Mosfellingur - 17.12.2020, Qupperneq 45
Kosning
á www.mos.is
Útnefning á íþróttafólki
Mosfellsbæjar 2020
Benedikt er sautján ára námsmaður.
Hann hefur stundað hestamennsku
frá fæðingu og alla tíð keppt undir
merkjum Harðar. Árið 2020 hefur verið
Benedikt gjöfult á keppnisbrautinni,
hann vann ásamt liðsfélögum sínum
Meistaradeild æskunnar, stóð á palli
á öllum mótum sumarins og oftar en
ekki með tvo hesta í úrslitum. Stærstu
sigrarnir voru Íslandsmeistartitill í
tölti og sigurvegari í þremur greinum
á Reykjavíkurmeistarmótinu auk þess
að vera stigahæsti knapinn í unglinga-
flokki. Benedikt var valinn í U21 lands-
liðið fyrir 2020 og aftur fyrir 2021, einnig
hlaut hann afreksstyrk Mosfellsbæjar.
Styrkleikar Benedikts liggja í fjölhæfni
hans í hestamennskunni og er hann vel
hestaður í allar keppnisgreinar.
Benedikt Ólafsson hestaíþróttir
Hann hefur stundað æfingar af
miklum krafti þetta ár og er hann meðal
fremstu spretthlaupurum landsins.
Hann keppti á helstu mótum sem haldin
voru í ár. Á meistarmóti Íslands var
hann í 3. sæti í 100 m og 200 m hlaupi,
eins var hann í 3. sæti í bikarkeppninni í
60 m hlaupi . Hann var í 1. sæti í 100 m
og 200 m hlaupi í Barion-stund sem var
haldin hér á Varmárvelli.
Guðmundur Ágúst hefur stundað
æfingar og keppni með Aftureldingu í
mörg ár og er góð fyrirmynd innan sem
utan vallar.
guðmundur ágúst Thoroddsen frjálsar
Hilmir Berg er fæddur árið 2000, hann
er uppalinn hjá Aftureldingu og á marga
titla með yngri flokkum félagsins.
Hilmir hefur verið mikilvægur hlekkur í
úrvalsdeildarliði félagsins frá ungl-
ingsaldri. Hann hefur leikið með öllum
unglingalandsliðum Íslands. Á síðasta
leikári var hann valinn í A-landsliðhóp
karla.
Hilmir Berg er einstaklega geðgóður og
brosmildur ungur maður og hefur lagt
mikið á sig fyrir íþrótt sína. Hann hefur
verið aðal-uppspilari meistaraflokks
karla undanfarin 3 ár og ber því miklar
ábyrgð. Hann er mjög samviskusamur
og mætir vel á æfingar þrátt fyrir
að vera í erfiðu námi. Hann er góð
fyrirmynd yngri leikmanna sem leggur
sig alltaf fram.
Hilmir Berg Halldórsson blak
Kári Steinn spilaði stórt hlutverk í liði
Aftureldingar í Lengjudeildinni 2020,
spilaði 18 leiki og skoraði í þeim 7 mörk
auk þess að eiga stoðsendingar og búa
til færi fyrir samherja sína.
Kári kom til liðs Aftureldingar árið 2019
úr liði KFG og nýlega framlengdi hann
samning sinn til næstu tveggja ára en
hann hefur fallið mjög vel inn í leikstíl
Aftureldingar og bætt leik sinn mikið
í Mosfellsbæ undanfarin tvö ár. Kári
er félagi góður og er vel að þessum
titli kominn. Það verður spennandi að
fylgjast með honum á komandi árum.
Kári steinn Hlífarsson knattspyrna
Ingólfur er 43 ára og keppir í flokki
sérútbúinna torfærubíla undir merkj-
um Torfæruklúbbsins TKS og varð
Íslandsmeistari árið 2020. Endaði hann
allar keppnir á verðlaunapalli og þar af
tvisvar sinnum í fyrsta sæti, einu sinni
í öðru sæti og einu sinni í þriðja sæti.
Hann hefur undanfarin ár þróað og bætt
bíl sinn og nú farinn að þekkja bílinn
hjá sér vel sem skilaði sér augljóslega
í sumar.
Ingólfur hefur ekki bara lagt mikið í
sinn eigin bíl og þá vinnu sem liggur að
baki Íslandsmeistaratitlinum í ár heldur
er hann þekktur fyrir hjálpsemi sína og
er alltaf boðinn og búinn til að hjálpa
mótherjum sínum þegar eitthvað vantar
og hjálpa þeim.
ingólfur guðvarðarson akstursíþróttir
Guðmundur Árni lék mjög vel á seinni
hluta síðasta tímabils, hann var
markahæsti leikmaður Aftureldingar og
endaði sem næstmarkahæsti leikmaður
Olís deildarinnar. Hann var lykilmaður
liðsins sem endaði í 3. sæti Olís
deildarinnar.
Hann hefur einnig leikið mjög vel
á þessu tímabili og er liðið núna á
toppnum í Olís deild karla. Hann var á
dögunum valinn í 35 manna landsliðhóp
fyrir HM í Egyptalandi sem hefst núna
í janúar.
Guðmundur Árni er mikill leiðtogi innan
sem utan vallar. Hann æfir vel, leggur
mikið á sig og er frábær fyrirmynd fyrir
okkar ungu og efnilegu leikmenn.
guðmundur árni handknattleikur
Helsta afrekið á þessu ári var á
Íslandsmótinu í götuhjóla, 1. sæti í
hans flokki U23. Ekki var mögulegt að
keppa erlendis í ár vegna Covid-19 sem
gerði þetta ár erfiðara en önnur. Eyþór
keppti í því sem stóð til boða á Íslandi í
götuhjólum, Creterium og TT.
Afburða íþróttamaður og hugurinn er á
réttum stað. Hann dvaldi á Kanaríeyjum
við æfingar í janúar og febrúar og hefur
æft vel í ár við erfiðar kringumstæður.
Eyþór hefur staðið sig vel í sinni íþrótt
á árinu, er góður í hóp og duglegur að
miðla sinni kunnáttu til nýrra félaga.
Eyþór Eiríksson hjólreiðar
Arnar er landsliðsmaður í bardaga
og hefur verið það nánast óslitið frá
árinu 1998. Auk þess að vera keppandi
í fremstu röð er Arnar yfirþjálfari
Taekwondodeilda Aftureldingar og ÍR.
Taekwondodeild Aftureldingar er búin
að vera í sérflokki á mótunum hér
heima undanfarin ár, undir handleiðslu
Arnars. Bikarmeistari TKÍ veturna 2017-
2018, 2018-2019 og 2019-2020
Íslandsmeistari í bardaga 2018 og 2019
(ekkert Íslandsmeistaramót fór fram
2020). Íslandsmeistari í Poomsae 2019
(ekkert Íslandsmeistaramót fór fram
2020). Auk margra verðlauna á NM og
öðrum erlendum mótum.
Arnar Bragason taekwondo
Helsta afrek ársins hjá Óliver var að
verða Íslandsmeistari í unglingaflokki
í rallycrossi 2020. Óliver stundaði
æfingar vikulega síðasta vetur og fram
á sumar. Hann byrjaði að keppa í júní
2019 og hefur keppt í öllum keppnum
síðan þá. Sumarið 2019 gekk mjög
vel, og kláraði Óliver tímabilið í 4. sæti
til Íslandsmeistara. Tímabilið 2020
tókst vel, Óliver stóð á verðlaunapalli
eftir allar keppnir og stóð uppi sem
Íslandsmeistari í lok sumars eftir harða
baráttu. Tilnefning Ólivers myndi virka
hvetjandi fyrir unga krakka úr Mosfells-
bæ, þar sem akstursíþróttir og önnur
jaðarsport henta oft þeim sem ekki
finna sig í hópíþróttum. Hann ætlar að
halda áfram en keppir þá í öðrum flokki,
þar sem hann verður orðinn 17 ára.
Óliver Örn Jónasson akstursíþróttir
Steingrímur Bjarnason er 53 ára
Mosfellingur. Hann varð Íslandsmeistari
í götubílaflokki í torfæru árið 2020.
Eknar voru 4 umferðir í Íslandsmótinu í
sumar og vann hann 3 keppnir og varð
annar í einni umferð. Hann er búin að
keppa og aðstoða aðra í 30 ár, þar af
keppa í 18 ár.
Hann varð Íslandsmeistari í torfæru
1991, 2009, 2019 og 2020 og hefur
tvisvar sinnum orðið íslandsmeistari í
sandspyrnu í jeppaflokki, 2009 og 2019.
steingrímur Bjarnason akstursíþróttir
Þórður fluttist í fullorðinsflokk á árinu,
keppti í fyrsta sinn sem fullorðinn á
Íslandsmeistaramótinu í kata og gerði
sér lítið fyrir og vann Íslandsmeist-
aratitilinn en hann vann meðal annars
sexfaldan og fráfarandi Íslandsmeistara
í undanúrslitum. Þetta er í fyrsta sinn
sem Afturelding eignast Íslandsmeist-
ara í fullorðinsflokki í kata. Hann er
einnig RIG meistari í kata junior pilta.
Þórður er í A-landsliði Íslands í kata og
keppti m.a. á Evrópumóti ungmenna.
Helstu afrek Þórðar á árinu 2020 voru:
RIG 2020 kata kunior pilta 1. sæti
– Reykjavíkurmeistari í junior. RIG
2020 kata senior karla 2. sæti. Íslands-
meistaramót kata fullorðinna 1. sæti
– Íslandsmeistari fullorðinna
Evrópumeistaramót junior karla.
Þórður Jökull Henrysson karate
Ýmir Snær er 18 ára nemandi í FMos.
Ýmir er ungur og upprennandi sund-
maður sem æfir með íþróttafélaginu
Ösp. Þrátt fyrir að ekki hafi verið mikið
um mót á árinu 2020 hefur Ýmir
sýnt miklar framfarir og hefur komið
með hverja bætinguna á fætur
annarri á öllum mótum sem hann
hefur tekið þátt í. Ýmir Snær keppti á
Malmö Open í febrúar en það er stórt
alþjóðlegt mót fyrir fatlaða sem haldið
er á hverju ári. Þar nældi hann sér í
1 silfur og 3 brons. Silfur fyrir 50 m
skriðsund og brons fyrir 25 m flugsund,
25 m skriðsund og 25 m bringusund.
Einnig er Ýmir Snær duglegur að stunda
félagslífið og fara sundfélagarnir saman
í æfingabúðir einu sinni til tvisvar yfir
veturinn.
Ýmir snær Hlynsson sund
Sundmaður Aftureldingar er Sigurður
Þráinn Sigurðsson
Hann var rétt hjá lágmörkum inn á
Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug í
júlí og hefði að öllum líkindum komist
inn á ÍM 25 ef veturinn hefði verið
eðlilegur og mótið hefði farið fram.
Hann hefur staðið sig vel á æfingum.
sigurður Þráinn sigurðsson sund
Kristófer er 19 ára gamall Mosfellingur.
Kristófer er einn af allra bestu kylfing-
um landsins en helsti árangur hans árið
2020 var eftirfarandi:
Íslandsmeistari í holukeppni 19-21 árs
Íslandsmeistari í höggleik 19-21 árs
Stigameistari GSÍ 19-21 árs
Klúbbmeistari karla hjá GM
Valinn í A-landslið Íslands sem lék á
Evrópumóti í Hollandi
Kristófer lék lykilhlutverk í sterku liði
GM í Íslandsmóti golfklúbba í efstu
deild. Kristófer er góður liðsmaður og
frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur
GM. Kristófer stefnir á atvinnumennsku
í golfi að loknu námi.
Kristófer Karl Karlsson golf
Kynning á íþróttakörlum sem tilnefndir eru vegna kjörs til
íþróttakarls mosfellsbæjar 2020 og afrekum þeirra á árinu.