Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 26
HORNAFJÖRÐUR26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Að sögn Matthildar Ásmundardóttur
var það lán í óláni að erfiðasta tímabil
kórónuveirufaraldursins skyldi vera
á rólegasta tíma ársins fyrir ferða-
þjónustufyrirtækin í Hornafirði. Mik-
il uppbygging hefur átt sér stað á
svæðinu, samhliða örri fjölgun er-
lendra ferðamanna og er nú svo kom-
ið að u.þ.b. 2.500 gistirými eru í boði í
sveitarfélaginu. Má greina að Íslend-
ingar ætla að vera duglegir að skoða
landið í sumar en fjöldi gesta á
Hornafjarðarsvæðinu er samt aðeins
brot af því sem hann var í fyrra. „Ég
hef haft spurnir af því að það gangi
ágætlega hjá
gististöðum sem
eru tiltölulega ná-
lægt Reykjavík
en við erum það
langt frá höfuð-
borgarsvæðinu að
þeir innlendu
ferðamenn sem
leggja leið sína
hingað eru flestir
að fara hringveg-
inn,“ segir hún.
Matthildur er bæjarstjóri á Horna-
firði og segir hún að fækkun ferða-
manna í sumar hafi gefið svæðinu
annað yfirbragð. Því fer fjarri að
náttúruperlur eins og Skaftafell eða
Jökulsárlón séu mannlaus, en þar er
mun rólegra um að litast en undan-
farin ár. Íslensku gestirnir virðast
líka duglegri en oft áður að láta eftir
sér að kaupa ýmiss konar afþreyingu
og þjónustu sem hingað til hefur ver-
ið mest nýtt af erlendum ferðalöng-
um. „Landsmenn þekkja það hjá
sjálfum sér að þegar farið er í frí til
útlanda þykir sjálfsagt að leggja út
fyrir t.d. heimsókn í skemmtigarð eða
notalegri siglingu, en haldið fastar
um pyngjuna í ferðalögum innan-
lands. Í sumar hvet ég fólk til að láta
meira eftir sér enda mikil gróska ver-
ið í ferðaþjónustu undanfarin ár og
margt í boði.“
Matur og náttúra
Þeir sem hyggjast taka stefnuna í
austurátt í sumar ættu, að sögn Matt-
hildar, að byrja á að heimsækja vef-
síðuna VisitVatnajokull.is en þar má
finna yfirlit yfir afþreyingu, gistingu
og veitingastaði í næsta nágrenni
Vatnajökuls. Eru alls kyns áhuga-
verðar hálendis-, fjalla- og jöklagöng-
ur í boði, ísklifur og jeppaferðir svo
nokkur dæmi séu nefnd. „Það hentar
vel fjölskyldufólki eins og mér að fara
í kajaksiglingu á Heinabergslóni eða
himsækja Ingólfshöfða. Einnig er
klassískt að fara í siglingu á Jökuls-
árlóni og gaman að fara í vélsleðaferð
á jökul, í hesta- eða gönguferð. Þá er
ómissandi að snæða góða máltíð á
einhverjum af þeim fjölmörgu góðu
veitingastöðum sem við eigum á
Höfn. Væri auðveldlega hægt að
dvelja hér í viku og upplifa eitthvað
nýtt á hverjum degi hvort sem er í af-
þreyingu, náttúruupplifun eða í mat-
argerð,“ segir Matthildur en margir
veitingastaðanna á Hornafirði leggja
ríka áherslu á humarrétti enda Höfn
mikill humarveiðibær. „Í Hoffelli má
síðan komast í heita potta, og sund-
laugin á Höfn er alveg frábær.“
Reikna má með blómlegu menn-
ingarlífi á Hornafirði í sumar og ættu
þeir sem eru listhneigðir m.a. að
koma við í Listasafni Svavars Guðna-
sonar en að auki halda listamenn
reglulega sýningar í byggingunni
Miklagarði nálægt bátahöfninni á
Höfn. „Svo fer ekki milli mála að ís-
lenskir tónlistarmenn ætla að vera á
þeytingi um landið í sumar og útlit
fyrir að í viku hverri verði einhver
tónleikaviðburður á Höfn en þeir fara
yfirleitt fram á skemmtistaðnum
Hafinu,“ segir Matthildur.
Matgæðingar finna margt við sitt
hæfi á Hornafirði og nefnir Matt-
hildur fyrst af öllu sjávarafurðir af
öllu tagi. Seljavallakartöflurnar
þykja einnig fyrsta flokks og er hægt
að fá í dag glænýjar kartöflur á svæð-
inu enda Hornafjörður mikið kart-
öfluhérað. „Einnig búum við svo vel
að hafa handverksbrugghúsið Jón
Ríka sem rekur veitingastað fyrir ut-
an bæinn og opnar á næstu vikum
nýjan stað á Höfn. Sælkerar ættu
líka að smakka framleiðsluna frá kúa-
búinu Árbæ sem býr til sinn eigin ís
auk þess að reka gistingu, ellegar
kíkja við í einu stærsta fjósi landsins í
Flatey.“
Þjóðgarðurinn segulstál
Spurð um langtímahorfurnar á
svæðinu segir Matthildur að í augna-
blikinu séu dökk ský út við sjóndeild-
arhringinn. Atvinnuleysistölur eru
með hæsta móti og munar þar mest
um erfiðleika hjá ferðaþjónustufyr-
irtækjunum. Höfn er þekkt fyrir öfl-
uga humarútgerð og hjálpar ekki að
undanfarin ár hefur verið dregið tölu-
vert úr humarkvóta í takt við minnk-
andi stofnstærð. „Þá hefur orðið
loðnubrestur undanfarin ár sem
kemur illa við sveitarfélagið enda er-
um við með nokkuð góðan loðnu-
kvóta,“ segir Matthildur en það er
einkum uppbygging ferðaþjónust-
unnar sem hefur stuðlað að hægfara
en stöðugri fjölgun íbúa undanfarin
ár.
Þó að horfurnar séu óljósar til
skemmri tíma er Matthildur bjartsýn
á þróunina til lengri tíma. „Ferða-
menn munu halda áfram að koma til
Íslands og Vatnajökulsþjóðgarður
mun laða til sín æ fleiri gesti. Ýmis
verkefni eru í pípunum og t.d. í bí-
gerð stórt lúxushótel á Svínhólum í
Lóni. Allar forsendur eru fyrir því að
hagur svæðisins vænkist áður en
langt um líður.“
Vill taka við alþjóðaflugi
Til að uppbyggingin geti gengið
enn betur þarf að bæta innviði og
nefnir Matthildur að lengi hafi verið
kvartað yfir ástandi samgöngu-
mannvirkja og fjölda einbreiðra brúa
á svæðinu. Segir hún upplagt að nota
tækifærið og ráðast í framkvæmdir á
meðan minna er um ferðamenn. „Við
erum að vonast til þess að það klárist
núna að leggja nýjan veg yfir Horna-
fjarðarfljót líkt og staðið hefur til í
áraraðir, og þannig stytta hringveg-
inn um u.þ.b. 12 kílómetra. Nú þegar
eru hafnar framkvæmdir á öðrum
svæðum í sveitarfélaginu og munum
við t.d. fá þrjár nýjar tvíbreiðar brýr í
stað einbreiðra.“
Þá grunar Matthildi að það myndi
opna ný og spennandi tækifæri fyrir
ferðaþjónustuna í Hornafirði ef flug-
völlurinn á Höfn gæti starfað sem al-
þjóðlegur flugvöllur fyrir litlar og
millistórar vélar. Allmargar einka-
þotur hafa heimsótt flugvöllinn á
Höfn á undanförnum árum en þurfa
fyrst að lenda á Reykjavíkur- eða
Keflavíkurflugvelli þar sem toll-
afgreiðsla fer fram. „Það þarf ekki
mikið til að flugvöllurinn fullnægi öll-
um skilyrðum, og strandar helst á því
að hægt sé að tollskoða farangur
þeirra sem eiga leið um völlinn. Með
verkefnum eins og nýja lúxushótelinu
í landi Svínhóla gæti skapast grund-
völlur fyrir sterkefnaða ferðamenn
að koma rakleiðis til Hornafjarðar og
verja jafnvel einni eða tveimur vikum
í návígi við Vatnajökul og næra hér
líkama og sál.“
Hvetur ferðamenn til að gera vel við sig
● Humarveisla bíður matgæðinga á Höfn í Hornafirði og náttúrufegurðin einstök í Vatnajökulsþjóðgarði
Ljósmyndir/Sveitarf. Hornafjörður
Upplifun Að róa á kajak innan um ísjaka er reynsla sem gleymist seint og er ekki í boði víða í heiminum.
Matthildur
Ásmundardóttir
Sælureitur Sundlaugin á Höfn er í uppáhaldi hjá heimamönnum.
Ingibjörg Sveinsdóttir og meðeig-
endur hennar létu hendurnar
standa fram úr ermum og tókst að
byggja veitingastað frá grunni á
um það bil hálfu ári. „Heppileg lóð
var laus hérna við höfnina á Höfn í
Hornafirði, á klöppinni þar sem
gamla íshúsið
stóð frá 1920 og
fram á miðja öld-
ina en þar voru
geymdir ísjakar
sem sóttir voru
m.a. í Hoffellslón
og notaðir til að
kæla fiskinn sem
hér var landað,“
útskýrir Ingi-
björg. „Fram-
kvæmdir hófust í
október 2016 og opnuðum við á
páskum 2017 í nýju húsi sem byggt
var í sama stíl og gamla íshúsið, en
veitingastaðurinn fékk nafn við
hæfi: Íshúsið Pizzeria.“
Auk Ingibjargar standa að
rekstrinum maður hennar Stefán
Þór Arnarson kokkur, Atli Arnar-
son bróðir hans og Anna Lind Þór-
hallsdóttir kona Atla. „Við Stefán
höfðum áður rekið veitingavagn í
Skaftafelli og komið að veitinga- og
hótelrekstri með ýmsum hætti, og
það er gamall draumur okkar að
opna alvöru veitingastað.“
Er óhætt að segja að Íshúsið hafi
slegið í gegn og hafa pizzurnar rok-
ið út. Af umsögnum má greina að
gestir eru hæstánægðir með gæði
matarins en líka hrifnir af útsýninu
yfir höfnina og gömlu húsin. „Við
leggjum ríka áherslu á gæðahrá-
efni og hreykjum okkur sér-
staklega af pizzum þar sem horn-
firski humarinn er notaður sem
álegg. Matseðilinn hefur haldið
áfram að þróast og bættist við fisk-
ur og franskar þar sem við notum
nýveiddan þorsk sem við kaupum
beint af útgerðinni í bænum.
Humarsúpa er líka í boði enda varla
hægt að reka veitingastað á Höfn
án þess að bjóða upp á humarsúpu,
en uppskriftin varð til í veitinga-
vagninum okkar í Skaftafelli á sín-
um tíma.“
Bragðið fær að njóta sín
Þeir sem reynt hafa geta vottað
það að humar og pizza fara ein-
staklega vel saman. Humarinn kem-
ur til Íshússins af heimabátunum og
er smár og bragðmikill eins og á við
um íslenskan humar. „Við bjóðum
upp á tvær útfærslur: Annars vegar
er humarpizza með hefðbundinni
pizzusósu, mozzarella-osti, papriku,
hvítlauk, klettasalati og fetaosti, og
er um að ræða mjög klassíska hum-
arpizzu. Vinsælust er samt hum-
arpizza þar sem rauðu pizzusósunni
er skipt út fyrir hvíta, og fer ofan á
pizzuna mozzarella-ostur, kirsu-
berjatómatar, grillaðir ætiþistlar,
basilika og pestó. Allt er hráefnið
ferskt og fá bragðeinkenni humars-
ins að njóta sín vel.“
Að sögn Ingibjargar hefur
reksturinn gengið ágætlega í sum-
ar og er eitthvað farið að bera á er-
lendum gestum. Íslendingar eru þó
í meirihluta, og heyrir Ingibjörg á
þeim að margir hafa látið allt of
langan tíma líða frá síðustu heim-
sókn á Austurland. „Fólk er að nota
tækifærið og drífa sig af stað að
skoða landið á meðan enn eru til-
tölulega fáir erlendir ferðamenn og
hægt að nýta hagstæð tilboð hjá
gististöðum og alls kyns þjónustu-
fyrirtækjum. Strax eftir 17. júní
fjölgaði Íslendinga á veitingastaðn-
um og voru margir hissa að sjá hvað
mikið hefur breyst og hve mikil
uppbygging átt sér stað frá því þeir
komu hingað síðast fyrir 10 eða
jafnvel 20 árum.“
ai@mbl.is
Hornfirskur humar hentar vel á pizzu
● Þar sem áður voru geymdir ísjakar til að kæla fisk eru núna eldaðar pizzur af allra bestu gerð
Vandað Stundum er aðsóknin slík að fullt er út úr dyrum hjá Íshúsinu.Ingibjörg Sveinsdóttir
MVið elskum Ísland »40