Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 1
Akraneskaupstaður og Brim hafa
stofnað saman þróunarfélag um at-
vinnuuppbyggingu og nýsköpun á
Breið á Akranesi. Unnið hefur ver-
ið að undirbúningi frá því síðast-
liðið haust og hefur KPMG ráðgjöf
leitt vinnuna með þátttöku íbúa og
ýmissa hagaðila.
Ætlunin er að félagið efli at-
vinnutækifæri, nýsköpun og skap-
andi greinar á svæðinu, auk þess
sem gert er ráð fyrir nýrri íbúða-
byggð á Breið.
Fjöldi fyrirtækja, háskólar og
opinberir aðilar hafa lýst yfir vilja
til að eiga samstarf um að upp
byggist á Akranesi nýsköpunar- og
rannsóknarsetur, auk samvinnu-
rýmis.
Stofna saman
þróunarfélag
„Markmið endurgreiðslufrum-
varpsins var að efla íslenska bóka-
útgáfu. Breytt eignarhald breytir
engu um það að við erum áfram að
gefa út íslenskar bækur eftir ís-
lenska höfunda,“ segir Egill Örn
Jónsson, framkvæmdastjóri For-
lagsins, spurður hvort Forlagið sjái
fram á að fá áfram endurgreiðslu
frá ríkinu vegna útgáfu bóka ef
kaup sænska fyrirtækisins Storytel
á Forlaginu ganga í gegn.
„Við höldum áfram að gefa út ís-
lenskar bækur eftir íslenska höf-
unda og erum sem betur fer í þeirri
aðstöðu að geta sótt um endur-
greiðslu vegna þeirra,“ segir Egill.
Hann gat ekki svarað því hversu
háa upphæð Forlagið hefði fengið
frá ríkinu í formi endurgreiðslna
vegna útgáfu. »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samkomulag Frá kynningarfundi í gær.
Gefa áfram út
íslenskar bækur
F I M M T U D A G U R 2. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 154. tölublað 108. árgangur
SUMARFRÍIÐ BYRJAR Í NETTÓ!
Kjúklingalundir
Danpo, 700 gr
989KR/PK
ÁÐUR: 1.799 KR/PK
Nautalund
Fersk
3.599KR/KG
ÁÐUR: 5.998 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 2. - 5. júlí
-40%
30%
AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM MELÓNUM-45%
SAFARÍKIR
RÉTTIR FYRIR
SUMARIÐ
ÞETTA ERU
BARA
GJAFIR
BESTA
FÉLAGSLIÐ
Í HEIMI
NÝ PLATA HJALTALÍN 64 SARA BJÖRK Í LYON 63GRILLBLAÐIÐ 8 SÍÐUR
Í mikilli blíðu í Keflavík hitti ljósmyndari Morg-
unblaðsins fyrir metnaðarfullt körfuboltafólk
sem líklega greindi eitthvað á um leikinn, af svip
þeirra beggja að dæma. Stúlkan lætur ágrein-
inginn þó ekki á sig fá og gerir sig líklega til að
koma boltanum burt í snatri. Hvort hann hefur
að lokum farið ofan í viðeigandi körfu eða hvort
andstæðingur hennar hefur hlaupið hana uppi er
ekki gott að segja.
Morgunblaðið/Eggert
Kátir krakkar kastandi körfubolta í Keflavík
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ráðgert er að reisa nýja þjónustu-
miðstöð á Þingvöllum austan Þing-
vallavegar. Með henni yrðu tvö að-
komusvæði inn í þjóðgarðinn svo
seinna megi með góðu móti sinna
miklum og vaxandi fjölda ferða-
manna í framtíðinni. Þar eiga að vera
bílastæði fyrir 300 bíla og 10 rútur.
Þetta er meðal tillagna í drögum að
nýju deiliskipulagi Þingvalla sem
kynnt hafa verið. Í samtali við Morg-
unblaðið segir Einar Á.E. Sæmund-
sen þjóðgarðsvörður að hugmynd-
irnar séu enn í vinnslu og þær geti
tekið breytingum í hefðbundnu um-
sagnar- og kynningarferli.
Rafskutlur ferðast um garðinn
Frá hinni nýju þjónustumiðstöð
verður, samkvæmt tillögunum, sett-
ur upp „svífandi stígur“ eða göngu-
brú niður gjána og að Langastíg.
„Þessi leið yrði í raun önnur leið að
gjánni og myndi auka flæðið enn bet-
ur,“ segir Einar, en eftir sem áður
verður hægt að ganga í Almannagjá.
Framkvæmdunum er ætlað að
tryggja vernd einstakrar náttúru og
menningarminja þjóðgarðsins, en
um 1,5 milljónir ferðamanna hafa
sótt garðinn heim ár hvert síðustu
ár.
Samhliða er áætlað að taka í gagn-
ið rafskutlur sem komið verður fyrir
við Hakið, nýju þjónustumiðstöðina,
Leirur, Furulund og Valhallarplan
og munu ganga um skipulagssvæðið
á 15-30 mínútna fresti, en með þeim
geta gestir fengið að sjá brot af því
besta í stuttri en skemmtilegri ferð.
Svífandi brýr og rafskutlur
Drög að nýju deiliskipulagi á Þingvöllum kynnt Ný þjónustumiðstöð verði reist
Þingvellir Göngustígur á pöllum
um gjá er meðal hugmynda. MNý þjónustumiðstöð og … »18