Skessuhorn


Skessuhorn - 22.01.2020, Side 1

Skessuhorn - 22.01.2020, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 4. tbl. 23. árg. 22. janúar 2020 - kr. 950 í lausasölu • 2 STÓ RAR P IZZUR AF M ATSEÐ LI • 2 ME ÐLÆT I AÐ E IGIN V ALI • 2 SÓS UR AÐ EIGIN VALI • 2 L G OS AÐEIN S 5.99 0 KR. Þrír bankar í Arion appinu arionbanki.is Við opnum Arion appið og bjóðum Landsbankann og Íslandsbanka velkomna. Nú getur þú skoðað alla reikninga og kort í íslenskum bönkum í appinu. Opin og þægileg bankaþjónusta fyrir alla. Icelandic Hot Dog combo Pylsu tilboð 549 kr. Tilboðið gildir út janúar 2020 Pylsa og pepsi/pepsi max 1/2 l í plasti sími 437-1600 Öxin á Sögulofti Landnámsetursins Næstu sýningar laugardagur 25. janúar kl. 16:00 laugardagur 25. janúar kl. 20:00 sunnudagur 26. janúar kl. 16:00 laugardagur 1. febrúar kl. 16:00 miðasala á landnam.is/vidburdir eða á landnam@landnam.is UPPSELT UPPSELT Á þriðjudagskvöldið í liðinni viku var haldið upp á stórafmæli í Borgarnesi. Félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar komu þá saman til heiðurs Sæmundi Sigmundssyni sem fagnaði 85 ára afmæli sínu þennan dag. Afmælisbarnið var reyndar fjar- verandi enda lítið fyrir mannamót af þessu tagi. Félagsmenn notuðu tækifærið þetta kvöld, þáðu veitingar og þurrkuðu svo rykið af gljáfægðum sjálfrennireiðum sínum. Meðal annarra Benedikt Gunnar Lárusson blikksmiður. Fyrir nokkrum árum lauk hann við uppgerð á þessum fagurbláa Camaro árgerð 1977, en kappinn tók fjórtán ár í verkið. Þeir gerast ekki öllu fallegri fornbílarnir. Ljósm. mm Eins og kunnugt er tók Skipulags- stofnun ákvörðun um það í júní síð- astliðnum að fyrirhuguð breikk- un Vesturlandsvegar um Kjalarnes skyldi háð mati á umhverfisáhrif- um. Þar sem óttast var að sú krafa myndi fresta verkinu um ófyrirséð- an tíma var ákvörðunin kærð til úr- skurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál strax þá um sumarið. Forgöngu að kæru hafði Akranes- kaupstaðar enda miklir hagsmun- ir í húfi fyrir íbúa sem daglega aka þessa leið vegna vinnu eða náms. Auk þess kærði Vegagerðin ákvörð- unina og í kjölfar kæru Akranes- kaupstaðar fylgdu einnig önnur sveitarfélög á Vesturlandi. Nú sex mánuðum eftir að ákvörðunin var kærð hefur úrskurðarnefndin ekki komið fram með niðurstöðu um hvort umhverfismat skuli fara fram eða ekki. Í upphafi þessa árs voru hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 83 óafgreidd mál, en fram kemur á heimasíðu nefndar- innar að meðal afreiðslutími mála sé 6,4 mánuðir og hefur verið að styttast síðustu misserin. Vegagerðin hefur unnið sam- kvæmt þeirri áætlun að fram- kvæmdir við breikkun Vesturlands- vegar gætu hafist strax næsta sumar. Stofnunin hefur því ekki látið kæru- ferlið tefja framgang undirbúnings. Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, hefur fylgst grannt með undirbúningi hjá forsvarsmönnum Vegagerðarinnar: „Ég hef verið í góðu sambandi við þá sem hafa unn- ið að undirbúningi þessarar fram- kvæmdar hjá Vegagerðinni. Sam- kvæmt nýjustu upplýsingum þaðan er öll hönnunarvinna við undirbún- ing nýs vegar um Kjalarnes á áætlun og verður hönnun hans að líkind- um lokið fyrir vorið. Samhliða hafa útboðsgögn verið unnin og verð- ur því hægt að auglýsa útboð fyrir vegagerð strax og niðurstaða liggur fyrir hjá úrskurðarnefnd um um- hverfis- og auðlindamál. Ef nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að fram- kvæmdin þurfi ekki að fara í mat á umhverfisáhrifum verður strax aug- lýst. Hins vegar ef nefndin ákveð- ur að framkvæmdin skuli matsskyld er Vegagerðin tilbúin með öll gögn sem lúta að mati á umhverfisáhrif- um,“ segir Sævar Freyr í samtali við Skessuhorn. Hann kveðst því vongóður um að niðurstaða verði fengin í málið snemma í vor eða í síðasta lagi í júní, og hægt verði að hefja vegagerð næsta sumar. „Eini ókosturinn við þá tímasetningu er sá að þá er umferð í hámarki,“ bætir hann við. Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir 3,2 milljörðum króna á fjárlög- um á yfirstandandi tímabili til fram- kvæmdanna á Kjalarnesi. Vegagerð- in áætlar að vegagerðin sjálf muni taka um fjögur ár en stefnt er að svokölluðum 2+1 vegi um Kjalar- nes, ekki fullri tvöföldun líkt og á Reykjanesbrautinni og nýjum vegi milli Hveragerðis og Selfoss. mm Undirbúningur fyrir breikkun Vesturlandsvegar

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.