Morgunblaðið - 02.07.2020, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Þótt góður árangur hafi náðst íbaráttunni við COVID-19 hér-lendis sýna ný smit undanfarið
að ekki má sofna á verðinum. Rifjum
upp hvernig er best að haga sér til að
passa upp á persónulegar smitvarnir.
Handþvottur er enn besta smit-
vörnin
Þvoum hendur reglulega yfir dag-
inn og sprittum þegar ekki eru að-
stæður til handþvotta.
Þvoum hendur eftir ferðir á salerni.
Þvoum hendur áður en við matbú-
um eða borðum.
Þvoum hendur þegar við komum
heim.
Þvoum hendur eftir að hafa farið í
verslun eða á aðra staði þar sem eru
sameiginlegir snertifletir.
Handsprittun er svo viðbót við
handþvott eða þegar ekki er aðstaða
til handþvottar. Upplagt er að hafa
handspritt í bílnum og í bakpokanum
á ferðum okkar um landið.
Snerting og fjarlægð
Snerting við annað fólk er mikilvæg
og bætir heilsu. Meðan ástandið er
svona þurfum við samt að taka hlé frá
því að snerta aðra en okkar nánustu.
Hægt er að láta í ljós væntumþykju og
gleði yfir að hitta einhvern með öðrum
hætti.
Nú er best að láta sér nægja að
brosa, veifa, leggja lófa í hjartastað,
gera loftfimmu eða nota aðrar snið-
ugar lausnir sem geta verið upp-
spretta hláturs sem er líka heilsubót.
Virðum það að enn eru margir sem
vilja halda í tveggja metra regluna
vegna eigin heilsu. Förum eftir merk-
ingum í verslunum og á öðrum stöðum
þar sem þjónusta er veitt og pössum
líka að halda hæfilegri fjarlægð frá
fólki í þjónustustörfum.
Þó að þeir sem koma til landsins fái
neikvætt svar úr sýnatöku, er ágætt
að vera meðvitaður fyrstu dagana um
að ný smit finnast ekki alltaf strax.
Ekki byrja á því að heimsækja ömmu
og afa eða aðra sem eru í áhættuhópi.
Þarna er tilvalið að taka fyrstu heim-
sóknina með glugga á milli ef allir eru
orðnir spenntir eða taka upp símann
og hringja.
Veislur
Flest erum við spennt að hitta
fólk eftir samkomutakmarkanir í
vetur og vor. Þegar þessi grein er
skrifuð er enn í lagi að halda boð og
hitta fólk ef við höfum varann á.
Sem gestgjafar berum við ábyrgð á
að hægt sé að passa upp á smitvarn-
ir
Um leið og við bjóðum fólk vel-
komið getum við sagt frá hvar er
hægt að þvo sér um hendur og hvar
sprittbrúsar eru. Göngum á undan
með góðu fordæmi og heilsum án
snertingar.
Tryggjum að fólk geti þvegið sér
um hendur áður en veitingar eru
bornar fram og bjóðum gjarnan upp á
pappírsþurkur til að fólk þurfi ekki að
nota sameiginleg handklæði.
Látum handspritt standa frammi
nálægt veitingum sem eru í boði.
Bjóðum upp á veitingar í einingum
sem fólk getur tekið án þess að nota
sameiginleg áhöld eða höfum einn að-
ila í að skammta svo allir séu ekki að
snerta kökuhnífinn eða kaffikönnuna.
Tilvalið er að hitta fólk utandyra,
þá er auðveldara að halda hæfilegri
fjarlægð.
Þegar áfengi er haft um hönd losn-
ar um hömlur og við verðum kæru-
lausari. Þegar við veitum áfengi í
heimahúsum þurfum við að hafa það í
huga. Verum meðvituð um smithættu
þegar farið er á vínveitingahús, þar
sem geta verið þrengsli og aðrir gest-
ir sem eru kærulausir.
Þjónusta heilsugæslunnar
Ef þú ert með einhver einkenni
sem geta bent til sýkingar getur þú
leitað til heilsugæslustöðvarinnar
þinnar til að fá sýnatöku. Mikilvægt
er að koma ekki heilsugæslustöðina
heldur hringja á undan sér. Sýnataka
fer ennþá þannig fram að fólk kemur
að heilsugæslustöðinni á bíl, starfs-
maður kemur út og tekur sýni í gegn-
um bílglugga.
Ef þú ert að sækja aðra þjónustu á
heilsugæslustöðvar þarf alltaf að
hringja á undan sér ef einhver ein-
kenni um kvef eða sýkingu eru til
staðar. Þannig verndum við þessa
mikilvægu þjónustu.
Í netspjalli á heilsuvera.is veita
hjúkrunarfræðingar ráðgjöf.
Við erum búin að sýna að við get-
um þetta, nú þarf bara úthald.
Sofnum ekki á verðinum
Morgunblaðið/Ásdís
Handþvottur Öflugasta vörnin gegn kórónuveirunni er almennt hreinlæti, sem börnin hafa tileinkað sér.
AFP
London Heimurinn hafði hamskipti á tímum kórónuveirunnar og enn er
langt í land að eðlilegt ástand skapist á ný eins og þessi mynd sýnir.
Heilsuráð
Margrét Héðinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Við erum öll almannavarnir.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins.
Í Gallerí Stokk í menningarmiðstöð-
inni á Stokkseyri á morgun, föstu-
daginn 3. júlí kl. 17, opnar Hanna Siv
Bjarnardóttir ljósmyndasýninguna
Heima. Myndirnar eru af heimilum og
húsmunum nokkurra af eldri íbúum á
Stokkseyri. Í kynningu um sýninguna
segir að í stuttri heimsókn sé hægt
að komast að ýmsu um manneskjuna
sem þar býr en heimilið endurspeglar
persónuleika og sögu fólks.
„Fólk safnar að sér húsgögnum og
smáhlutum, sumir hlutir hafa mikið
tilfinningalegt gildi á meðan öðrum
er hent eftir stutta viðkomu á heimili
sínu,“ segir í tilkynningu um sýn-
inguna sem stendur til loka júlí.
Sýning á Stokkeyri
Heima er best
Ljósmynd/Hanna Siv Bjarnadóttir
Heima Ein af mörgum myndum á
sýningunni sem opnuð er í dag.
Alls 1.940 fótboltastrákar úr 212
knattspyrnuliðum þátt í N1-mótinu í
knattspyrnu sem sett var á Akureyri í
gær. Fjöldi þátttakenda er nánast
hinn sami og í fyrra en liðin lítið eitt
fleiri. Breiðablik úr Kópavogi sendir
alls 16 talsins og FH 11 lið.
Í margra vitund er N1-mótið há-
punktur íþróttasumarsins fyrir unga
knattspyrnukappa og á mótinu hafa
margir góðir leikmenn tekið sín
fyrstu alvöruskref. „Kappið, leik-
gleðin, köllin og fögnin fylla bæinn og
það eru sannkölluð forréttindi að fá
að hafa umsjón með þessu frábæra
móti enda samstarfið við N1, þjálfara,
aðstandendur og keppendurna sjálfa
alltaf jafn gott, segir Sævar Pét-
ursson, framkvæmdastjóri KA.
N1 hefur um árabil stutt grasrót-
arstarf beggja kynja í knattspyrnu á
Íslandi og í samningi N1 og KSÍ er
hlúð að framtíðarleikmönnum „Við
hjá N1 erum alltaf jafn stolt af þessu
móti og reiknum eins og áður með
stórskemmtilegum dögum þar sem
keppnisskapið verður allsráðandi
með heiðarleika og drengskap í fyr-
irrúmi, segir Þyrí Dröfn Konráðs-
dóttir, markaðsstjóri N1.
Fjölmennt fótboltamót á Akureyri
Hápunktur íþróttasumarsins
Ljósmynd/Sigurður Svansson
Einbeiting Strákarnir alltaf í boltanum og finnst gaman, í blíðu sem stríðu.
Í kvöldgöngu á vegum Borgar-
bókasafns Reykjavíkur í kvöld,
fimmtudag, fer Hildur Knútsdóttir rit-
höfundur með fólk um slóðir skáld-
sagna sinna, Ljónsins og Nornarinnar.
Fetað verður í fótspor Kríu og Ölmu
í Kvosinni og Þingholtunum og höf-
undur segir frá stöðum sem urðu
henni innblástur við skrif bókanna.
Bækur Hildar hafa notið mikilla vin-
sælda en von er á þriðju og síðustu
bókinni af þessum spennandi ung-
mennabókum fyrir næstkomandi jól.
Gangan hefst fyrir utan Borgar-
bókasafnið í Grófinni kl. 20.
Gengið með Hildi
Ljón og Norn
Lág
kolvetna
PURUSNAKK