Morgunblaðið - 26.06.2020, Page 4

Morgunblaðið - 26.06.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Björn H. Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorpu, hefur stefnt fyrirtækinu vegna starfsloka sinna hjá því. Tel- ur hann uppsögn- ina ólögmæta og krefst skaðabóta sem svara til fimm ára launa, miskabóta og að réttindi vegna námsleyfis verði gerð upp. Alls krefur Björn Sorpu um ríflega 167 milljónir króna auk vaxta og dráttarvaxta. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þriðjudag- inn 30. júní. Birni var sem kunnugt er sagt upp störfum í febrúar síðastliðnum. Í til- kynningu frá stjórn Sorpu um starfs- lokin var sagt að ákvörðun um þau ætti sér meðal annars stoð í nýlegri skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um stjórnar- hætti og áætlanagerð vegna gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi. Þar voru gerðar alvarlegar athugasemdir við störf Björns hvað varðaði upplýs- ingagjöf og gerð kostnaðaráætlanar. Síðasta haust kom fram að kostnaður við gas- og jarðgerðarstöðina í Álfs- nesi og tækjabúnaðar í stækkaða móttökustöð í Gufunesi hefði saman- lagt farið 1,3 milljörðum króna fram úr áætlun. Björn hafði áður verið sendur í leyfi á meðan skýrslan var til skoðunar innan stjórnar Sorpu. Í stefnu Björns, sem Morgunblað- ið hefur undir höndum, sakar hann stjórn Sorpu um að skjóta sér undan ábyrgð á áðurnefndum framkvæmd- um. Segir hann að innri endurskoð- andi Reykavíkurborgar hafi verið vanhæfur til að fjalla um málið vegna fjölskyldutengsla við helsta keppi- naut Sorpu. Fram kemur að Birni hafi verið boðið samkomulag um starfslok en við umræður hafi ekki verið fallist á að greiða honum níu mánaða náms- leyfi. Þá hafi formaður og varafor- maður stjórnar Sorpu, Birkir Jón Jónsson og Líf Magneudóttir, lýst vantrausti á framkvæmdastjórann þar eð hann hefði gerst brotlegur í starfi. Óskuðu þau eftir andmælum en áður en hann skilaði þeim var Björn sendur í leyfi. „Þessi aðgerð var sérstaklega meiðandi, enda fá- heyrt að opinberir aðilar beiti slíku óyndisúrræði nema í alvarlegustu til- vikum,“ segir í stefnunni. Björn rekur að hann hafi hlotið áminningu hinn 7. febrúar. Í þeirri áminningu hafi falist að veita bæri honum „tíma og tækifæri til að bæta ráð sitt“ áður en gripið yrði til upp- sagnar. Það var ekki virt og Birni var sagt upp störfum fimm dögum síðar. Telur Björn að uppsögnin hafi ver- ið annmörkum háð. Hún hafi verið saknæm og ólögmæt og valdið hon- um fyrirsjáanlegu tjóni. Samkvæmt kjarasamningi geti ekki staðist að veita starfsmanni áminningu og segja honum síðan upp störfum á grundvelli sömu saka, án þess að hann hafi nokkuð af sér brotið í milli- tíðinni. Jafnræðis og meðalhófs hafi ekki verið gætt. Tiltekur Björn fjöl- mörg dæmi um stórkostlega framúr- keyrslu við opinberar framkvæmdir síðustu ár, til að mynda Braggann í Nauthólsvík, Gröndalshús og við- byggingu við Sundhöll Reykjavíkur en þau hafi ekki kallað á beitingu agaviðurlaga gagnvart starfsmönn- um, ekki einu sinni í formi áminn- ingar. Krefst Björn ríflega 21 milljónar vegna launa í námsleyfi, 144 milljóna vegna ólögmætrar uppsagnar og tveggja milljóna í miskabætur. Beittu „sérstaklega meiðandi“ aðferðum  Björn krefst 167 milljóna vegna uppsagnar hjá Sorpu bs. Björn H. Halldórsson Morgunblaðið/Eggert Umdeild Hin nýja gas- og jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi reyndist dýr. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Það hefur eiginlega enginn stigið inn á þriðju hæðina vegna þess að gólfið heldur ekki. Þetta hús er rosa- lega erfitt, það er bara þannig,“ sagði Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlög- regluþjónn um brunann á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs í samtali við blaðamann í gærkvöldi. Þá taldi lögregla sig ekki vera búna að fullleita í húsinu. Stór hluti fólksins sem býr í hús- inu er af erlendu bergi brotinn, að sögn Ásgeirs, sem getur þó ekki full- yrt um að allir sem þar búi séu af er- lendu bergi brotnir. „Stór hluti af fólkinu sem býr þarna og ég hef rætt við eru erlendir ríkisborgarar.“ Um leið og lögregla kom á staðinn óskaði hún eftir aðstoð Rauða kross- ins við að veita áfallahjálp. „Við kölluðum strax út fólk frá Rauða krossinum. Við erum svo heppin að Rauði krossinn bregst alltaf við og tekur á móti fólkinu svo við getum hugsað um okkar eigið fólk,“ sagði Ásgeir. Rannsókn á upptökum brunans hófst strax en tildrög hans eru enn á huldu. „Við byrjum strax að taka myndir, fylgjast með og skrásetjum allt sem gerist og þar fram eftir göt- unum. Rannsókn hefst bara um leið og útkall berst,“ sagði Ásgeir. Staða handteknu til skoðunar Þrír voru handteknir á vettvangi. Spurður hvort þá sé uppi grunur um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað segir Ásgeir: „Þeir voru bara á og við vettvanginn og við erum bara að skoða hvaða tengingu þeir hafa við þetta húsnæði.“ Ekki er ljóst hvort þeir handteknu séu íbúar hússins. Húsið hefur áður verið til umræðu í fjölmiðlum en árið 2015 lýsti íbúi yfir mikilli óánægju með aðbúnað þar. Húsið er í eigu verktaka en Ben- jamin Julian, samskiptafulltrúi Efl- ingar, sagði í gær að starfsfólk starfsmannaleigunnar Seiglu dveldi þar. Stéttarfélagið hafði haft áhyggj- ur af aðbúnaði starfsmannanna, sem eru félagsmenn Eflingar, síðan í fyrra, að sögn Benjamins. „Við höf- um alltaf sagt að það væri möguleiki á að þetta myndi gerast. Það er mjög sárt að þetta skyldi gerast áður en við gátum gripið til aðgerða.“ Halla Rut Bjarnadóttir, eigandi Seiglu, sem einnig var einn af eig- endum starfsmannaleigunnar Manna í vinnu sem Efling hefur átt í málaferlum við, segir hins vegar af og frá að starfsmenn leigunnar hafi dvalið í húsinu. „Ég hef ekkert með þetta hús að gera. Efling heldur áfram að ljúga upp á mig endalaust og það er óþol- andi,“ segir Halla Rut. „Þetta hús er rosa- lega erfitt“  Töldu sig ekki hafa leitað í húsinu til fulls í gær  Húsið áður í fjölmiðlum Morgunblaðið/Ásdís Tunga Miklar eldtungur stóðu út um glugga hússins sem eyðilagðist algjörlega. Tveir stukku út um glugga þess. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átök slökkviliðsmanna Mikinn kraft þurfti í að ráða niðurlögum eldsins. Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa BRÚÐKAUPS MYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.