Morgunblaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2020
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
„VIÐ ÆTTUM AÐ HRINGJA Á UNDAN
OKKUR. HANN ÞOLIR EKKI ÞEGAR FÓLK
„DROPPAR” VIÐ.”
„ÉG ÞARF AÐ TAKA AÐRA RÖNTGENMYND.
ÞESSI ER SVO YFIRLÝST.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að læra á snjóbretti
fyrir hana.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG Á SLÆMA
DAGA …
ÉG Á GÓÐA
DAGA …
OG ÉG Á
FRÁBÆRA DAGA!
HRÓLFUR, ÆTLAR
ÞÚ MEÐ MÉR Á
ÍBÚAFUNDINN?
OJ! HELST EKKI … ÞÚ
VEIST AÐ ÉG ÞOLI EKKI
AÐ „SPJALLA VIÐ FÓLK”!
EINMITT … OG ÞEGAR ÞÚ „SPJALLAR VIÐ
FÓLK” BRJÓTAST OFT ÚT SLAGSMÁL
OG SKÆRUR!
Sigrún Árnadóttir skrifstofumaður.
Sonur þeirra er Ingvi Karel, f. 2017;
3) Finnur Gíslason, f. 24.3. 1982,
byggingarverkfræðingur, búsettur í
Reykjavík. Maki: Soffía Hauksdóttir
byggingarverkfræðingur. Börn
þeirra eru Ingibjörg Ösp, f. 2007,
Halldór, f. 2011, Lóa, f. 2017.
Systkini Gísla Karels eru Halla
Halldórsdóttir, f. 25.3. 1948, ljós-
móðir, búsett í Kópavogi; Jóhanna
Hallgerður Halldórsdóttir, f. 13.2.
1953, kaupmaður, búsett í Grundar-
firði; Jóhannes Finnur Halldórsson,
f. 18.12. 1954, viðskiptafræðingur,
búsettur á Akranesi; Halldór Páll
Halldórsson, f. 29.8. 1957, skóla-
meistari, búsettur á Laugarvatni;
Guðrún Halldórsdóttir, f. 4.6. 1960,
hjúkrunarfræðingur, búsett í
Reykjavík; Sólrún Halldórsdóttir, f.
31.5. 1964, hagfræðingur og lista-
maður, búsett í Kópavogi; Svein-
björn Halldórsson, f. 29.7. 1965, raf-
magnstæknifræðingur, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Gísla Karels: Hjónin
Halldór Finnsson, f. 2.5. 1924, d. 7.4.
2001, sveitarstjóri og sparisjóðsstjóri
í Grundarfirði, og Pálína Gísladóttir,
f. 27.1. 1929, fyrrverandi kaupmaður,
búsett í Grundarfirði.
Gísli Karel
Halldórsson
Jónína Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Vindási
Jón Jóhann Kristjánsson
bóndi á Vindási í Eyrarsveit
Jóhanna Hallgerður Jónsdóttir
húsfreyja á Grund
Gísli Karel Elísson
bóndi á Grund í Eyrarsveit og
verkamaður í Grundarfirði
Pálína Gísladóttir
kaupmaður í Grundarfirði
Vilborg Jónsdóttir
húsfreyja á Vatnabúðum
Elís Gíslason
bóndi og sjómaður á
Vatnabúðum í Eyrarsveit
Freyja Finnsdóttir
úsfreyja í Stykkishólmi
veinbjörn Finnsson
stýrimaður í Rvík
h
Finnur Jónsson
athafnamaður
SFinnur Sveinbjörnsson
fv. bankastj. Arion banka
Dagfríður Finnsdóttir
ennari í Vestmannaeyjum
og á Selfossi
Hjalti Þórarinsson
rafmagns-
verkfræðingur
hjá Marel
k
Pétur Guðjónsson
rafmagnsverkfr.
hjá Marel
Halla
Halldórsdóttir
ljósmóðir í
Kópavogi
Hólmfríður
Gísladóttir húsmóðir
og ættgreinir í Rvík
Kjartan Eggertsson
aðstoðarskólastjóri
Tónskóla Hörpunnar
Dagfríður Ingibjörg
Jóhannsdóttir
húsfreyja á Kvíabryggju
Halldór Indriðason
bóndi og sjómaður á
Kvíabryggju í Eyrarsveit
Halla Halldórsdóttir
húsfreyja á Spjör og
í Grundarfirði
Finnur Sveinbjörnsson
skipstjóri á Spjör í
Eyrarsveit og Grundarfirði
Guðný Margrét Árnadóttir
húsfreyja á Hellnafelli
Sveinbjörn Finnsson
bóndi á Hellnafelli í Eyrarsveit
Úr frændgarði Gísla Karels Halldórssonar
Halldór Finnsson
sveitarstjóri og
sparisjóðsstjóri í Grundarfirði
Þessi staka Péturs Stefánssonarer undragóð:
Megi ævin ljúf og létt
leika við þig hverju sinni.
Settu aldrei svartan blett
á síðurnar í lífsbók þinni.
Ármann Þorgrímsson orti á
fimmtudag 28. maí „nokkuð sáttur“:
Þó að fenni í flest mín spor
fáa held ég saki
en áttatíu og átta vor
á ég mér að baki.
Honum þykir „gott að leggja sig
aðeins eftir hádegismatinn“:
Er að morgni stundum stúrinn
straumlaus eftir langa nótt.
Mér finnst ég í miðdags lúrinn
mikla orku geta sótt.
Indriði á Skjaldfönn yrkir „öf-
ugmælavísu“:
Framtíð sjáum, blíða, bjarta,
ef Bessastaða fellum höld.
Það er engin þörf að kvarta
þegar Franklín tekur völd.
Enn fer Indriði á Skjaldfönn með
öfugmælavísu og telur besta öf-
ugmælavísna þessa eftir snillinginn
Jakob Jónsson á Varmalæk í
Borgarfirði:
Íslendingar Davíð dá,
dyggðir mannsins prísa,
en þetta er, eins og allir sjá,
öfugmælavísa.
Spurt var, hvort vísan væri um
Davíð á Arnbjargarlæk, og sagt
vafalaust.
Jón Atli Játvarðarson skrifar á
laugardag að „þetta gætu allt eins
verið eftiráskýringar við Kast-
ljósþátt. Kom upp í svarfærslu
tengdri honum; Kári og Svandís,
nema hvað“:
Fréttamiðill fyrst um veit,
flaut þar sem úr krana.
Ljónið nöðru í nárann beit
og náði að sveigja hana.
Hallmundur Kristinsson skrifar:
„„Sefur sól hjá Ægi“ hljómar í út-
varpinu.
Rifjast þá upp fyrir mér staka
sem ég einhvern tíma bögglaði
saman“:
Undir fótinn Ægir gefur,
og í mestu frostunum
oft hjá honum sólin sefur.
Sú er laus á kostunum!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lífsbókin og
öfugmælavísur