Morgunblaðið - 01.07.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 01.07.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Ford F-350 XLT Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque 4X4 10-speed Automatic transmission 6-manna Heithúðaður pallur 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Svartur/ Svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Summit white/ svartur að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. VERÐ 11.290.000 m.vsk VERÐ 12.990.000 m.vsk VERÐ 12.990.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ SVIÐSLJÓS Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Þingstörfum lauk í fyrrinótt og náðu rétt um þrjátíu stjórnarfrumvörp fram að ganga á síðustu fundum þingsins. Að sögn Birgis Ármanns- sonar, formanns þingflokks Sjálf- stæðisflokks, var það drjúgur hluti áherslumála ríkisstjórnarinnar. Þá voru um fimmtán stjórnarfrumvörp látin bíða til haustsins. Ágreiningur var um hluta viðkomandi mála auk þess sem talið var nauðsynlegt að vinna ákveðin frumvörp frekar. Meðal mála sem bíða til haustsins eru frumvörp er snúa að hlutdeild- arlánum og skipan sendiherra. Verða umrædd mál lögð fyrir að nýju þegar þing kemur saman í haust. Í þing- lokasamningum kemur fram að af- greiða verði sendiherrafrumvarp fyrir 15. nóvember næstkomandi. Að sögn Birgis einkenndust þing- lok af áhrifum faraldurs kórónuveiru á íslenskt samfélag. Mörg mál tengd faraldrinum voru afgreidd í þinginu undanfarna mánuði, sem jafnframt olli því að öðrum málum var slegið á frest. „Við náðum að afgreiða tölu- vert mörg mál en það er ljóst að þing- störf frá því í mars hafa einkennst af ástandinu sem skapaðist vegna kór- ónuveiru. Það voru mörg kórónu- veirumál sem afgreiða þurfti, bæði heilsufarsleg og efnahagsleg,“ segir Birgir. Togstreita milli stjórnarflokka Meðal þess sem samkomulag náð- ist um fyrir þinglok var samgöngu- áætlun. Hlaut framangreind áætlun lítinn hljómgrunn meðal þingmanna Miðflokksmanna, sem mótmæltu henni harðlega. Vísuðu þeir þar sér- staklega til uppbyggingar borgarlínu auk heimildar til stofnunar opinbers hlutafélags um uppbyggingu sam- gönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Sjónarmið þingmannanna voru tekin inn í nefndarálit meirihluta fjárlaga- nefndar. Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokks, segir að endasprettur þingstarfa hafi verið erfiður. Hann sé þó ánægður með hvernig flokknum tókst til við að koma áherslumálum sínum á fram- færi. „Ég er ánægður með hvernig okk- ur tókst til með að laga mál ríkis- stjórnarinnar. Við tryggðum að ríkið væri ekki skuldbundið af borgarlínu í blindni. Að auki náði mál okkar fram að ganga er snýr að gjaldfrjálsri krabbameinsmeðferð,“ segir Gunnar Bragi og bætir við að augljós tog- streita hafi verið milli stjórnarflokk- anna þegar líða tók að þinglokum. „Í samgöngumálum er ljóst að menn gáfu verulegan afslátt af stefnumál- um sínum. Það var alveg svakalega áberandi hvað stjórnarflokkarnir áttu erfitt með að koma sér saman um mál sem átti að klára,“ segir Gunnar. Erum stödd í svikalogni Meðal mála sem ekki náðu fram að ganga var frumvarp Pírata um af- glæpavæðingu neysluskammta fíkni- efna. Vakti umrætt mál athygli í ljósi þess að málið er á stefnuskrá Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokks. Segir Oddný G. Harðardóttir, þingflokksfor- maður Samfylk- ingar, að vand- ræðagangur hafi einkennt stjórnar- samstarfið. „Það hefur verið vand- ræðagangur allt kjörtímabilið og það kom mjög skýrt fram í ákveðnum málum,“ segir Oddný, sem kveðst hafa mestar áhyggjur af breytingum á samkeppnislögum. Telur hún að breytingarnar, er rýmka heimild til samruna, séu í raun aðför að smærri fyrirtækjum og neytendum. Segir Oddný að þrátt fyrir þetta hafi mörg góð mál fengið brautar- gengi. Þar á meðal séu lög er ýta eigi undir virkni innflytjenda í samfélag- inu auk tilfærslu á sálfræðiþjónustu, sem nú mun heyra undir greiðslu- þátttökukerfi Sjúkratrygginga Ís- lands. Aðspurð segist Oddný hafa miklar áhyggjur af haustinu. Ekki megi telja ólíklegt að efnahagslegt högg af völdum kórónuveiru kunni að koma fram þá. „Við erum í ákveðnu svikalogni og það á eftir að taka á stórum málum. Ef við stöndum kyrr verðum við ekki viðbúin þegar tekur að hvessa aftur,“ segir Oddný. Mörg mál afgreidd undir lokin  Þingstörfum lauk í fyrrinótt  Þrjátíu stjórnarfrumvörp afgreidd  Afsláttur gefinn af stefnumálum Morgunblaðið/Eggert Alþingi Þingstörfum lauk í fyrrinótt og þingmenn eru komnir í sumarfrí. Um 30 stjórnarfrumvörp náðu fram að ganga, 15 stjórnarfrumvörp bíða áfram. Birgir Ármannsson Gunnar Bragi Sveinsson Oddný G. Harðardóttir Sigurður Ægisson sae@sae.is Þernutrítill, lítill vaðfugl kominn alla leið frá Suður- Evrópu eða jafnvel Norður-Afríku, er þessa dagana í Garði á Reykjanesskaga. Hans varð fyrst vart þar á föstudag, 26. þessa mánaðar, og hafa fuglaáhugamenn víðs vegar að af landinu og jafnvel heiminum lagt leið sína þangað til að berja hann augum og ljósmynda. Þernutrítill hafði aldrei fundist á Íslandi áður, en einn kom um borð í Snæfugl SU þann 7. júní árið 1997, þar sem báturinn var á veiðum á Lónsdýpi. Hann var svo hafður í haldi en drapst síðar um sumarið. Trítlar eru vaðfuglar og hefur ætt þeirra að geyma sautján tegundir. Í ættkvísl trítla eru átta tegundir. Þeir hafa suðlæga útbreiðslu, eru frá Evrópu og austur í Asíu og tvær tegundir eiga heimkynni í Indónesíu og Ástralíu. Þrjár tegundir trítla hafa sést í Vestur-Evrópu og þar af nú tvær hér á landi. Hin er stepputrítill. Vetr- arstöðvar þeirra beggja eru í sunnanverðri Afríku. Þernutrítill er aðeins minni en kría að stærð og veiðir skordýr sér til matar ekki ósvipað og svölur, tek- ur þau á flugi. Fæðuöflunin fer mest fram í ljósaskipt- unum. Á öðrum tímum sólarhrings er fuglinn lítt áber- andi. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson Þernutrítill í heimsókn Ráðgera má að atvinnuleysi í júní- mánuði verði sambærilegt við mánuðinn á undan. Þetta segir Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun. Almennt atvinnuleysi í maí var um 7,4% eða rétt um 21.500 ein- staklingar. Þá var skráð atvinnu- leysi í maímánuði 13% og lækkaði umtalsvert frá því í mánuðinum á undan þegar það var rétt um 17,8%. Samkvæmt tölum Vinnu- málastofnunar voru um 33 þúsund á atvinnuleysisskrá í maí, þar af 17.200 í minnkuðu starfshlutfalli. Að sögn Karls má gera ráð fyrir að einstaklingum í minnkuðu starfshlutfalli fækki umtalsvert í mánuðinum þó að almennt atvinnu- leysi haldist áfram óbreytt. „Við reiknum með að almennt atvinnu- leysi verði svipað og í maí. Fólki í minnkuðu starfshlutfalli heldur þó áfram að fækka hratt og verður sennilega í kringum 7-8 þúsund,“ segir Karl. Spurður hvort gera megi ráð fyr- ir fjölda hópuppsagna í mánuðinum kveður Karl nei við. Nú þegar hafi borist fjórar tilkynningar og ekki sé von á mörgum í viðbót. „Það verða kannski tvær til viðbótar. Það er að hægja mjög á hóp- uppsögnum,“ segir Karl, en í síð- asta mánuði voru alls um 23 hópuppsagnir. Náðu þær til rétt ríf- lega 1.300 einstaklinga. Gera má ráð fyrir að fjöldinn í júnímánuði verði nær 300 talsins. Munar þar mest um 80 uppsagnir hjá kísilverk- smiðjunni PCC á Bakka. aronthordur@mbl.is Almennt atvinnuleysi haldist óbreytt í júnímánuði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.