Morgunblaðið - 01.07.2020, Side 24

Morgunblaðið - 01.07.2020, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Heyrnarþjónusta í alfaraleið Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound gæðaheyrnartækjum. Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki. Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til reynslu afgreidd samdægurs. Samtök leikhúsa við Broadway í New York hafa ákveðið að hafa húsin lokuð út þetta ár, vegna Covid-19-faraldursins sem enn leik- ur bandarískt samfélag hart. Hyggjast eigendurnir reyna að opna húsin „smám saman“ á fyrstu mánuðum næsta árs eða undir næsta vor. Alls er 41 leikhús í samtökunum og lokuðu þau öll 12. mars. Eig- endur húsanna bjóða endurgreiðslu fyrir þá miða sem þegar hafa verið keyptir á sýningar á árinu eða miða á sýningarnar á næsta ári. En vegna þess að engin leið er að segja fyrir um hvernig mál þróast er ekki hægt að gefa upp núna hvenær sýn- ingar munu hefjast. Í tilkynningu frá leikhúsunum segir að alls kyns vandamál muni blasa við þegar kemur að því að hefja sýningar að nýju, í samráði við stjórnvöld og sóttvarnalækna. Taka þarf prufur af starfsfólki, gæta að sóttvörnum, því hvernig á að skipa til sætis miðað við fjar- lægðamörk og hvernig vinnu verð- ur háttað baksviðs. Lokað á Broadway þar til á næsta ári AFP Lokað Lyric-leikhúsið er lokað en þar var verið að sýna leikritið um Harry Potter. Aðdáendur Hild- ar Guðnadóttur, tónskálds og Óskverðlauna- hafa, geta nú tekið gleði sína á ný eftir að tón- leikar með tón- list hennar úr kvikmyndinni Joker eru komn- ir aftur á dagskrá. Tónleikarnir, sem áttu upprunalega að fara fram í byrjun júní en var frestað af aug- ljósum ástæðum, verða haldnir í Eldborg í Hörpu, 20. nóvember á komandi hausti. Miðasala hefst fimmtudaginn 2. júlí. Þar mun SinfoniaNord flytja tón- listina úr kvikmyndinni en stjórn- andi verður Guðni Franzson, faðir tónskáldsins. Samhliða tónleikun- um verður kvikmyndinni Joker varpað á tjald í Eldborg með tali og áhrifahljóðum. Þessi nálgun fram- kallar alveg nýja upplifun á marg- verðlaunaðri kvikmynd Todd Phil- ips með Joaquin Phoenix í aðalhlutverki og einstakri tónlist Hildar Guðnadóttur. Joker og SinfoniaNord í Eldborgarsal Hildur Guðnadóttir Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Sumartónleikar í Skálholti 2020 hefj- ast á morgun, 2. júlí. Þétt dagskrá verður fimmtudag til sunnudags í þessari viku og þeirri næstu. „Þetta er í raun styttra tímabil en hefur áður verið á Sumartónleikum. Nú var ákveðið að prófa að stytta tímabilið en halda samt sem áður í sama tónleika- fjölda,“ segir Ásbjörg Jónsdóttir, ann- ar skipuleggjenda og framkvæmda- stjóra Sumartónleika. Hún sinnir því starfi ásamt Norðmanninum Birgit Djupedal. Þær Ásbjörg og Birgit hafa verið ráðnar sem listrænir stjórnendur og framkvæmdastjórar Sumartónleika til tveggja ára. „Við þekkjum hátíðina vel. Við erum báðar tónskáld og vor- um með tónleika saman hérna í fyrra,“ segir Ásbjörg. Svo hafa þær kynnst starfinu í gegnum Listaháskól- ann, þar sem þær stunduðu báðar nám. Dvelja í Skálholti Hefð er fyrir því að valin séu staðartónskáld í tengslum við Sumar- tónleikana og þeim boðið að dvelja í Skálholti við tónsmíðar. Að þessu sinni urðu fyrir valinu tónskáldin Þór- anna Björnsdóttir og Gunnar Karel Másson, sem hafa unnið mikið í raftónlistarheiminum en hafa einnig reynslu af því að semja kammer- tónlist. Þau eru búin að koma sér fyrir í Skálholti, dvelja þar á meðan hátíðin fer fram og vinna við tónsmíðar og æf- ingar. Ásbjörg segir þær Birgit hafa lagt áherslu á að reyna að endurvekja þá hefð Sumartónleika að listamenn, bæði staðartónskáldin og flytjendur, dvelji í Skáholti. „Við viljum að þau njóti þess að vinna hérna og upplifi andann á staðnum.“ Staðartónskáldin sjá um opnunar- tónleika Sumartónleika í Skálholti annað kvöld, fimmtudag, og loka- tónleika sunnudaginn eftir viku. Á fyrri tónleikunum verða flutt eldri verk eftir þau. Heiða Árnadóttir mun syngja og Tinna Þorsteinsdóttir leika á dótapíanó. Ekki er venja að flytja flygil eða píanó inn í Skálholtskirkju og því kemur dótapíanó Tinnu sér vel. Semja fyrir KIMI Ásbjörg segir frá því að staðar- tónskáldin hafi verið fengin til að semja verk fyrir tónlistarhópinn KIMI, sem samanstendur af Þór- gunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu, Katerinu Anagnostidou slagverksleik- ara og Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmónikuleikara. Samstarfinu verð- ur svo fagnað með frumflutningi á nýj- um verkum tónskáldanna á loka- tónleikum, 12. júlí. Ásbjörg og Birgit halda í áherslu Sumartónleika á tónlist fyrri alda sem og nýja tónlist. Lengi hefur verið lögð áhersla á flutning barokktónlistar en að þessu sinni er aðeins minna um það en venjan er vegna breytinga sem urðu á dagskránni vegna faraldursins. „Við áttum von á tveimur stórum bar- okkhljómsveitum að utan. Cantoque Ensemble sem ætlaði að syngja með þeim mun flytja aðra dagskrá án und- irleiks með verkum eftir íslensk tón- skáld, bæði trúarleg verk og verald- leg. Barokkdagskráin þeirra verður bara á næsta ári í staðinn,“ segir Ás- björg. Barokkaðdáendur þurfa þó ekki að örvænta því tónlist af því tagi kemur meðal annars við sögu á minn- ingardagskrá um Jaap Schröder fiðlu- leikara, og Helgu Ingólfsdóttur, stofn- anda Sumartónleika og sembal- leikara. Enn eldri tónlist verður einnig í boði, en íslensk þjóðlög og Þorláks- tíðir í strengjaútsetningum verða t.d. á efnisskrá Cauda Collective. Fyrir yngri kynslóðina Tvennir fjölskyldutónleikar verða á dagskrá í ár. Tvíeykið Bachelsi mun flytja fiðludúetta og gera tónverk Bachs aðgengilegri fyrir yngri kyn- slóðina og svo munu Guðbjörg Hilmarsdóttir og Kári Þormar dóm- organisti flytja sálma og segja frá org- elinu. „Sumartónleikar í Skálholti eru að- eins með breyttu sniði í ár, að því leyti að við erum ekki að fá neina erlenda gesti nema þá Íslendinga sem búa er- lendis og ætluðu hvort sem er að koma heim. Þá ákvörðun tókum við strax í apríl þegar þetta lá fyrir. Þá höfðum við samband við alla erlenda flytjendur og buðum þeim að koma eftir ár. Þá fórum við bara í það að finna nýja dagskrárliði. Við ákváðum að halda okkar striki af því að okkur fannst mikilvægt að tónlistarfólkið okkar hérna heima gæti treyst á það að hafa einhverja atvinnu, hvort sem hægt væri að vera með áheyrendur í salnum eða það yrði að grípa til þess ráðs að flytja tónleikana í streymi eða taka þá upp,“ segir Ásbjörg. Nánari upplýsingar um Sumartónleika 2020 má nálgast á sumartonleikar.is Mikilvægt að halda sínu striki  Sumartónleikar í Skálholti hefjast á morgun  Áhersla á tónlist fyrri alda og ný tónverk  Staðartónskáld Sumartónleikanna eru Þóranna Björnsdóttir og Gunnar Karel Másson Framkvæmdastjórar Ásbjörg og Birgit, listrænir stjórnendur Sumar- tónleika í Skálholti í ár, leggja áherslu á tónlist fyrri alda. Ljósmynd/Efi Anagnostidou Flytjendur Tónlistarhópurinn KIMI flytur verk staðartónskáldanna tveggja, Þórönnu og Gunnars, á lokatónleikum 12. júlí. Tónskáld Þóranna er annað staðar- tónskálda Sumartónleika. Ljósmynd/Friðgeir Einarsson Hugsi Gunnar Karel dvelur nú í Skálholti og semur tónverk. Opnunartónleikar Sumartónleika í Skálholti verða á morgun, 2. júlí. Cantoque Ensemble og Steinar Logi Helgason halda tvenna tónleika, 3. og 4. júlí. Guðbjörg Hilmarsdóttir og Kári Þormar verða annars vegar með fjölskyldutónleika og hins vegar tónleika undir yfirskriftinni Barokk í Skálholti, sunnudaginn 5. júlí. Á fimmtudaginn í næstu viku, 9. júlí, flytur hópurinn Cauda Collective Þorlákstíðir og íslensk þjóðlög. Lokahelgi Sumartónleika, 10.-12. júlí, verður Bachelsi með fjölskylduvæna dagskrá og KIMI og Aulos Ensemble halda tónleika. Minningartónleikar verða til heiðurs Jaap Schröder og Helgu Ingólfsdóttur. Hátíðinni lýkur sunnudag- inn 12. júlí með frumflutningi á verkum staðartónskálda Sumartónleika. Barokk, þjóðlög og ný verk ÚR DAGSKRÁ SUMARTÓNLEIKA Í SKÁLHOLTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.