Ægir - 2019, Page 19
19
geyma hana, aðrar geymslu
aðferðir voru ekki til. Í dag
þarf ekki að láta hana hanga
heldur er miklu einfaldara að
geyma hana bara í frysti þar
til hún er soðin.“
Karlmennskuþor
og brennivín
Vestfirðingar hafa löngum
verið þekktir fyrir áhuga
sinn á kæstri skötu og það er
einmitt vestfirska útgáfan af
þessum illa þefjandi brjósk
fiski sem hefur orðið hvað
vinsælust á Þorláksmessu.
Það þykir nokkur karl
mennskubragur á því að
snæða skötuna sem allra
mest kæsta og til að koma
henni sem best niður um vél
indað er oft brugðið á það
ráð að deyfa bragðlaukana
með rótsterku brennivíni. Þá
er kátt hjá körlum.
Ofveidd dýrategund
Skata (Dipturus batis) er
mjög stór skötutegund, yfir
leitt um 100 til 150 cm löng,
en hún getur náð næstum 3
m lengd. Skatan var nokkuð
algeng á Íslandsmiðum en
hefur verið ofveidd þar sem
aflinn er nú aðeins um 10%
af því sem hann var fyrir 50
árum. Það er ekkert afla
mark á skötu enda er hún
aðallega meðafli við aðrar
veiðar. Skata finnst allt í
kringum landið en er mun
sjaldgæfari í kalda sjónum
norðan og austan við landið.
Skata er yfirleitt meðafli í
veiðarfærum og árlega veið
ast um 200 tonn. Skatan
finnst á breiðu dýptarsviði,
frá 10 til 1000 m dýpi, oftast
milli 100 og 200 m en grynnra
yfir sumartímann.
Alls ekki úldin!
Það er algeng trú að Íslend
ingar borði úldna skötu en
það er ekki rétt.Skatan er
ekki úldin! Við kæsinguna
brotna þvagefnin í fiskinum
niður í sterklyktandi amm
oníaksambönd en þar geta
skaðlegar bakteríur, sem
valda úldnun, alls ekki þrifist
vegna þess hve sýrustigið er
hátt. Hákarlinn er unninn á
svipaðan hátt en hann er
borðaður hrár en skatan er
soðin.
Mörgum finnist skatan herramannsmatur en einhverra
hluta vegna er hún nær einungis snædd á Þorláksmessu 23.
desember ár hvert. Og þá eru jólin komin.
Jólin og fiskmetið