Morgunblaðið - 26.06.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Brúarholt II, Grímsnes- og Grafnhr, fnr. 226-7854 , þingl. eig. Þb. Sog-
ið Grímsnesi ehf., gerðarbeiðendur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og
Grímsnes-og Grafningshreppur og Vátryggingafélag Íslands hf. og
Skálpi ehf. og Ekran ehf. og Árvirkinn ehf., mánudaginn 29. júní nk. kl.
09:30.
Galtalækjarskógur, Rangárþing ytra, fnr. 219-6847 , þingl. eig. Váttur
ehf., gerðarbeiðandi þb.Steingrímur Wernersson, mánudaginn 29.
júní nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
22. júní 2020
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hvammur, Akureyri, fnr. 215-6376 , þingl. eig. Kristján Ingimar Ragn-
arsson, gerðarbeiðendur ÍL-sjóður og Akureyrarbær, fimmtudaginn
2. júlí nk. kl. 12:00.
Lækjarvegur 6, Langanesbyggð, fnr. 216-7907 , þingl. eig. Sara
Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og
Langanesbyggð, miðvikudaginn 1. júlí nk. kl. 12:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
25. júní 2020
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Akurey 2, Rangárþing eystra, fnr. 219-2890 , þingl. eig. Gísli Davíð
Sævarsson og Ingunn Elfa Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Byggða-
stofnun, þriðjudaginn 30. júní nk. kl. 10:00.
Akurey 3, Rangárþing eystra, fnr. 219-2885 , þingl. eig. Ingunn Elfa
Gunnarsdóttir og þb. Gísli Davíð Sævarsson, gerðarbeiðandi Byggða-
stofnun, þriðjudaginn 30. júní nk. kl. 10:05.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
23. júní 2020
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðb. kl. 9-16.
Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Kaffisala kl. 14:45 – 15:30. A
llir velkomnir í Félagsstarfið sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50.
Púttvöllurinn og Hæðarvellir opnir öllum allan daginn. Hádegismatur
kl. 11:30. Tæknilæsinámskeið kl.13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum
eftir Samfélagssáttmálanum, og þannig tryggjum góðan árangur
áfram. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13:45 -15:15. Dansleikfimi Sjál kl. 9:30.
Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00.
Gerðuberg 3-5 kl. 08:30-16:00 Opin handavinnustofa kl. 10:00-12:00
Prjónakaffi
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 08.00 Billjard kl. 08.00 Línudans kl.
10.30 Bridga kl. 13.00 Boccia kl 13.30
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Kennsla í notkun snjalltækja 10:30. Gönguferð
kl. 13:30/Bíódagur ,,Afinn" kl. 13:15.
Korpúlfar Gönguhópar gengnir frá Borgum og inni í Egilshöll kluk-
kan 10:00. Endilega mætið í vöfflukaffi klukkan 14:30 í Borgum.
Minnum á ferðina á slóðir Skáld-Rósu farið af stað stundvíslega
klukkan 09:00 frá Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, klukkan 13:30, verður haldið stórt
sumarbingó á Vitatorgi. Spjaldið kostar 350 kr. & 3 spjöld á 1000 kr.
Eingöngu verður tekið við reiðufé. Vinningar verða t.d. frá Borgar-
leikhúsinu, Dressman, 66° Norður, 17 sortum, Matarkjallaranum,
Bjarti og Veröld, Sölku & Hótel Örk. Þá verður vöfflukaffi í framhaldi af
því. Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59! Síminn hjá okkur er
411-9450.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag föstudaginn 26.júní. Kl. 10:30 kaffisp-
jall í króknum. Kl. 11:00 leikfimi í salnum á Skólabraut. Kl. 13:30 er
samsöngur í salnum á Skólabraut. Kl. 14:00 er menning og
skemmtun í salnum á Skólabraut. Hlökkum til að sjá ykkur.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Auðbrekka 2, Kópavogur, fnr. 205-8813 , þingl. eig. Þb. HÆ ehf.,
gerðarbeiðendur Kópavogsbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 30. júní nk. kl. 10:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
25 júní 2020
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
með
morgun-
Smá- og raðauglýsingar
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Þegar við kveðj-
um okkar góða vin,
Jóhann Líndal,
rifjast upp að það
eru 30 ár frá okkar fyrstu
kynnum. Við vorum svo heppin
að þegar við kynntumst þeim
hjónum á Spánarströnd þá voru
þau í næsta nágrenni við okkur
og líka nokkur hópur Íslend-
inga sem við kynntumst vel.
Þessi hópur var óvenju sam-
stæður og áttum við ánægju-
legar samverustundir sem ein-
kenndust af glaðværð og allir
nutu sín við bestu aðstæður.
Þar var Jóhann fremstur í
flokki, hrókur alls fagnaðar.
Með tímanum fækkaði í hópn-
um af ýmsum ástæðum. Vorum
við ein eftir af gamla hópnum,
ásamt Jóhanni og Elsu, síðasta
haust.
Jóhann fæddist í Bolungar-
vík og var alinn þar upp í
stórum systkinahópi af móður
sinni, sem snemma varð ekkja.
Jóhann Líndal missti föður sinn
tveggja ára. Það verður að telj-
ast mikið afrek hjá þessari
ungu móður að koma upp 10
barna hópi eins og fátækt var á
þessum árum og sýndi dugnað
hennar, áræði og eljusemi.
Starfsferill Jóhanns var far-
sæll. Hann fór ungur til fram-
haldsnáms til Svíþjóðar og
gerðist rafveitustjóri í sínum
heimbæ, og löngu síðar raf-
veitustjóri í Keflavík.
Jóhann Líndal, þessi stóri,
sterki og myndarlegi maður,
var einstaklega hlýr og þægi-
legur í allri viðkynningu. Á
góðra vina fundi naut hann sín
best að segja sögur af félögum
sínum fyrir vestan, að ógleymd-
um öllum þeim vísum og ljóðum
sem hann hafði á hraðbergi.
Hann hafði líka óendanlega
gaman af að minnast veiðiferð-
anna sem hann fór með Sigga
vini sínum gegnum árin. Við
kveðjum okkar góða vin með
þökk fyrir allar ánægjustund-
irnar sem við höfum átt í gegn-
um árin.
Hjónaband þeirra Elsu og
Jóhanns var einkar farsælt og
hamingjuríkt og þau máttu svo
Jóhann Líndal
Jóhannsson
✝ Jóhann LíndalJóhannsson,
fæddist 25. nóv-
ember 1930. Hann
lést 23. apríl 2020.
Útför Jóhanns
fór fram 18. júní
2020.
sannarlega vera
stolt af sínum stóra
og myndarlega
barnahópi og
barnabörnum.
Við sendum
þeim okkar innileg-
ustu samúðar-
kveðjur frá Spáni.
Jón Þorvaldsson
og Sigrún Stella
Jónsdóttir.
Það er ár og dagur síðan við
Jóhann Líndal hittumst fyrst,
en skömmu síðar vorum við
saman í liði stuðningsmanna
Benedikts Þórarinssonar við
stofnun stúkunnar Sindra. Svo
fór nú að Benedikt féll frá langt
um aldur fram og var félögum
sínum harmdauði og þá var
vant um að ráða arftaka hans
og fór svo að Jóhann Líndal tók
við merkinu og bar það fram
um lengri tíma en flestir aðrir
hafa gert í viðlíka aðstöðu.
Þetta var vel valið eins og við
mátti búast af þeim hógværa og
rólynda mannasætti, kallað við
hátíðleg tækifæri „Diplomat“,
sem Jóhann var, en eins vel og
hann gerði sér grein fyrir
vanda stöðu sinnar þá gleymdi
hann aldrei uppruna sínum og
reiddi af þeim nægtabrunni
snjallra og oft gamansamra
ágætis samtíðarmanna vand-
lega vigtaðar smásögur þeirra
og annarra að „vestan“ og á
stundum kímilegar ambögur
sem engan meiddu og það virt-
ist aldrei vera neinn endir þess
fágæta og skemmtilega safns,
enda Jóhann alla tíð óviðjafn-
anlegur sögumaður að frásögn
og stílfærslu.
Merki sitt lét Jóhann ekki
niður uns það mátti í hendur
færa einstökum félagsmála-
manni, Gunnlaugi Karlssyni, en
þeir voru um langa tíð góðir
samstarfsmenn og er enda svo
að ekki verður Jóhanns minnst
að ekki bregði því tali til Elsu
konu hans svo samrýmd sem
þau voru um alla hluti og svo
skemmtilega vildi til að svo var
og um Guðmundu konu Gunn-
laugs og verður lengi í minnum
hafður ötull og óeigingjarn
stuðningur þeirra beggja við
störf og áhugamál bænda sinna.
Sannarlega er margs að
minnast frá samverunni með
þeim Suðurnesjamönnum, sem
allir voru önnum kafnir atorku-
menn og þar með sannarlega
talinn Jóhann Líndal sem for-
stöðumaður öflugs, en í þá veru
næsta ungs fyrirtækis, en gaf
sér þó alltaf tíma til að sinna
vinum sínum og félögum utan
anna vinnunnar.
Vini mínum Jóhanni Líndal
þakka ég langa og ánægjuríka
vináttu og við Jóhanna sendum
Elsu og öðrum ástvinum þeirra
Jóhanns samúðarkveðjur okkar
og allar góðar óskir að leið-
arlokum.
Einar Birnir.
Andlát Jóhanns Líndals,
kærs vinar okkar hjóna til
margra áratuga, kom ekki á
óvart. Þróttur hans og þrek síð-
ustu ævidaga var þrotið og
nokkuð ljóst að komið var að
kveðjustund.
Líndal var fæddur í Bolung-
arvík 25.11. 1930. Foreldrar
hans voru hjónin Jóhann Jóns-
son frá Vogarholti í Stranda-
sýslu og Lína Dalrós Gísladótt-
ir, fædd í Bolungarvík, mikil
dugnaðar- og atorkukona. Fað-
ir Líndals lést um aldur fram
eftir erfiða sjúkdómslegu. Sam-
vera þeirra hjóna varði aðeins í
níu ár. Það var því þung raun
fyrir 27 ára gamla konu að
standa ein uppi með sex börn,
öll á unga aldri, húsakynni
þröng, efni rýr, erfiðir tímar
fram undan og engar trygg-
ingar né lífeyrissjóðir að leita
til. Með mikilli útsjónarsemi,
sparnaði og agaðri stjórnun
tókst henni aðdáunarvel að
halda fjölskyldunni saman.
Systkini Líndals þurftu því
snemma að hjálpa til, draga í
bú, og er nokkuð víst að þessi
reynsla mótaði viðhorf þeirra
og kenndi þeim að fara vel með.
Leiðir okkar Líndals lágu
fyrst saman árið 1945. Hann
var þá léttadrengur í Hrauni í
Hnífsdal og flutti m.a. mjólk til
fjölmargra Ísfirðinga. Undirrit-
aður hjálpaði honum við af-
hendingu og fékk þess í stað að
sitja á hestakerrunni. Við átt-
um þá saman margar góðar
stundir, enda var hann einstak-
lega skemmtilegur og sögufróð-
ur.
Ungur að árum flutti Líndal
til Reykjavíkur og lærði m.a.
rafvirkjun í Reykjavík auk við-
bótarnáms í þeirri grein í Sví-
þjóð. Ekki er staður né stund
hér til að rekja farsælan starfs-
feril hans og aðkomu að orku-
málum í heimabæ hans Bolung-
arvík, þar sem hann var
stöðvarstjóri Reiðhjallavirkjun-
ar árin 1958-1965, en vísa þess í
fróðlega samantekt hans um
sögu raflýsingar í Bolungarvík
1921-1958.
Árið 1965 var honum boðin
staða rafveitustjóra Rafveitu
Njarðvíkur sem hann veitti for-
stöðu þar til hann gerðist
starfsmaður Hitaveitu Suður-
nesja allt til ársins 1996.
Líndal var mikill félagsmála-
maður, söng í karlakórum og
var forystumaður ýmissa
klúbba og félagsmála m.a. for-
maður í Lionsklúbbi Bolungar-
víkur, félagi í Frímúrararegl-
unni Njálu Ísafirði og síðar
stólmeistari Frímúrareglunnar
Sindra í Keflavík í níu ár.
Þannig má lengi telja. Það væri
hægt að skrifa heila bók um
ferðalög okkar hjóna með þeim
Elsu og Líndal um heimsins
höf, akstur um Evrópulöndin
og ekki síst áravissa dvöl á
haustin í sumarhúsi þeirra
hjóna á Spáni.
Nokkuð er ljóst að gæfa Lín-
dals hafi mótast af dugnaði og
virðingu fyrir því sem honum
var trúað fyrir og ekki síst fyr-
ir stuðning eiginkonu sinnar
Elsu Dóru og samheldna fjöl-
skyldu.
Kæri vinur. Þökk sé þér fyr-
ir mikla vináttu og aftur og aft-
ur fyrir ógleymanlegar sam-
verustundir. Blessuð sé
minning Jóhanns Líndals.
Lillý og Ólafur
Kristjánsson.
Elsku stóra ástin
mín.
Ekki óraði mig
fyrir því að þú
myndir fara svona fljótt, við sem
ætluðum að verða gömul saman.
Við sem áttum eftir að gera og
upplifa margt. Þú hefur hjálpað
mér og stutt mig í gegnum mína
erfiðleika.
Ég er svo þakklát að hafa
fengið að vera með þér í þínum
veikindum og verið með þér fram
á síðustu stundu.
Elsku Mundi, þú varst yndis-
legur eiginmaður, pabbi og afi.
Þú vildir allt fyrir alla gera og
Kristmundur
Ingimarsson
✝ KristmundurIngimarsson
fæddist 24. ágúst
1966. Hann lést 7.
maí 2020.
Útför hans fór
fram 2. júní klukk-
an 14.
sannast það best að
þegar þú varst að
perla með Kamillu
Ástu, gekk það
mjög brösuglega
vegna stóru fingr-
anna þinna, ekki
gafst þú upp og
varst kominn með
tvo blýanta til að
setja perlurnar á
spjaldið. Þetta sýnir
að þú lést ekkert
stoppa þig og þú máttir ekkert
aumt að sjá, boðinn og búinn til
að gera allt í þínu valdi til að
hjálpa og styðja aðra.
Takk fyrir allan tímann sem
við áttum, við náðum gera margt
þótt þú hafir verið tekinn of
snemma frá okkur. Minningarn-
ar munu ylja mér um ókominn
tíma sem við áttum og þú munt
alltaf vera í hjarta mér.
Þín eiginkona, Ásta.
Ásta Valsdóttir