Morgunblaðið - 02.07.2020, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
Allt til
kerru-
smíða
2012
2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Flosi Arnórsson skipstjóri, Einar Þ.
Pálsson vinnslustjóri og Þórir Hálf-
dánarson vélstjóri voru um borð í
fiskveiðiskipinu Victoríu undan
ströndum Ómans þegar settar voru
á ferðatakmarkanir til þess að draga
úr útbreiðslu kórónuveirunnar. Þeir
voru búnir að vera 158 daga á sjó
þegar loks var hægt að koma þeim
heim og lentu þeir í Keflavík síðdeg-
is á þriðjudag.
„Þetta varð auðvitað yndislegra
eftir því sem liðu fleiri dagar,“ svar-
ar Flosi spurður um hvernig hafi
verið að koma heim eftir svona langa
fjarveru. „Nú er ég bara að fara að
skella mér í nudd og ætla bara að
slaka á. Fæ mér kannski bjór í
kvöld,“ bætir hann við.
Hann segir bjórinn í kvöld ekki
vera þann fyrsta frá því að komið
var í land þar sem þeir félagar gátu
fengið sér einn þegar þeir millilentu
í Minsk í Hvíta-Rússlandi.
„Eftir þrjá mánuði var maður far-
inn að sjá í hillingum séríslenskan
mat eins og steiktan fisk í raspi, lær-
issneiðar og læri með Ora grænum
og svona. Eftir fjóra mánuði þá var
maður farinn að sjá í hillingum sjálf-
an sig út í náttúrunni með konunni
og einhver voðaleg rómantík. En eft-
ir fimm mánuði var það eina sem
maður sá fyrir sér vodki og bjór,“
segir skipstjórinn og hlær.
Flosi kveðst hafa fengið neikvætt
svar úr skimuninni á flugvellinum og
nú sé stefnt að því að njóta íslenska
sumarsins.
Gat ekki kysst konuna
„Það er alltaf gott að koma heim,“
svarar Þórir, spurður um heimkom-
una. Hann segir það fyrsta sem
hann hafi gert hafi verið að leggjast
upp í rúm. „Ekki gat maður kysst
konuna, hún kemst ekki,“ segir hann
og hlær, en Þórir er alla jafna bú-
settur ásamt eiginkonu og dóttur á
Möltu.
Hann kveðst búast við því að
mæðgurnar komi til landsins í dag
og hyggst fjölskyldan ferðast um Ís-
land í sumar en leggja leið sína til
Möltu í ágúst.
Skipverjar Þeir Einar, Flosi og Þórir voru lengi í góða veðrinu í Óman.
Komu heim eftir
158 daga á sjó
Fastir um borð vegna faraldursins
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Það er engin ástæða til þess að ör-
vænta þó svo að stofnvísitala
norsk-íslenskrar síldar hafi verið
lækkuð um 13% í kjölfar alþjóðlegs
leiðangurs sem fór fram í maí í
Noregshafi, heldur er tilefni til
þess að búast við vexti stofnsins á
næstu árum. Þetta segir Guð-
mundur J. Ósk-
arsson, sviðs-
stjóri
uppsjávarsviðs
Hafrann-
sóknastofnunar,
er leitað er skýr-
inga á breyt-
ingum í stofn-
matinu.
„Það er alltaf
óvissa í kringum
vísitölur. Þó það
sé lækkun á vísitölu þýðir það ekki
endilega að stofninn sé á niðurleið.
Þvert á móti teljum við að hann sé
á uppleið. Það merkilegasta sem
kemur úr þessum leiðangri er að
árgangurinn 2016 er virkilega stór,
eins og við höfum talið hann vera.
Í fyrsta sinn erum við að fá mæl-
ingu á hann eftir að hann kemur
inn í Noregshaf, en hann var í Bar-
entshafi. Þessi árgangur er um
helmingur af allri mælingunni og
það þýðir að við erum að mæla
töluvert mikið minna af eldri síld.“
Guðmundur segir að árum saman
hafi uppistaðan í veiðunum verið
síðasti stóri árgangurinn, eða 2004-
árgangurinn. Allir sem komu eftir
það hafa verið minni, þar til 2016-
árgangurinn kom til sögunnar.
„Það munar miklu að fá svona
sterkan árgang. Þessi 2016-
árgangur er að koma inn í veiðina
núna að litlu leyti en er að sýna sig
og er stór, þetta er árgangur sem á
eftir að leiða til þess að stofninn
fari upp á við á næstu árum.“
Loksins að koma
Niðurstöður mælinganna verða
notaðar á fundi Alþjóðahafrann-
sóknaráðsins (ICES) í ágúst þar
sem vinna við stofnstærðarmat og
ráðgjöf um nýtingu uppsjávar-
fiskistofna fer fram. Spurður hvort
lækkuð stofnvísitala sé vísbending
um að ICES leggi til að nýting
stofnsins verði minni, segir Guð-
mundur ekkert öruggt í þeim efn-
um.
„Þessi vísitala er raunar ein
mæling af mörgum sem við gerum
á stofninum sem fer inn í stofnmat-
ið. Við tökum tillit til aflasamteng-
ingarinnar í fyrra líka og svo erum
við með vísitölur frá fyrri árum
sem koma inn í þetta líka. Það er
leiðangur við Noreg í september
sem fer inn í stofnmatið og svo er
leiðangur í Barentshafi til að skoða
síld í nóvember. Þannig að margs
konar gögn fara inn í stofnmatið,
það er því ómögulegt að segja á
þessari stundu hver útkoman úr því
verður.
Ég er ekkert svartsýnn þó að
þessi vísitala fari niður á við. Í mín-
um huga er stofninn í jafnvægi og
mun fara upp á við. […] Auðvitað
er stofninn búinn að vera í lægð
lengi eftir mörg ár án stórs ár-
gangs sem er loksins að koma.“
Ljóst er að stórir árgangar geta
verið stofninum mjög mikilvægir,
enda getur síldin orðið fimmtán til
tuttugu ára gömul, að sögn Guð-
mundar.
Leiðangur
Fjölþjóðlegur makrílleiðangur
hófst í gær, en samhliða því að
rannsaka makrílinn stendur til að
safna gögnum um síldina. „Þá fáum
við líka vísitölu fyrir síldina, en sú
vísitala hefur aldrei verið notuð í
stofnmatið. Hún er miklu styttri
tímasería en við fáum gögn um út-
breiðsluna á síldinni,“ útskýrir
Guðmundur að endingu.
Norsk-íslenski síldar-
stofninn taki að vaxa
Morgunblaðið/Alfons
Silfur Stofnvísitala norsk-íslensku síldarinnar lækkaði um 620 þúsund tonn,
en búist er við að stofninn taki við sér á næstu árum eftir hnignun um tíma.
Stóri árgang-
urinn sem beðið
var eftir mættur
Guðmundur
J. Óskarsson
Afurðaverð á markaði
30. júní 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 330,56
Þorskur, slægður 302,14
Ýsa, óslægð 431,71
Ýsa, slægð 371,99
Ufsi, óslægður 97,76
Ufsi, slægður 118,02
Gullkarfi 105,93
Blálanga, slægð 287,21
Langa, óslægð 176,43
Langa, slægð 122,61
Keila, óslægð 44,17
Keila, slægð 67,05
Steinbítur, óslægður 56,74
Steinbítur, slægður 115,48
Skötuselur, slægður 630,76
Grálúða, slægð 243,97
Skarkoli, slægður 210,37
Þykkvalúra, slægð 367,60
Sandkoli, óslægður 29,00
Sandkoli, slægður 51,00
Bleikja, flök 1.443,00
Hlýri, óslægður 117,18
Hlýri, slægður 85,48
Hvítaskata, slægð 35,00
Kinnfiskur/þorskur 792,00
Lifur/skötuselur 12,00
Lúða, slægð 651,14
Lýr, slægður 74,00
Lýsa, óslægð 5,00
Lýsa, slægð 51,20
Náskata, slægð 21,00
Skata, slægð 104,41
Undirmálsýsa, slægð 150,67
Undirmálsþorskur, óslægður 130,19
Undirmálsþorskur, slægður 97,89