Ægir

Volume

Ægir - 2019, Page 14

Ægir - 2019, Page 14
14 Smyril Line, sem á og rekur vöru- flutningaferjuna Mykines og farþega- og vöruflutningaferjuna Norrænu, hefur fest kaup á nýrri vöruflutn- ingaferju sem mun hefja áætlunar- siglingar um miðjan janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals í Dan- mörku með viðkomu í Færeyjum. Ferj- an, sem fær nafnið Akranes, er 10.000 tonn og getur tekið 100 vöruflutn- ingavagna í hverri ferð. Með tilkomu nýju ferjunnar opnast nýir möguleikar fyrir inn­ og útflytjend­ ur á Íslandi. „Annars vegar styttum við flutningstímann fyrir innflutning frá Danmörku og Færeyjum til Íslands tölu­ vert og hins vegar bjóðum við upp á nýja útflutningsleið, t.d. fyrir fisk, um Danmörku til Evrópu,“ segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi. Ný inn- og útflutningsleið um Danmörku „Við siglum vikulega frá miðjum janúar 2020 milli Þorlákshafnar og Hirtshals á Jótlandi, þangað sem Norræna siglir líka, með viðkomu í Færeyjum. Farið verður frá Danmörku á föstudagseftirmiðdegi og komið til Íslands á mánudegi og er ég spennt að sjá hvernig þessari nýju inn­ og útflutningsleið verður tekið, bæði fyrir fisk frá suðvesturhorninu í gegnum Danmörku til Evrópu og allskyns inn­ og útflutning til og frá Skandinavíu og meginlandinu,“ segir Linda Björk. Fyrir á Smyril Line Norrænu, Hvíta­ nes, Eystnes og Mykines. Nýja skipið Akranes er systurskip Mykines, sem hef­ ur reynst mjög vel í siglingum milli Þor­ lákshafnar og Rotterdam. Akranes, sem bar áður nafnið Bore Bank, var byggt árið 1998 í UMOE skipasmíðastöðinni í Noregi. Skipið er 138 metra langt, 23 metra breitt, 10.000 tonn og tekur 100 vöruflutningavagna í hverri ferð. Lyftistöng fyrir bæði höfnina og sveitarfélagið „Við höfum unnið markvisst að því að efla siglingar til og frá Þorlákshöfn og áætlunarferðir Akraness verða enn frek­ ari lyftistöng fyrir bæði höfnina og sveitarfélagið enda aukast umsvifin við höfnina enn frekar og þar með líka bæði störf og afleidd atvinnustarfsemi í sveit­ arfélaginu,“ segir Elliði Vignisson bæjar­ stjóri sveitarfélagsins Ölfuss. „Þorlákshöfn er í dag orðin lykilhöfn í flutningum á sjó til og frá Evrópu. Til að styðja við þessa þróun höfum við gert miklar endurbætur á hafnaraðstöðunni og þær framkvæmdir nýtast okkur í þessu vaxtarskrefi enda notar nýja ferj­ an sömu aðstöðu og Mykines. Þá eigum við tilbúnar lóðir á hafnarsvæðinu fyrir aukna starfsemi. Við höfum þá trú að á komandi árum muni inn­ og útflytjendur leggja aukna áherslu á skemmri siglingu til að tryggja betur ferskleika vörunnar og draga úr kolefnisspori vegna flutn­ inga en siglingin til og frá Evrópu tekur hátt í sólarhring skemmri tíma þegar siglt er hingað miðað við Faxaflóann.“ Smyril Line Auknir útflutningsmöguleikar frá Þorlákshöfn með nýrri ferju ■ Nýja vöruflutningaferjan Akranes getur tekið 100 vöruflutningavagna í hverri ferð. ■ Linda Björk Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Smyril Line. Vöruflutningar

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.