Morgunblaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.07.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 Mörgum þykir stefnufestustundum vanta hjá yfirvöld- um og óljóst hvað það er sem fyrir þeim vakir. En stundum birtist þessi eiginleiki þó helst í mynd þrjósku og yfirgangs og óboðlegri fyrirlitningu á sjónarmiðum ann- arra.    Verst fer á þessháttar fram- göngu hjá yfirvöld- um sem eru í þjón- ustuhlutverki gagnvart íbúum og umbjóðendum sín- um en virða sjón- armið þeirra einsk- is!    Þetta er sérlega sláandi þegarhorft er til framgöngu borgar- yfirvalda í Reykjavík. Í stóru og smáu er valtað yfir sjónarmið íbúa og hagsmunaaðila.    Miðbær borgar má sín einskis efengir fást í það hlutverk að gæða starfsemi hans lífi svo að öfl- ugur miðbær fái þrifist.    Borgaryfirvöld eru illa haldin afandúð og hatri á þörfustu þjónustutækjum þeirra sem í borg- inni búa. Gríðarlegum fjármunum hefur verið varið til að byggja upp kerfi strætisvagna og iðulega sett og auglýst háreist markmið. En aldrei tekst þó að fá þennan þátt til að anna meira en 4% af flutnings- þörfinni! Og þá eru viðbrögðin þau að reyna að þvinga borgarbúa nauðuga í vagnana með því að gera borgina illfæra fyrir aðra umferð.    Ein mynd um ógöngurnar er aðmeirihlutinn í Reykjavík er kominn í slag við Öryrkjabandalag- ið og Bókabúð Máls og menningar. Þeim er hann verstur sem hann þóttist unna mest. Dagur B. Eggertsson Meinlokumenn skella í lás STAKSTEINAR Sala nýrra bíla dróst verulega sam- an í júnímánuði samanborið við sama mánuð í fyrra. Alls seldust 824 nýir fólksbílar, eða rétt tæplega 40% minna en í júnímánuði í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Bíl- greinasambandsins. Helgast samdrátturinn fyrst og fremst af færri nýjum bíla- leigubílum, en sala þeirra hefur dregist saman um 76,1% á milli ára. Ljóst er að dræma sölu til bíla- leigna má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru. Á sama tíma hefur bifreiðasala til einstaklinga og al- mennra fyrirtækja aðeins dregist saman um 8,2%. Sala notaðra bíla er heldur betri og er á pari borið saman við júnímánuð í fyrra. Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa selst 4.193 nýir fólksbílar, eða 42,5% færri en á sama tímabili í fyrra. Til samanburðar var sú tala 7.294 í fyrra. Mest selda tegundin það sem af er ári er Toyota með 13,1% markaðshlutdeild. Þar á eftir kemur Tesla með 11,1% markaðar- ins. Hlutfall orkugjafa heldur áfram að breytast og er umtalsverð breyt- ing milli ára. Hlutfall nýorkubíla er 57% af allri sölu nýrra fólksbíla á árinu og er það ríflega tvöfalt meira en í fyrra. Mest munar um sölu rafmagnsbíla sem selst hafa í 1.069 eintökum. aronthordur@mbl.is Bifreiðasala dregst saman um 40%  Mest munar um færri bílaleigubíla hér á landi  Sala notaðra bíla á pari Morgunblaðið/Ómar Bílar Salan dregst saman milli ára. hjolhysi.com Uppblásin fortjöld Allar nánari upplýsingar og pantanir í síma 863 4449, hjolhysi.com, kriben@simnet.is, www.facebook.com/hjolhysi Bæjarhraun 24, Hafnarfirði • Opið virka daga kl. 11-18 og laugard. kl. 12-16 TRIGANO Lima 300 Passar einnig á 10-12 feta fellihýsi Eftirfarandi aukahlutir fylgja með: • Dúkur í fortjald • Þak klæðning-Roof lining • Pumpa, svunta, stangir o.fl. 149.000 Sumarsýningu lýkur laugardaginn 4. júlí. Eftir þann tíma verður tekið á móti fyrirspurnum á netinu Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Persónuvernd hefur bannað Arion banka að nýta ljósmyndir af liðum í Arion banka-mótinu í fótbolta barna frá því í fyrra á Facebook-síðu bank- ans. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðu Persónuverndar um málið. Er framangreind vinnsla myndanna ekki talin heimil sam- kvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Persónuvernd hafði borist ábend- ing um að samkvæmt færslu á Face- book-síðu Arion banka 18. ágúst 2019 yrðu liðamyndir frá Arion banka-mótinu gerðar aðgengilegar á sömu síðu innan örfárra daga. Af þeim sökum ákvað Persónuvernd að hefja frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga vegna fyrirhug- aðrar birtingar ljósmynda. Í kjölfar- ið var bankanum sent bréf þar sem vísað var til tilmæla stofnunarinnar um notkun á samfélagsmiðlum. Í bréfinu var áréttað að ljósmynd- ir af einstaklingum teldust almennt til persónuupplýsinga og bent á að í tilmælunum væri því beint til þeirra aðila sem koma að starfi með börn- um að nota ekki Facebook eða sam- bærilega miðla fyrir miðlun persónu- upplýsinga um þau. Þar skipti engu hvort um væri að ræða almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar. Í svari Arion banka við bréfinu kom fram að við inngang að svokölluðu myndatökusvæði á mótinu hefði ver- ið skilti þar sem fram hefði komið að myndir teknar á svæðinu yrðu gerð- ar aðgengilegar á Facebook-síðu bankans. Með vísan til þess taldi Ar- ion banki myndatökuna hafa verið heimila á grundvelli samþykkis. Í ákvörðunarorðum Persónu- verndar kemur fram að eingöngu megi gera myndirnar aðgengilegar með aðgangsstýrðum hætti fyrir hlutaðeigandi íþróttafélög. Morgunblaðið/Skapti Mót Arion banki fær ekki að birta myndir frá knattspyrnumóti. Arion banki má ekki birta myndir  Bannað að birta myndir frá fótboltamóti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.