Morgunblaðið - 01.07.2020, Side 4

Morgunblaðið - 01.07.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa BRÚÐKAUPS MYNDIR Tvö ný smit greindust í gær, annað við landamæraskimun og hitt hjá Ís- lenskri erfðagreiningu. Á sama tíma fækkaði einstaklingum í sóttkví úr 433 í 415. Alls eru nú tólf einstak- lingar með virkt smit. Samtals hafa um 12 þúsund manns farið í sýna- töku við landamæri frá 15. júní en einungis fjórir hafa reynst með virkt smit. Ekki hefur slegið á áhyggjur landsmanna, en samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup fjölgar þeim sem hafa áhyggjur af því að smitast af kórónuveirunni. Þá fjölgar sömuleið- is þeim sem telja aðeins of lítið gert úr heilsufarslegri hættu faraldurs- ins. Svo virðist sem framangreindar áhyggjur valdi því að frestun við- burða sé nú að færast í aukana á ný. Í gær bárust fréttir af því að loka- hátíð fyrir starfsmenn í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði hefði verið slegið á frest vegna gruns um smit meðal starfsmanna. Var um- ræddur starfsmaður sendur í sýna- töku, en sökum óvissu um niður- stöðu hennar var ákveðið að fresta gleðskapnum. Sömuleiðis var greint frá því í gær að fimm starfsmenn atvinnuvega- ráðuneytisins væru í sóttkví. Tengist það smitum tveggja starfsmanna ráðuneytisins. Auk viðkomandi starfsmanna eru níu til viðbótar í svokallaðri úrvinnslusóttkví. Annar smituðu einstaklinganna er eiginmaður Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Sjálf er hún nú komin í sóttkví og verður næstu tvær vikur þrátt fyrir neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. aronthordur@mbl.is Veirusmitum fjölgar og áhyggjur fólks aukast Morgunblaðið/Margrét Sýnataka Áhyggjur landsmanna aukast eftir að smitum tók að fjölga.  Tvö ný smit greind í gær Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er mjög erfitt að standa af sér árásir frá lánardrottnum með litlar tekjur,“ segja veitingamennirnir Þórður Ágústsson og Þórhallur Viðarsson á b5 í Bankastræti. Blikur eru á lofti í rekstri skemmtistaða í miðborg Reykja- víkur eftir að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því í byrjun vikunnar að ekki væri fyr- irséð hvenær hægt yrði að mæla með því að afgreiðslutími þeirra yrði rýmkaður. Þeir staðir sem gera út á djammið á föstudags- og laugar- dagskvöldum hafa farið illa út úr kórónuveirufaraldrinum. Eftir að slakað var á samkomubanni og leyft að hafa opið á krám til klukkan 23 hafa margir staðir náð sér ágætlega á strik en þeir sem gera út á tekjur eftir miðnætti um helgar skiljanlega ekki. Þórður og Þórhallur gagnrýna það umhverfi sem þeim sé búið; ekki sé komið til móts við það tekjufall sem fyrirtækið hafi orðið fyrir og engar upplýsingar séu fyrir hendi um hvenær búast megi við að rekstr- arumhverfið geti færst í fyrra horf. „Höldum þetta ekki út lengur“ „Fyrir Covid var þetta blómstr- andi fyrirtæki. Við eigendur höfum þurrausið sjóði okkar til að halda því gangandi en við getum ekki meir. Þær þokukenndu upplýsingar sem við fáum og óvissuástand sem við búum við gera það að verkum að við höldum þetta ekki út lengur,“ segir Þórður. Morgunblaðið hefur áður greint frá óánægju þeirra með óbil- girni fasteignafélagsins Eikar í nú- verandi ástandi. Veitingamennirnir gagnrýna að leyfilegt sé að halda stóra tónleika í Háskólabíói og víðar þar sem virðist duga að skipta salnum í hólf með límbandi til að það teljist innan marka samkomubanns. Þá sé hægt að leigja veislusali og halda stór partí til klukkan þrjú á nóttunni án þess að athugasemdir séu gerðar. Strangt eftirlit sé hins vegar með börum og skemmtistöðum sem megi bara vera opnir til klukkan 23. „Þetta er bara aftaka,“ segja Þórður og Þórhallur. Uppsagnir á Lebowski Bar Morgunblaðið ræddi við fleiri veit- ingamenn í miðborginni. Ingvar Svendsen á American Bar í Austur- stræti segir að reksturinn gangi vel þegar gott veður er og fólk geti setið úti. Ef núverandi ástand haldi lengi áfram og afgreiðslutími verði ekki rýmkaður muni reksturinn aftur á móti þyngjast. „Við þurftum að ráðast í upp- sagnir nú um mánaðamótin,“ segir Arnar Þór Gíslason, veitingamaður á Lebowski Bar. Arnar rekur nokkra bari og skemmtistaði í miðbænum. Uppsagnirnar ná bara til Lebowski Bar, en þar hefur afgreiðslutími ver- ið langur. „Við höfum verið að borga fólki fyrir hátt í 70 klukkutíma auka- lega sem það hefur ekki getað unnið. Uppsagnir tryggja fólki full laun og réttindi á uppsagnarfresti. Vonandi getum við svo ráðið fólkið inn aftur,“ segir Arnar. Hann segist aðspurður ekki vera mjög bjartsýnn á framhaldið. „Óvissan er alger hjá veitinga- mönnum. Maður er búinn að berjast núna í nokkra mánuði, reyna að vera jákvæður og halda fólki í starfi en ég er búinn að gefast upp á að halda svona áfram. Nú verður að pakka í smá vörn.“ Rekstur b5 og fleiri staða í mikilli óvissu  Vertar ósáttir við afgreiðslutíma og aðbúnað  Uppsagnir á Lebowski Bar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon B5 Einn þeirra staða sem farið hafa illa út kórónuveirufaraldrinum. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Aðferðin og efnið sem notuð voru við malbikun á vegkafla á Vesturlands- vegi á Kjalarnesi, þar sem banaslys varð á sunnudag, voru með sama hætti og venja er. Þetta segir G. Pét- ur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Fyrir liggur að vegkaflinn var hálli en kröfur Vega- gerðarinnar segja til um, en engin tilhlýðileg skýring hefur fengist og beinist lögreglurannsókn að því. Sýni hafa verið tekin úr malbikinu og verða þau send til greiningar, annars vegar til Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands og hins vegar til Sví- þjóðar. G. Pétur segir verktakann Loft- orku, sem sá um verkið, og malbik- unarstöðina Höfða hafa áratuga- reynslu af lagningu malbiks. „Við vitum að þetta eru reyndir verktak- ar og þeir segja okkur að það sé ekk- ert sem þeir geta sett fingur á að sé að.“ Ákveðið hefur verið að malbika á ný vegkaflann á Vesturlandsvegi og annan á Gullinbrú í Reykjavík, en báðir reyndust of hálir í mælingu Vegagerðarinnar. Aðspurður segir G. Pétur að framkvæmdir hefjist á næstu dögum, um leið og veður leyf- ir, en þangað til hefur hámarkshraði á vegkaflanum á Vesturlandsvegi verið lækkaður niður í 50 km/klst. Vilja umbætur í öryggismálum Fjölmennur fundur bifhjólasam- takanna Sniglanna fór fram við höfuðstöðvar Vegagerðarinnar við Borgartún í hádeginu í gær. „Hver einasta manneskja sem hefur notað mótorhjól getur sagt sögu af hálum vegum, lausamöl ofan á malbiki, ein- breiðum brúm, hvassar brúnir [sic] við ristahlið, sagt okkur sögur þar sem viðkomandi hefur nánast dottið, eða dottið og hlotið skaða af,“ segir í yfirlýsingu sem Jokka G. Birnudótt- ir, gjaldkeri Sniglanna, las upp við upphaf fundarins. Kröfur mótmælenda eru að hætt verði að nota „ónýtt efni“ í mal- bikun, og að einbreiðum brúm, blindhæðum og skyndilausnum verði útrýmt. Lögreglurannsókn á vegin- um stendur yfir, en í samtali við Morgunblaðið sagði Elín Agnes Kristínardóttir, stöðv- arstjóri hjá lögreglunni, að lítið væri hægt að segja um hana að svo stöddu. Morgunblaðið/Eggert Samstöðufundur Fjöldi bifhjólaökumanna mætti fyrir utan Vegagerðina í Borgartúni í gær vegna banaslyssins. Aðferð og efni með sama hætti og áður  Óvíst hvað olli hálku á Vesturlandsvegi  Sýni úr landi Auk Gullinbrúar og vegkaflans á Vesturlandsvegi er Vegagerðin með til skoðunar Bústaðaveg, kafla á Reykjanesbraut við Vífilsstaði og Sæbraut við Laugarásbíó. Þessar fram- kvæmdir eiga það sammerkt að vera nýkláraðar og koma úr sama útboði Vegagerðarinnar. Þá hefur verið kvartað undan hálku á þessum vegköflum. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur hraði á öllum umræddum veg- um verið lækkaður nið- ur í 50 km/klst. meðan þeir eru rannsakaðir, en ekki er útlit fyrir að ráðast þurfi í fram- kvæmdir að nýju þar, líkt og á Vesturlandsvegi og Gullinbrú, þar sem hálkan er ekki jafnmikil. Fleiri vegir til skoðunar EITT ÚTBOÐ G. Pétur Matthíasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.