Morgunblaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 32
Sumardagskrá Jazzklúbbsins Múlans heldur áfram
þegar hljómsveitin Bara gaman stígur á svið. Tónleik-
arnir fara fram í kvöld, föstudaginn 26. júní, kl. 20 í
Flóa á jarðhæð Hörpu. Hljómsveitina skipa fimm ungir
djasstónlistarmenn sem allir hafa verið virkir í íslensku
tónlistarlífi. Þeir eru Tumi Árnason, Mikael Máni Ás-
mundsson, Magnús Jóhann, Valdimar Olgeirsson og
Bergur Einar. Skipuleggjendur segja þá flytja orkumik-
inn og melódískan samtímadjass sem er eftir alla liðs-
menn hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin Bara gaman spilar
eigin djasstónlist í Hörpu í kvöld
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Knattspyrnukonan Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
hjá Breiðabliki greindist með kórónuveiruna í gær. Set-
ur smitið Pepsi Max-deildina í uppnám, en allir leik-
menn og þjálfarateymi Breiðabliks þurfa að fara í
sóttkví, sem og allir leikmenn og þjálfarateymi KR.
Kom Andrea inn á sem varamaður er Breiðablik og KR
áttust við síðastliðinn þriðjudag. Ljóst er að smitið hef-
ur mikil áhrif á deildina, þar sem fresta þarf leikjum hjá
Breiðabliki og KR. Óvíst er hvort fleiri leikmenn eða
dómarar þurfi einnig að fara í sóttkví. »27
Smit í íslenska fótboltanum setur
Pepsi Max-deildina í uppnám
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Seinni hluti tíræðisaldurs er eins góð-
ur og hver annar til þess að skipta um
húsnæði. Eftir 65 ár í sama húsi seg-
ist Rannveig Sigríður Sigurðardóttir
ekki hafa haft neitt val, hafi nánast
verið gert að flytja, og því hafi hún
keypt sér nýtt húsnæði fyrir um
þremur árum, þá 97 ára.
Ragnheiður hefur iðkað sund um
árabil, fer í sundleikfimi tvisvar í viku
og segir það sérlega heilsubætandi.
„Ég mæli með því fyrir alla, ekki síst
eldra fólk,“ leggur hún áherslu á. „Ég
er að vísu orðin hálfblind og það háir
mér svolítið, en ég sit og prjóna, núna
borðklúta eða svonefnda karklúta, og
læt stjana við mig,“ segir hún. Vísar
til þess að hún fái sjúkraþjálfara
reglulega í heimsókn og heimsendan
mat nokkrum sinnum í viku. „Ég hef
gefið öllum sex barnabörnunum
svona karklúta,“ heldur hún áfram en
auk þess á hún fimm barnabarna-
börn.
Handavinna er Rannveigu í blóð
borin. Hún fór í sérnám í handavinnu
í Myndlista- og handíðaskólanum, var
í stjórn Handavinnukennarafélags
Íslands í nokkur ár og kenndi í þrjá-
tíu ár, 1952-1982, við Gagnfræðaskóla
verknáms, sem síðar varð Ármúla-
skóli og svo Fjölbrautaskólinn við Ár-
múla, og síðan í Hagaskólanum 1982-
1984. Hún var lengi í kirkjukór Kópa-
vogskirkju og í sóknarnefnd
Digranesprestakalls Kópavogs 1971-
1986.
Fékk ekki að fara
Foreldrar Rannveigar voru Sig-
urður Einarsson, bóndi í Vogi á Mýr-
um, og Guðrún Árnadóttir. Systurnar
voru tvær, en Guðrún Nanna, sem
var fimm árum yngri en Rannveig,
lést fyrir tæplega þremur árum. „Ég
fæddist og ólst upp í Vogi, var þar
fram yfir þrítugt og flutti þá í Kópa-
vog,“ rifjar hún upp. Segist hafa lært
handtökin af sér eldra og reyndara
fólki og tekið þátt í hefðbundnum
sveitastörfum. „Eftir að ég gat hreyft
mig mokaði ég flórinn, rak kýrnar,
fór í smalamennsku og svo fram-
vegis.“
Lífið í sveitinni var áhyggjulaust.
„Við höfðum alltaf nóg að bíta og
brenna,“ segir Rannveig. Nægur
fiskur hafi verið í sjónum, selur
veiddur af og til og egg tínd. Mikið
hafi verið af lunda í eyjunum, en hann
hafi reyndar horfið þegar minkur hafi
komist þangað. „Maður fór flestra
sinna ferða ríðandi því engir voru
vegirnir og því síður bílar. Mig lang-
aði mikið á Alþingishátíðina á Þing-
völlum, sem bar upp á afmælið mitt
1930, en ég fékk ekki að fara með
hópnum, sem fór ríðandi frá Mýrum.
Ég man vel eftir þessum degi, glamp-
andi sól og ég í smalamennsku en
ekki á Þingvöllum, þó mér þætti ég
vera nógu gömul til þess.“
Eiginmaður Rannveigar var Gunn-
ar Guðmundsson, skólastjóri í Kárs-
nesskóla, sem lést 1980. Dætur þeirra
eru Guðrún Elísabet, matvælafræð-
ingur og gæðastjóri hjá Nathan & Ol-
sen, og Sigurborg, tölvunarfræðingur
hjá Sensa. Hjónin byggðu hús í
Skólatröð 1952 og þar bjó hún þar til
2017, þegar hún flutti vegna fram-
kvæmda í hverfinu. „Íbúunum var
ekki vært þar lengur og þá fór ég í
nýtt húsnæði enda mátti ekki minna
vera, loks þegar ég lét af því verða að
flytja.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tímamót Rannveig Sigríður Sigurðardóttir hefur lengst af búið í Kópavogi
og nýtur lífsins í nýja húsnæðinu rétt eins og í sundleikfiminni.
Tími til að breyta til
Rannveig Sigurðardóttir 100 ára flutti í nýtt húsnæði
fyrir þremur árum eftir að hafa búið í sama húsi í 65 ár
MAfmælisbragur »16