Morgunblaðið - 01.07.2020, Page 10

Morgunblaðið - 01.07.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020 Himbrimapar hefur tekið gæsarunga í fóstur á stöðuvatni í nágrenni Reykjavíkur. Pétur Alan Guðmundsson, kaupmaður og fuglaljósmyndari, tók þessar myndir um helgina og segir þetta samneyti afar athyglisvert. Fróðir menn segja raunar að þess séu tæpast dæmi um að himbrimar taki aðrar teg- undir fugla undir sinn verndarvæng, eins og hér sést. „Það er alltaf eitthvað óvenjulegt að gerast í náttúrunni sem er gam- an að fylgjast með og taka myndir,“ segir Pétur. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur bendir á að him- briminn nærist á fiskmeti en gæsir á gróðri og þessar ólíku aðferðir við fæðuöflun geri málið allt óvenjulegt. Áhugavert verði því að fylgjast með framvindu mála. sbs@mbl.is Fjölskrúðugt fuglalíf á stöðuvatni í nágrenni höfuðborgarinnar Ljósmyndir/Pétur Alan Guðmundsson Himbrimar með gæsarunga undir verndarvæng sínum Forlagið mun leiðrétta tilvísanir í verk Jóns Ólafs Björgvinssonar í næstu út- gáfu bókarinnar Síldarárin 1867-1967. Þetta er meðal þess sem felst í sam- komulagi milli Forlagsins og Jóns Ólafs um lok ágreinings er varðar texta í þýðingu Jóns Ólafs sem birtist í bókinni sem kom út í fyrra. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá taldi Jón Ólafur, sem hefur skrifað greinar um Siglufjörð og síldarvinnslu á vefmiðlana trolli.is og siglo.is, að í bókinni hefði verið vísað til þýðinga sinna með ófullnægjandi hætti. Sakaði hann höfundinn, Pál Baldvin Baldvins- son, um ritstuld og hótaði því að lög- banns yrði krafist á útgáfu bókarinnar. Greint er frá samkomulaginu á trolli.is og þar segir að það hafi verið helsta krafa Jóns að tilvísanir í verk hans yrðu leiðréttar. Mun leiðréttingin ná bæði til umfjöllunar undir fyrir- sögninni „Sumartúr á Íslandi“ á blað- síðum 751 og 752 og til textabrots á blaðsíðu 839 sem birtist undir fyrir- sögninni „Úr sænsku jólablaði“. Báðar umfjallanirnar eru unnar upp úr þýðingum Jóns, að því er segir á trolli.is. Annars vegar úr greininni „Sagan um Svaninn! Síldarveiðar, landlega og slagsmál o.fl. á Sigló 1935“ sem birtist á vef siglo.is þann 9. nóv- ember 2017. Hins vegar úr grein Jóns á sama miðli sem birtist þann 25. októ- ber 2016 undir fyrirsögninni „Sill- stulkor i Siglufjord / Sænsk mynda- syrpa frá 1945“. „Jón og Forlagið eru sammála um að með vandaðri heimildarvinnslu sé sjálfsögð virðing borin fyrir sögu Siglu- fjarðar og síldarvinnslu á Íslandi. Skilja aðilar sáttir, en telja málinu lokið og munu ekki tjá sig frekar um það,“ segir á vefnum. Sátt í deilu um Síldarárabók  Ágreiningur um tilvitnanir í bók Páls Baldvins Baldvinssonar til lykta leiddur  Fallið frá hótunum um lögbann á útgáfu bókarinnar og ásökunum um ritstuld Sátt Forlagið náði sáttum um bók Páls Baldvins um síldarárin á Íslandi. Síldarárin » Stórvirki Páls Baldvins kom út í fyrra. Bókin er alls 1.152 blaðsíður í stóru broti og hana prýðir 1.101 ljósmynd. » Höfundur segir að í bókinni séu „raktar sögur af miklum örlögum, gulli og glópsku“. Karlmaður á fertugsaldri, sem lög- reglan á Suðurnesjum handtók í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar á dögunum, reyndist vera með tæplega 300 grömm af metamfetamíni og 1.600 stykki af sterkum lyfseðilsskyldum lyfjum í fór- um sínum. Tollgæslan stöðvaði manninn við komuna til landsins og fann pakkningu með metamfetamíninu sem var vafin föst við maga hans. Maðurinn lét ófrið- lega við afskipti tollvarða og lögreglu, segir í dagbók lögreglu. Var hann vistaður í fangaklefa en síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald að skýrslutöku lokinni. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Þá fundust fíkniefni við húsleit hjá honum, auk kylfu, rafbyssu og rúmlega tveggja milljóna króna í ís- lenskri og erlendri mynt, sem lögregla taldi vera ágóða af fíkniefnasölu. Einnig fundust níu lítrar af landa. Metamfetamín á maganum 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 695 Strákúst á tannbu verði Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Garðslöngur í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 ar rsta Laufhrífur frá 999 Sandkassagrafa Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.