Morgunblaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
+ Akureyri
Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands
og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína
flugleið til Akureyrar þar sem Listasafnið á Akureyri, Icelandair Hotels
Akureyri og fleiri eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi.
Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig
að núna er rétti tíminn til að kynnast Akureyri upp á nýtt.
+ Bókaðu á airicelandconnect.is
Flug og gisting frá
í eina nótt á mann
29.900kr.
Flug og bíll frá
í einn sólarhring á mann
28.900kr.
Erla María Markúsdóttir
Ragnhildur Þrastardóttir
„Við þurfum að búa við takmarkanir
og breyttan hugsunarhátt í marga
mánuði eða jafnvel ár eða lengur,“
sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir á upplýsingafundi almanna-
varna í gær.
Allir Íslendingar sem koma til
landsins munu þurfa að fara í eina
skimun á landamærunum og svo
fjögurra til fimm daga sóttkví þar til
annað veirupróf er tekið og niður-
stöður fást úr því, verði tillaga sótt-
varnalæknis til heilbrigðisráðherra
samþykkt.
Þórólfur sagði ástæðu tillögunnar
þá að vinnulagið við skimun verði að
vera með þeim hætti að hægt verði
að koma í veg fyrir að smit greinist
hjá þeim sem hefur áður fengið nei-
kvætt próf.
Af þeim sex sem greinst hafa með
virkt smit frá því að skimum hófst
við landamærin 15. júní hafa tveir
fengið neikvætt próf við komuna til
landsins en greinst nokkrum dögum
síðar.
Farþegar munu ekki þurfa að
greiða fyrir próf sem tekið er innan
við 30 dögum frá því að fyrra sýni
var tekið. Óvíst er hvenær þetta fyr-
irkomulag taki gildi og hversu lengi
það muni gilda, verði það á annað
borð samþykkt af ráðherra.
Þrjú greindust smituð í landa-
mæraskimun á þriðjudag, tvö smit-
anna eru gömul og eru hin greindu
því ekki smitandi, ekki er ljóst hvort
þriðja smitið sé nýtt eða gamalt. Þá
greindist einn með virkt smit hjá
sýkla- og veirufræðideild Landspít-
alans á þriðjudag. 434 eru í sóttkví
og í ellefu með virk smit.
Skimun í a.m.k. hálft ár
Skimun hófst á landamærum Ís-
lands fyrir hálfum mánuði og segir
Þórólfur að það fyrirkomulag muni
vara í að minnsta kosti hálft ár.
„Ég held að við þurfum að vera
viðbúin því að vera með aðgerðir sem
virki til að takmarka það að veiran
komi hingað inn.“
Þórólfur sagði aðferðafræðina
geta komið til með að breytast eftir
þróun faraldursins á heimsvísu.
„Við erum að gera allt sem við get-
um til þess að gera þetta eins vel og
hægt er, sníða aðferðafræðina okkar
að þekkingu og því sem við fáum
upplýsingar um. Hvað það stendur
lengi veit ég ekki og er ómögulegt að
segja.“ Í gær hófst gjaldtaka vegna
skimunar en hver sá sem í skimun
fer þarf að greiða 9.000 krónur,
greiði hann fyrir fram, en 11.000 ef
greitt er eftir skimun.
Páll Þórhallsson, verkefnastjóri í
forsætisráðuneytinu, sagði að í gær
hefði engin aukning orðið á óskum
um sóttkví í stað skimunar vegna
gjaldtökunnar. Einhver dæmi eru
um að fólk hafi frekar kosið að fara í
sóttkví en skimun en að sögn Páls
hefur gjaldið fyrir skimunina ekki
verið ástæða þess.
Á fundinum sagði Þórólfur ekkert
nýtt benda til þess að biðin eftir
bóluefni gegn COVID-19 sé að stytt-
ast. „Menn eru að gera framvirka
samninga um að tryggja sér 20% af
þörf eftir ár eða meira í alþjóða-
samningum. Mér sýnist ekki vera að
koma bóluefni á næstu mánuðum
sem mun bjarga öllu.“
Nægilegt fóður hér fyrir veiru
Leggur til að Íslendingar verði skyldaðir í 4-5 daga sóttkví og tvö veirupróf við komuna til landsins
2
1
2 2
1
2
1
3
1 10
3 3 1
1
1
1
1
1
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní
15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30.
Jákvæð sýni í landamæraskimun
Smitandi
Ekki smitandi
Beðið eftir
niðurstöðum
81.094 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
15.197 sýni434 manns eru í sóttkví
Uppruni smita frá 15. júní, öll sýni
Innanlands
Erlendis
Óþekktur
25 20
6 436
1.847 staðfest smit
11 eru með virkt smit
Landamæraskimun ÍE LSH
Heimild: covid.is
2
2
3
1