst 2018. Verið er að skerpa á öllum kröfum og umgjörð slökkvi- liða. Í dag er orðin krafa að hjá öll- um liðum starfi þjálfunarstjórar sem leggi fram þjálfunaráætlanir. Við höfum verið að leggja meira í þann þátt síðan 2018, auk þess að ann- ast þjálfun nýliða líka, höfum kennt grunnnámskeiðin,“ segir jens. Halda áfram góðu starfi Aðspurður segir jens Heiðar að í sjálfu sér muni ekki miklar breyt- ingar fylgja nýjum slökkviliðsstjóra, en engu að síður muni verða breyt- ingar í framtíðinni. „Ég mun halda áfram því góða starfi sem unnið hef- ur verið. Ég hef sjálfur verið undir þremur slökkviliðsstjórum og allt- af, stjóra fram af stjóra, hefur ver- ið haldið áfram og byggt ofan á þá góðu vinnu sem innt hefur verið af hendi. Aðalatriðið er að halda þess- um góða liðsanda og ánægju inn- an slökkviliðsins,“ segir hann. „En auðvitað verða einhverjar breyting- ar í framtíðinni. Nýja reglugerðin sem ég minntist á áðan hefur það meðal annars í för með sér að ann- að stöðugildi verður til hjá slökkvi- liðinu, við eldvarnaeftirlit. Að öllu óbreyttu kemur það til á þessu ári,“ segir jens. „Síðan verður óhjá- kvæmilegt tel ég, eftir því sem íbú- um á starfssvæðinu fjölgar, að breyt- ingar verði á rekstrarformi liðsins í framtíðinni,“ segir hann og á við að farið verði lengra í átt til atvinnu- liðs. „Nú er þetta auðvitað algerlega ómótað, en það er framtíðin að hér verði mönnuð slökkviliðsstöð, að minnsta kosti á dagvinnutíma. Það gerist auðvitað ekkert einn, tveir og þrír, en auðvitað stefnum við þang- að ef íbúum á svæðinu heldur áfram að fjölga. Þróunin hefur verið í þá áttina hjá slökkviliðum í bæjar- félögum sem hafa verið að stækka hratt,“ segir hann, en íbúar á starfs- svæði slökkviliðs Akraness og Hval- fjarðarsveitar eru fleiri en átta þús- und talsins. Þess utan er starfssvæð- ið nokkuð stórt að flatarmáli, nær yfir Akraneskaupstað og Hvalfjarð- arsveit. Innan svæðisins eru stórar sumarhúsabyggðir, stóriðjusvæði á Grundartanga, þjóðvegur 1 liggur þar í gegn og þar að auki jarðgöng undir Hvalfjörð. „Það er ótrúlega margt á þessu svæði sem krefst við- búnaðar,“ segir jens Heiðar. „En það er sem sagt eldvarnaeftirlit- ið sem verður eflt á þessu ári með einu stöðugildi, en hitt er meira framtíðarmúsík sem við verðum þó að vera tilbúin að mæta þegar fram líða stundir. Íbúarnir á svæðinu eru orðnir yfir átta þúsund og ef upp- bygging á svæðinu heldur áfram eins og stefnt er að mun þeim fjölga töluvert á næstunni,“ segir hann. Eftirvænting að taka við Áður en við kveðjum nýráðinn slökkviliðsstjóra er ekki úr vegi að spyrja hann hvernig starfið leggist í hann. „Þetta leggst mjög vel í mig. Það eru spennandi tímar framund- an hjá slökkviliðinu, fullt af verkefn- um og engin takmörk fyrir því sem maður getur látið af sér leiða,“ seg- ir hann. „Við erum ágætlega tækj- um búin, þó auðvitað megi alltaf gera betur, en fyrst og fremst erum við með gott lið og munum ein- beita okkur að því að halda okkur í góðri þjálfun og halda liðsandan- um áfram jafn góðum og verið hef- ur,“ segir hann. „Gott lið er grunn- urinn að góðu slökkvistarfi, það er mergur málsins. Við búum að slíku slökkviliði hér þannig að framtíðin er bara björt og ég bíð spenntur eft- ir því að fá að takast á við nýja starf- ið,“ segir jens Heiðar Ragnarsson að endingu. kgk „Gott lið er grunnurinn að góðu slökkvistarfi“ - segir nýráðinn slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar Frá æfingu Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar uppi á Grundartanga síðasta vor. Ljósm. úr safni/ kgk. Jens Heiðar Ragnarsson á heimili sínu. Hann var ráðinn í starf slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar í síðustu viku. Svipmynd frá einni af fjölmörgum æfingum Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðar- sveitar. Ljósm. úr safni. Jens Heiðar ásamt nokkrum félögum sínum í slökkviliðinu eftir að eldur kom upp í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi sumarið 2013. Ljósm. aðsend.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.