Ægir - 2019, Page 16
16
„Við erum komnir með um 6.000 tonn
á árinu á Páli Pálssyni ÍS en líklega
náði gamli Páll Pálsson ÍS aldrei þeim
afla á einu ári. Það væri hægt að taka
mun meira því það er ekki stíft sótt.
Við vorum 192 daga á sjó á síðasta
kvótaári en við erum fyrst og fremst
að fiska fyrir frystihúsið. Vinnslan
ræður ferðinni en í húsinu er verið að
vinna ferskan fisk og í frost. Það sem
þeir ekki þurfa eða vilja fer svo á
markað,“ segir Páll Halldórsson, skip-
stjóri á ferskfisktogaranum Páli Páls-
syni ÍS. Togarinn er gerður út af
Hraðfrystihúsinu Gunnvöru í Hnífsdal
og kom nýsmíðaður frá Kína í sumar-
byrjun 2018 og leysti þá af hólmi
nokkuð aldraðan nafna sinn. Páll seg-
ir að skipið hafi reynst ljómandi vel.
Gengur vel með tvö trollin
„Við erum nær eingöngu með tvö troll
úti og það virkar vel, skilar meiri afla.
Reyndar svolítið misjafnt eftir svæðum
og hvaða fisktegundir við erum að
veiða. Við erum nær eingöngu í þorski
og ufsa og svæðið okkar er aðallega frá
Víkurál og austur í Reykjafjarðarál. Við
erum ekkert mikið að spá í kvótann.
Okkur er bara sagt að veiða ákveðið
magn af ákveðnum tegundum og við
bara gerum það. Þetta er eins og fara
með innkaupalista út á sjó.“
Páll segir að hafa þurfi meira fyrir að
ná þorskinum en áður. Það sé minna af
honum á þessum miðum fyrir vestan.
Hann hafi líklega fært sig yfir til Græn
lands, þar sé nóg að éta en minna fyrir
hann að hafa hér. Þess vegna fari þorsk
urinn eitthvert annað í ætisleit.
„En þetta fer að koma. Svo er ufsinn
dyntóttur og hefur alla tíð verið. Stund
um er mikið af honum og stundum lítið.
Það er því erfitt að meta hvort meira eða
minna sé af honum. Hann er bara þannig
fiskur,“ segir Páll.
Vel gengur á nýjum Páli Pálssyni ÍS
Komnir í 6.000 tonn á árinu
■ Páll Halldórsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS.
■ Skipið kom nýtt til landsins í sumarbyrjun 2018 og hefur fiskað vel frá því það
hóf veiðar. Páll Pálsson ÍS er systurskip Breka VE og voru skipin smíðuð í Kína.
Togveiðar