Morgunblaðið - 26.06.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 26.06.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með áralanga reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151tímapantanir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ríkið mun veita minkaræktinni í landinu stuðning til að bændur geti fóðrað dýrin. Sárafá skinn af fram- leiðslu síðasta árs hafa selst vegna kórónuveirufaraldursins enda erfitt að halda uppboð við þessar aðstæð- ur. Formaður Sambands íslenskra loðdýrabænda telur að stuðningur ríkisins í ár geri það að verkum að þeir bændur sem eftir eru geti hald- ið velli. Landbúnaðarráðherra, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra og umhverfisráðherra kynntu minn- isblað um framtíð minkaræktarinn- ar í ríkisstjórn í fyrradag. Kristján Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra segir að ríkisstjórnin hafi fallist á tillögur þeirra um að styðja tíma- bundið við bakið á greininni, til að reyna að fleyta henni yfir þennan erfiða hjalla. „Það er gert meðal annars á forsendum dýravelferðar en ekki síður á grundvelli nýtingar lífræns úrgangs og áhrifa hennar á loftslagsmál,“ segir Kristján Þór. Hann segir að einboðið sé að nýta kosti loðdýraræktarinnar til að eyða lífrænum úrgangi frá matvælafram- leiðslu enda sýni úttektir að þetta tvennt fari ágætlega saman. Stuðningurinn felst í því að reynt verður að tryggja 80 milljóna króna framlag á þessu ári sem rynni til fóðurstöðvanna til að tryggja að bú- in fái fóður fyrir minkana. Jafn- framt eru áform um annan eins stuðning síðar. Báðir styrkirnir eru tengdir umhverfissamningum sem gerðir verða við bændur, að sögn ráðherra. Laskaðir vegna kreppu Einari Eðvald Einarssyni, minka- bónda í Skagafirði og formanni Sambands íslenskra loðdýrabænda, líst vel á ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar. Mikil þörf sé á að aðstoða þá bændur sem eftir eru og ekki síður að fá viðurkenningu á umhverfis- þættinum. Segist hann sannfærður um að fóðurstöðvar séu frábær vett- vangur til að nýta úrgang frá mat- vælaframleiðslu. Þar sé hægt að framleiða loðdýrafóður og eftir at- vikum aðrar vörur. Vegna gegndarlausrar offram- leiðslu á minkaskinnum í heiminum var heimsmarkaðsverð afar lágt á árinu 2016-2019 og undir fram- leiðslukostnaði skinna. Einar segir að samdráttartímabilið hafi ekki verið jafn langt síðustu áratugi. Framleiðslan dróst saman, meðal annars minnkaði framleiðslan hér á landi um meira en helming, og segir Einar að menn hafi farið inn í þetta ár með væntingar um gott afurða- verð. Það hefur ekki ræst enda ekki ekki hægt að halda uppboð með kaupendum frá Kína og öðrum markaðssvæðum vegna kórónu- veirufaraldursins og útlit fyrir að það verði ekki fyrr en í haust, í fyrsta lagi. Netuppboð sem reynd hafa verið í staðinn hafa ekki skilað miklu. Staðan núna er sú að bændur eru nánast tekjulausir þótt árið sé hálfn- að og koma auk þess lemstraðir út úr kreppu á markaðnum. Megnið af framleiðslunni er óselt. „Stuðningur ríkisstjórnarinnar ætti að tryggja að þeir sem eftir er halda velli og von- andi tekst að finna góðan grundvöll fyrir umhverfissamning sem við og þjóðin nýtur góðs af,“ segir Einar. Vonast til að greinin haldi velli Morgunblaðið/Björn Jóhann Minkur Einar E. Einarsson er einn af tíu minkabændum sem eftir eru í landinu.  Minkabændur eiga ekki fyrir fóðri vegna faraldursins  Ekki hægt að selja framleiðslu síðasta árs  Ríkið aðstoðar við fóðurkaup og undirbýr samning um nýtingu úrgangs frá matvælaframleiðslu Kjörsókn utan kjörfundar í forseta- kosningum hefur aldrei verið betri í Íslandssögunni, en 43.581 hafði kos- ið um fimmleytið í gær. Þegar jafn- langt var í kosningar árið 2016 höfðu rúmlega 36 þúsund manns greitt at- kvæði og á sama tíma árið 2012 voru atkvæðin 30.300 talsins. „Þetta eru fjölmennustu kosning- arnar sem hafa verið utan kjör- fundar. Enda er það ekkert skrýtið þar sem forsetakjör er um hásumar. Margir sem eru að kjósa núna höfðu ætlað sér að fara út úr bænum,“ sagði Bergþóra Sigmundsdóttir, kjörstjóri sýslumannsins á höfuð- borgarsvæðinu. Kosið verður til forseta á morgun, laugardag, og eru þeir Guðni Th. Jó- hannesson, sitjandi forseti, og Guð- mundur Franklín Jónsson, við- skipta- og hagfræðingur, í framboði. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer nú fram á þremur stöðum á höf- uðborgarsvæðinu, í Smáralind ann- ars vegar og undir stúkunni á Laug- ardalsvelli í húsnæði KSÍ hins vegar. Hvorugur forsetaframbjóðend- anna mun halda kosningavöku op- inberlega fyrir stuðningsmenn að kvöldi kjördags líkt og verið hefur. Talsmaður Guðna Th. Jóhann- essonar sagði í samtali við mbl.is að forsetinn muni fylgjast með gangi mála í góðra vina hópi. Þá sagðist Guðmundur Franklín Jónsson, mót- frambjóðandi Guðna, að hann eigi von á því að stuðningsmenn um allt land muni halda sínar eigin veislur. Aldrei fleiri kosið utan kjörfundar  Tæplega 44 þúsund greitt atkvæði Morgunblaðið/Eggert Kjörstaður Metfjöldi greiddi atkvæði utan kjörfundar í ár. Snorri Másson snorrim@mbl.is 80 starfsmönnum kísilverksmiðju PCC á Bakka var í gær sagt upp störfum og hefur fyrirtækið ákveðið að stöðva tímabundið framleiðslu sína í verksmiðjunni. Rúnar Sigurpálsson, forstjóri kísilverksmiðjunnar sagði í samtali við mbl.is í gær að aðgerð- irnar væru nauðsynlegar og ekki ráð- ist í þær af léttúð. Segir Rúnar það hafa verið þverskurð af fólki í fyrir- tækinu sem var sagt upp. Í fréttatilkynningu frá PCC sagði að kórónuveirufaraldurinn hefði rask- að heimsmarkaði með kísilmálm og haft veruleg neikvæð áhrif á verð og eftirspurn. Því hefðu stjórnendur PCC-Bakka ákveðið að stöðva fram- leiðsluna tímabundið þar til markað- urinn næði sér á strik. Sagði einnig að félagið hefði leitað allra leiða til þess að halda framleiðslunni gangandi við þessar aðstæður, en óvissa í heims- hagkerfinu kallaði á þessar aðgerðir. Þá verður slökkt á báðum ofnum verksmiðjunnar í lok júlí. Erfitt að spá um framhaldið Rúnar segist binda vonir við að geta ráðið fólkið aftur til starfa: „Ég vona að ég nái að endurheimta mitt fólk til baka. Það er ekkert flóknara en það.“ Hann segir erfitt að skera úr um hve lengi ástandið á markaðnum vari. „Hvort þetta verði sex mánuðir eða tólf mánuðir eða eitthvað annað get ég ekki sagt til um. Við erum að kljást við alheimsfaraldur í augna- blikinu sem enginn veit í sjálfu sér hve lengi mun vara,“ segir hann. Rúnar segir að til þess að hægt verði að fara aftur af stað með fram- leiðsluna þurfi fyrirtækið að sjá tals- verða breytingu á verðinu frá því sem nú er. „Mín reynsla af hrávörumark- aðnum er þó sú að þegar viðskiptin byrja eru þau mjög öflug, þannig að ég er að vona að sú hegðun muni ekk- ert breytast,“ segir Rúnar. Viðhald og endurbætur út ágúst Slökkt verður á ofnunum í júlí en félagið mun sinna viðhaldi og endur- bótum á hreinsivirki verksmiðjunnar, sem felur meðal annars í sér að hluti þaksins verður fjarlægður og nýjum tækjabúnaði komið fyrir. Þessari vinnu ætti að vera lokið í ágústlok. 80 starfsmönnum PCC sagt upp  Faraldurinn hefur haft mjög neikvæð áhrif á eftirspurn Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Kísilverksmiðjan á Bakka Áttatíu starfsmönnum kísilverksmiðju PCC á Bakka var sagt upp í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.