Morgunblaðið - 26.06.2020, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
Út er komin ný bók eftir Bergrúnu
Írisi Sævarsdóttur, Kennarinn sem
hvarf sporlaust. Er það ævin-
týraleg spennusaga fyrir börn,
framhald bókarinnar Kennarinn
sem hvarf, en hún hlaut Barna-
bókaverðlaun Guðrúnar Helgadótt-
ur árið 2019 og Fjöruverðlaunin ár-
ið 2020. Bergrún fékk síðan
Íslensku bókmenntaverðlaunin
2020 fyrir Langelstur að eilífu.
Bækur Bergrúnar hafa notið vin-
sælda meðal ungra lesenda. Í nýju
sögunni kynnast þeir Söru Kras-
niki, en hún kom til Íslands sem
hælisleitandi frá Albaníu vegna
lungnaveikinda yngri bróður henn-
ar. Saga persónunnar er lauslega
byggð á viðtölum Bergrúnar við
Kleu og Kevin, systkini sem var vís-
að úr landi að næturlagi árið 2015.
Þannig vonast Bergrún til að auka
fjölbreytileika í persónuflóru ís-
lenskra barnabóka og sýna raun-
veruleika barna sem hingað koma
og þurfa að kljást við fordóma.
Um ungan
hælisleitanda
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunahöfundur Bergrún Íris
fylgir eftir verðlaunabók með nýrri
sögu fyrir unga lesendur.
Ef marka má athugasemdir unn-
enda Eurovision-keppninnar á sam-
félagsmiðlum um þá ákvörðun
bandaríska leikarans Wills Ferrells
og samstarfsfólks hans að gera
gamanmynd um keppnina og láta
hana fjalla um íslenska keppendur
og kvikmynda hana að hluta á Húsa-
vík, þá fannst þeim það slæm hug-
mynd sem gerði lítið úr söngva-
keppninni sem þeir dá. En miðað við
þá dóma sem birst hafa í fagritum
kvikmyndaheimsins og dagblöðum
erlendis síðustu daga þá þurfa unn-
endur Eurovison ekki að hafa
áhyggjur; gagnrýnendur eru sam-
mála um að myndin, sem framleidd
er og dreift af Netflix, sé hvorki
fyndin né skemmtileg, og sé að auki
teygð úr hófi, í 123 mínútur.
Gagnrýnendur The Guardian,
Empire og Indiewire.com, gefa
Eurovision Song Contest: The Story
of Fire Saga allir tvær stjörnur af
fimm mögulegum. Þá segir rýnir
Variety að kvikmyndin minni að
mörgu leyti á fyrri, og vinsælar,
myndir Farrells, Anchorman og
Talladega Nights – en án hlátursins.
Í myndinni leika Ferrell og Rac-
hel McAdams parið Lars Ericks-
song og Sigrit Ericksdottir sem
koma fram sem dúettinn Fire Saga
og þrá að verða fulltrúar Íslands í
úrslitum keppninnar. Sem þau ná að
verða, fyrir furðulegar tilviljanir, og
komast því í úrslitakeppnina í Skot-
landi. Rýnir The Guardian segir
þetta furðulega mynd sem hitti ekki
í mark. Í henni séu ágætar senur og
brandarar, sérstaklega sem tengjast
sambandi parsins, en hins vegar gef-
ist áhorfendum aldrei færi á að
hlæja neitt að keppninni sjálfri.
Poppstjarna Will Ferrell í senu í
myndinni tekinni á Reykjanesi.
Segja Eurovision-mynd Ferrells
hvorki fyndna né skemmtilega
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ljóðabók Hallgríms Þórs Indriðasonar, Ævi manns
er ferð um fjörusand …, kom út síðastliðið haust og
hafa viðtökurnar verið góðar. Ljóðin eiga það flest
sameiginlegt að vera innblásin af veru úti í nátt-
úrunni.
Hallgrímur er menntaður skógfræðingur og starf-
aði við skógrækt í áratugi. Hann er nýlega hættur
störfum og farinn á eftirlaun. „Þessi ljóð eru að miklu
leyti stemningar. Áhugi minn og tilfinning fyrir um-
hverfinu endurspeglast ef til vill í ljóðunum,“ segir
hann.
„Ljóðin eru innblásin af stund og stað og eiga öll
skírskotanir til einhverrar upplifunar,“ skýrir Hall-
grímur. Hann segir þau verða til á staðnum í ein-
hverri frumgerð að minnsta kosti.
Sum ljóðanna eru kennd við þá staði þar sem þau
urðu til. Sem dæmi nefnir Hallgrímur ljóðin „Hljóða-
klettar“ og „Dettifoss“. „Ljóðið „Ilmbjörk í vorskógi“
var svo ort í Kjarnaskógi þar sem ævistarf mitt ligg-
ur.“
Eins konar slökun að yrkja
Ljóðin eru mörg hver ort á ferðalögum um landið
og Hallgrímur segist upplifa þau sem eins konar
kennileiti. „Með því að fletta ljóðabókinni get ég
ferðast allt til enda og upplifað stemningar í kringum
ljóðið. Svo þetta er eins konar ferðabók í mínum huga.
Mér hefur alltaf þótt ljóðið dálítið merkilegt, ef það
grípur mig þá man ég það og get notið þess hvenær
sem er. Þetta er eins og einhvers konar „mantra“ eða
eitthvað þvíumlíkt. Þannig upplifi ég ljóðið. Það fylgir
því eins konar slökun að yrkja.“
Hallgrímur yrkir bæði bundið og óbundið og segist
Innblásin af stund og stað
Ljósmynd/Kristín Aðalsteinsdóttir
Strengir „Það eru í ljóðagerðinni einhverjir strengir sem liggja beint inn í hjartað,“ segir ljóðskáldið og skógfræðingurinn Hallgrímur Þór.
ekki gera upp á milli formsins. „Fyrst og fremst eru
þetta orð og minningar, og þannig verður til ljóð.
Hvort sem það er hefðbundið eða óhefðbundið þá
grípur mig ákveðin hugsun og eitthvað verður til.“
Náttúruþema ljóðanna tengist líka gjarnan vanga-
veltum um mannlega tilvist. „Það eru í ljóðagerðinni
einhverjir strengir sem liggja beint inn í hjartað,“
segir Hallgrímur. „Það er erfitt að útskýra sjálfan sig
en þannig hefur þetta verið í gegnum tíðina.“
Fellur í ljóðstafi í góðum göngutúr
Hallgrímur segir frá því að hann hafi byrjað að
yrkja þegar hann var í skógræktarnámi í Noregi fyrir
mörgum áratugum. „Fyrstu ljóðin mín urðu til þar,
kannski var kveikjan heimþrá og söknuður.“ Hall-
grímur segir þó að alltaf sé tilefni til þess að yrkja.
„Ég þarf oft ekki annað en að fara í góðan göngutúr,
þá fell ég í ljóðstafi. Það er nú ekki flóknara en svo,“
segir hann og hlær.
Ljóðum Hallgríms hefur verið tekið afar vel. „Það
kom mér skemmtilega á óvart hve vel bókinni var tek-
ið, því ég orti þessi ljóð fyrst og fremst fyrir sjálfan
mig.“
Ljóðin í bókinni hafa verið geymd á lausum blöðum,
þar til þau voru gefin út í haust. Hallgrímur hafði
sjálfur engin áform um að gefa þau út. „Það var konan
mín hún Kristín Aðalsteinsdóttir sem tók sig til og
safnaði ljóðunum saman. Ég er fyrst og fremst þakk-
látur henni fyrir að hafa tekið af skarið. Ég hefði aldr-
ei staðið fyrir þessu sjálfur,“ segir Hallgrímur um út-
gáfuna. „Það er ánægjulegt að eiga ljóðin í
bókarformi og geta gripið til þeirra.“ Hallgrímur seg-
ist ekki vera hættur að yrkja, enn verði til ljóð.
Hallgrímur hefur hlotið viðurkenningu fyrir ljóða-
gerð, bæði frá Reykjavíkurborg og Menor,
Menningarsamtökum Norðurlands.
Fyrsta ljóðabók skógfræðingsins Hallgríms Þórs
Indriðasonar hefur fengið góðar viðtökur Áhugi á
náttúru og umhverfi endurspeglast í ljóðunum
Ævi manns er ferð um fjörusand,
við flæðarmálið aldan máir slóðir.
Þar berast stundum undur upp á land
þó ekki séu allir rekar góðir.
Torsótt er ferð um fjörunnar eggjagrjót,
fláráðir svipir sitja títt í leynum.
Láttu ekki svipi verða þér fjötur um fót,
finndu þér aðra leið með óskasteinum.
Í ferðalok skynjar þú upphaf þíns eigin sjálfs,
ölduniður leikur lokastefið.
Nú veistu þú lifðir lífinu aðeins til hálfs
og ekki verður annað færi gefið.
Um fjörunnar
eyðisand
ÚR LJÓÐABÓK HALLGRÍMS
ÞÓRS INGIMARSSONAR
Leikararnir
Kristín Þóra
Haraldsdóttir og
Hilmar Guð-
jónsson hafa
bæst í leikarahóp
Þjóðleikhússins
og munu leika
saman í verkinu
Upphaf eftir
David Eldridge
sem María Reyn-
dal leikstýrir og verður frumsýnt í
september. Verkið var frumsýnt í
Breska þjóðleikhúsinu í London
fyrir þremur árum og hlaut afar
góðar viðtökur.
Kristín Þóra og Hilmar bætast í
hóp margra leikara og listrænna
stjórnenda sem hafa gengið til liðs
við Þjóðleikhúsið undanfarið. Áður
höfðu leikararnir og leikstjórarnir
Þorleifur Arnarsson, Ólafur Egill
og Unnur Ösp bæst í hópinn, auk
ljósameistarans Björns Bergsteins,
leikmyndahöfundarins Ilmar Stef-
ánsdóttur og Hrafnhildar Hagalín
Guðmundsdóttur dramatúrgs.
Gengin til liðs við
Þjóðleikhúsið
Kristín Þóra
Haraldsdóttir
Vorið kom í bæ
á miðjum vetri.
Vakti af svefni grös
hið græna undur.
Það rigndi bæði hagli
og hörpustrengjum.
Húmið náði að skilja það
í sundur.
Svo kvöldaði með kyrru næturfrosti.
Og hvar sem litið var þá við mér brosti
hið fagra form sem frostið eitt fær skapað
en morgunsólin bræddi og allt var tapað.
Vetrarsól
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG