Morgunblaðið - 03.06.2020, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2020
Gáð til veðurs Fjölmargir voru á ferðinni um hvítasunnuhelgina, mannfólk sem fjórfætlingar. Þessi hundur í Borgarnesi brá sér upp á borð og virti fyrir sér mannlífið utan girðingar.
Eggert
Víðtækar aðgerðir stjórnvalda
til að draga úr efnahagslegum
áhrifum kórónuveirunnar á heim-
ili og fyrirtæki hafa verið mögu-
legar vegna sterkrar stöðu ríkis-
sjóðs. Þrátt fyrir stóraukin
útgjöld ríkisins á síðustu árum
tókst að lækka skuldir sem eru og
verða með því lægsta sem þekkist
meðal ríkja OECD. Skynsamleg
stefna í ríkisfjármálum skilaði ár-
angri.
Seðlabankinn dregur upp
ágæta mynd af umfangi aðgerðanna sem ætlað
er að styðja við fyrirtæki og launafólk, örva
efnahagslífið um leið og skotið er nýjum stoðum
undir atvinnulífið. Með skattalegum aðgerðum,
beinum fjárstuðningi, auknum fjárfestingum,
umfangsmiklum endurgreiðslum vegna rann-
sókna og þróunar til að efla nýsköpun, er um-
fang ráðstafana í ríkisfjármálum talið yfir 350
milljarðar króna. Í Peningamálum bankans
kemur fram að þetta samsvari 11,9% af vergri
landsframleiðslu síðasta árs. Sé aðeins horft til
aðgerða sem fela í sér bein áhrif á afkomu ríkis-
sjóðs er umfangið um 4,2% af landsframleiðslu
sem er svipað og stjórnvöld í Noregi og Dan-
mörku hafa kynnt.
500 milljarða halli
Seðlabankinn reiknar með að samdráttur
efnahagslífsins á þessu ári geti orðið um 8%.
Rætist spáin er efnahagssamdrátturinn sá
mesti hér á landi frá árinu 1920. Afleiðingar far-
sóttarinnar hefðu orðið mun alvarlegri fyrir
heimili og fyrirtæki ef ekki hefðu komið til um-
fangsmiklar aðgerðir á sviði ríkisfjármála og
peningamála en Seðlabankinn
hefur gripið til róttækra aðgerða
á því sviði og aldrei hafa vextir
bankans verið lægri.
Ekkert er án kostnaðar og lík-
legt er að hallinn á ríkissjóði verði
yfir 300 milljarðar króna á þessu
ári. Á komandi ári má búast við
hallarekstri, þótt efnahagslífið
taki vonandi hressilega við sér
líkt og flestir hagfræðingar eru
sammála um. Samanlagður halli
ríkissjóðs á þessu og næsta ári
verður varla undir 500 milljörðum
króna, að óbreyttu.
Eins og við var að búast eru margir með ein-
faldar lausnir á vandanum. Það á að fjölga ríkis-
starfsmönnum og hækka skatta á einstaklinga
og fyrirtæki. Með öðrum orðum; auka á umsvif
ríkisins og leggja þyngri byrðar á launafólk og
fyrirtæki. Vinnumarkaðsrannsókn Hagstof-
unnar, sem birt var í síðustu viku, breytir engu
í hugum þeirra sem berjast fyrir aukinni ríkis-
væðingu og telja að ríkið sé uppspretta og endir
allra verðmæta.
109 þúsund manns
Niðurstöður Hagstofunnar sýna hve alvarleg
áhrif kórónuveiran hefur haft á íslenskt at-
vinnulíf. Í apríl síðastliðnum voru rúmlega 22
þúsund færri starfandi á vinnumarkaði en í
sama mánuði fyrir ári. Liðlega fimm þúsund
fleiri voru án atvinnu og þeim sem eru utan
vinnumarkaðar fjölgaði um 17.500. Alls voru
rúmlega 62 þúsund utan vinnumarkaðar í apríl
og nær 14 þúsund atvinnulausir. Alls tæplega
76 þúsund manns.
Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofn-
unar voru í apríl um 33 þúsund í skertu starfs-
hlutfalli í hlutabótaúrræðum. Þetta þýðir að um
109 þúsund manns voru ýmist utan vinnumark-
aðar, atvinnulausir eða í hlutabótastarfi. Þetta
er um 42% af áætluðum mannfjölda 17-74 ára.
Til lengdar stendur engin þjóð undir því að
vinnuafl sé vannýtt með þessum hætti.
Verkefnið er því skýrt. Við þurfum að fjölga
störfum – tryggja vinnufúsum höndum arðbær
verkefni. Þau verkefni eru fyrst og síðast í við-
skiptahagkerfinu en ekki innan veggja ríkisins.
Á komandi mánuðum, misserum og árum
markast átakalínur stjórnmálanna ekki síst af
viðhorfi til frjáls viðskiptalífs annars vegar og
aukinnar ríkisvæðingar hins vegar. Alveg með
sama hætti og tekist verður á um hækkun eða
lækkun skatta, aukin ríkisútgjöld eða hagræð-
ingu í ríkisrekstri.
Það mun reyna á okkur sem höfum staðið
vörð um frjálsa samkeppni, sjálfstæða atvinnu-
rekandann og frumkvöðulinn sem sækir fram í
krafti nýrra hugmynda. Skipulega hefur verið
grafið undan viðskiptalífinu með því að tor-
tryggja allt og alla – ala á öfund í garð þeirra
sem af dugnaði hafa byggt upp glæsileg fyrir-
tæki. Í framtíðinni verður varðstaða okkar að
verða harðari, skipulagðari og markvissari en
nokkru sinni áður. Í einfaldleika sínum eigum
við að taka okkur stöðu með verðmætasköpun,
fjölgun starfa og bættum lífskjörum.
Sérstakt fagnaðarefni
Með sama hætti verðum við að hafa pólitískt
þrek til að standa gegn hugmyndum um aukin
ríkisútgjöld og hafa burði til að berjast fyrir
hagkvæmari nýtingu sameiginlegra fjármuna
og eigna. Það verður fyrst og síðast gert með
nýsköpun og nýrri hugsun í opinberum
rekstri, útvistun verkefna og auknu samstarfi
hins opinbera og einkaaðila.
Þessu tengt. Skilningur á nauðsyn þess að
gæta hófsemdar í álögum á fyrirtæki og ein-
staklinga er takmarkaður. Við sem teljum
nauðsynlegt að koma böndum á skattagleði
hins opinbera þurfum auðvitað að draga fram
staðreyndir. Halda því til haga að skattbyrði á
Íslandi, sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu, er sú þriðja þyngsta í Evrópu að teknu
tilliti til lífeyris- og almannatrygginga. En
staðreyndir duga ekki, það þarf að setja þær í
samhengi við lífskjör almennings. Við verðum
að læra að setja skattheimtu og reglubyrði í
samhengi við samkeppnishæfni atvinnulífsins,
fjölda starfa og möguleika fyrirtækja til að
standa undir góðum launum og bættum lífs-
kjörum.
Í þeim efnahagslegu þrengingum sem við
Íslendingar glímum við, líkt og aðrar þjóðir, er
fátt til að gleðjast yfir. En í erfiðleikum leynast
oft tækifæri eins og stjórnvöld hafa skynjað og
því lagt aukna áherslu á stuðning við nýsköpun
og fjölbreyttara atvinnulíf. Áskoranir komandi
ára leiða einnig til þess að skarpari skil verða í
stjórnmálum – krafa um skýrar hugmyndir
verður meiri. Fyrir talsmenn atvinnulífsins,
hófsemdar í skattheimtu og takmarkaðra
ríkisafskipta er það sérstakt fagnaðarefni.
Eftir Óla Björn Kárason » Áskoranir komandi ára
leiða til þess að skarpari
skil verða í stjórnmálum.
Fyrir talsmenn hófsemdar
í skattheimtu er það
sérstakt fagnaðarefni.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Krafa um skýrar hugmyndir