Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Blaðsíða 18
Karen Björg Þorsteinsdóttir kaupir notuðföt en gengur líka mikið í fötum af móð-ur sinni. Hún segir mikilvægt að klæða
sig upp áður en hún fer á svið og bendir á að föt-
in tali áður en hún sjálf opnar munninn.
Karen Björg hefur sýnt í Þjóðleikhúskjall-
aranum í tvö ár með uppistandshópnum sínum
Bara góðar.
„Ég var með uppistand í menntaskóla. Ég
átti að halda ræðu en ákvað að breyta því í uppi-
stand. Svo fór ég á uppistandsnámskeið hjá
Þorsteini Guðmundssyni og kynntist svo þess-
um kellingum í Bara góðar sem eru svona aga-
legar fyndnar líka. Við byrjuðum að vera með
sýningar og svo vatt þetta upp á sig.“
Karen Björgu dettur ekki í hug að mæta
bara í gallabuxum og bol þegar hún fer á svið.
„Mér finnst mjög gaman að dressa mig upp
fyrir gigg. Það er kurteisi að mér finnst ef mað-
ur er að mæta á árshátíð eða á einhvern stjórn-
arfund af því að fötin tala áður en maður sjálfur
opnar munninn. Mér finnst það alltaf mjög
skemmtilegt og fötin veita mér líka sjálfs-
traust.“
Fötin eru listasafn fyrir
útvaldar flíkur
„Franskur, trendlaus og 70’s,“ segir Karen
Björg þegar hún lýsir fatastíl sínum. „Ég geng
mjög mikið í fötum sem mamma átti þegar hún
var ung. Ég reyni að hugsa ekki um fataskáp-
inn minn sem stoppistöð fyrir trend heldur
listasafn fyrir útvaldar flíkur. Þó eru nokkrar
nærbuxur sem mætti aflífa strax.“
Karen Björg segist aðallega sækja inn-
blástur á Instagram. Áður fyrr var hún dugleg
að skoða tímarit en skoðar nú helst bækur til
þess að virðast gáfaðri. Hún á sér einnig nokkr-
ar tískufyrirmyndir sem hún horfir til.
„Alexa Chung, Harry Styles og Camille
Rowe eru öll með mjög heillandi fatastíl að
mínu mati. Svo hefur systir pabba míns haft
mikil áhrif á mig í gegnum tíðina. Hún er alltaf
að kaupa eitthvað sem aðrir myndu bara vera í
á öskudaginn.“
Náttkjóllinn af mömmu í uppáhaldi
Hvaða flík er í uppáhaldi hjá þér?
„Ætli það sé ekki svartur hlýrakjóll sem
mamma notaði sem náttkjól í útlöndum. Ég
ákvað að stela honum úr skápnum hennar fyrir
nokkrum árum til að nota hversdags. Held að
hún viti ekki einu sinni að hann sé horfinn. Sorrí
mamma, en þú ert allavega ekki að fara til út-
landa í bráð!“
Bestu kaup sem þú hefur gert?
„Ég keypti Christopher Kane-peysu á Net-A-
Port-er.com á 70% afslætti árið 2016, hún er
ennþá eins og ný blessunin.“
Áttu þér uppáhaldsverslun?
„Hér heima er ég einn helsti styrktaraðili
Wasteland Reykjavík. Svo finnst mér Fata-
markaðurinn á Hlemmi alveg frábær. Erlendis
reyni ég að þefa uppi sem flestar vintage-búðir
og fara í fjársjóðsleit. Brick Lane í London er al-
gjört vintage-himnaríki. Annars er einnig alltaf
hægt að treysta á Zöru, hérlendis sem erlendis.“
Ekki smekklegt að vera í of
mörgum merkjavörum
Karen Björg notar lítið skartgripi. Flestir skart-
gripanna eru skran að hennar sögn en hún á þó
eitt Gucci-hálsmen. Hún fullkomnar dressið
frekar með töskum og skóm.
„Skemmtilegir skór og töskur. Ég hef eytt
meiri peningum í töskur en flest annað og
skammast mín daglega,“ segir Karen Björg.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tísku og
vönduðum vörum. Mér finnst skemmtilegast að
blanda saman eldgömlu og einhverjum merkja-
vörum. Ég er ekki í öllu merkja, mér finnst það
ekki smekklegt.
Ég keypti mér Tom Ford-töskuna af því að ég
átti ágætlega dýra tösku úr Zöru en hún rifnaði
þegar ég var að ganga yfir gangbraut og allt
datt út um allt. Þannig að ég varð svolítið pirruð
og hugsaði: jæja, nú splæsi ég í tösku sem held-
ur einhverju, og ég notaði töskuna sem skóla-
tösku.“
Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum
fyrir sumarið?
„Líf mitt breyttist þegar ég skipti út drasl-
sólgleraugum og fjárfesti í góðum sólgler-
augum. Mæli með því.“
Er eitthvað á óskalistanum hjá þér fyrir sum-
arið?
„Það var dökkblátt prjónavesti en amma
skvísa var að gefa mér eitt sem hún hafði prjón-
að á mig. Núna væri ég til í að finna notaðar
smekkbuxur svo ég þurfi ekki að pæla í að losa
um buxnastrenginn í öllum brönsjunum sem ég
ætla í í sumar.“
Karen Björg glæsileg í bláu
prjónavesti sem amma
hennar prjónaði.
Jakkinn er úr
Wasteland og
kjóllinn er nátt-
kjóll frá móður
hennar.
„Fötin tala áður
en maður opnar
munninn“
Karen Björg Þorsteinsdóttir uppistandari blandar
saman gömlum fötum og merkjavörum.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Karen Björg kann að
meta fatnað úr gallaefni.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
LÍFSSTÍLL