Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 40
HORNAFJÖRÐUR40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Eflaust þykir mörgum Stefanía
Ragnarsdóttir öfundsverð af því að
vinna í Vatnajökulsþjóðgarði og fá
að vera í návígi við íslenska náttúru
og stórbrotinn jökulinn alla daga.
Stefanía segir síbreytileika náttúr-
unnar þó valda því að starfsmenn
þjóðgarðsins þurfi alltaf að vera á
tánum. „Hér er náttúran lifandi og
síkvik og eftir að hafa útbúið kort og
skilti og komið fyrir víða um þjóð-
garðinn má alltaf eiga von á eldgosi
sem breytir öllu,“ segir hún glettin.
Vatnajökulsþjóðgarður var stofn-
aður 2008 en Stefanía hóf þar störf
árið 2012, var fyrst landvörður en er
núna fræðslu-
fulltrúi. Hún seg-
ir að gestum hafi
fjölgað ár frá ári
og heimsóttu
nærri því milljón
manns garðinn í
fyrra. Eins og við
var að búast hef-
ur gestum fækk-
að mjög í sumar
og segir Stefanía
að það hafi breytt
andrúmsloftinu á svæðinu. „Ég held
að mörgum þyki þetta kærkomin
endurræsing og við sem störfum í
þjóðgarðinum erum afskaplega
spennt að fá Íslendinga í heimsókn í
sumar. Höfum við útbúið sérstaka
fræðsludagskrá og aðlagað hana að
því að gestir þjóðgarðsins næstu
mánuðina verða nær eingöngu Ís-
lendingar. Áður hefur fræðslu-
dagskráin farið að miklu leyti fram á
ensku en verður núna á íslensku.“
Upplýsingar um fræðslu-
dagskrána má finna á vefsíðu þjóð-
garðsins, Vatnajokulsthjod-
gardur.is. Finna má fimm gesta-
stofur í þjóðgarðinum og eru þær
allar með fræðsludagskrá daglega
fram í miðjan ágúst og gestir frædd-
ir í viðráðanlegum gönguferðum um
næsta nágrenni. Gestastofurnar eru
líka allar með barnastund daglega
þar sem yngstu gestirnir fá að læra
um og upplifa náttúruna á skemmti-
legan hátt. Ekkert þarf að borga
fyrir að heimsækja gestastofurnar
og fræðsludagskráin ókeypis en að-
eins þarf að greiða fyrir að nota
tjaldsvæðin og eins fyrir að aka inn í
Skaftafell. Fer gjaldtakan við veginn
inn að Skaftafelli fram með full-
komnum búnaði sem les númera-
plötur bíla sem fara þar um og greitt
í gegnum snjallsímaforrit.
Á heimsminjaskrá UNESCO
Þjóðgarðurinn er svo stór og svo
margt áhugavert að sjá að Stefanía
segir það geta verið langtímaverk-
efni að ætla að skoða allar helstu
náttúruperlurnar á svæðinu. „Ég
ráðlegg fólki að byrja á að heim-
sækja vefsíðu þjóðgarðsins og finna
þar flipann „skipuleggja heimsókn“.
Í gestastofunum er hægt að nálgast
hagnýt ráð og upplýsingar um
gönguleiðir,“ segir hún og minnir á
nokkra hápunkta sumardagskrár-
innar, s.s. þegar efnt verður til
brennu í Skaftafelli um verslunar-
mannahelgina, og geimgönguferðar
í nágrenni Öskju, á sömu slóðum og
bandarískir geimfarar æfðu sig fyrir
ferðir til tunglsins.
Að skoða íslenska náttúru kallar á
hæfilega aðgát og brýnir Stefanía
fyrir gestum að kynna sér veður-
spána og hringja í gestastofurnar
sem eru í beinu sambandi við land-
verði á hverjum stað og fylgjast m.a.
náið með ástandi jökuláa. „Um þess-
ar mundir eru t.d. miklar leysingar
og getur það haft áhrif á hvernig
best er að ferðast á milli staða. Á
vefsíðu Vegagerðarinnar má síðan
finna upplýsingar um ástand vega
en hálendisvegirnir opnast hver af
öðrum eftir því sem líður á sumarið.
Þeir sem heimsækja þjóðgarðinn
muna líka vitaskuld eftir því að vera
í góðum skóm og fatnaði við hæfi, og
ekki síst að hafa fjarskiptin í lagi og
nóg rafmagn eftir á símanum.“
Heimsókn í Vatnajökulsþjóðgarð
ætti að vera ógleymanleg enda á
svæðið enga sína líka. Á síðasta ári
var garðurinn valinn inn á heims-
minjaskrá UNESCO fyrir það að
vera einstakt dæmi um jarðsögu
heimsins. „Hér má finna öll helstu
jarðfræðifyrirbæri sem tengjast
jöklum og eldvirkni; móbergshryggi,
eldkeilur, háhitasvæði og landslag
mótað af skriðjöklum,“ segir Stef-
anía. „Þetta svæði er einstakt á
heimsvísu.“
Spennt að fá Íslendinga í heimsókn í sumar
Ljósmynd / Júlía Björnsdóttir
Drottning Tignarleg Herðubreið er ein af mörgum perlum Vatnajökulsþjóðgarðs og var á sínum tíma valin þjóðarfjall Íslands í kosningu.
● Áhugaverð fræðsludagskrá verður í Vatnajökulsþjóðgarði alla daga í sumar og fer fram á íslensku
enda ekki von á mörgum erlendum ferðamönnum ● Þjóðgarðurinn komst nýlega á heimsminjaskrá
Stefanía
Ragnarsdóttir
Þeir sem ætla að nota sumarið til að
ferðast um Ísland ættu að skoða
vandlega þann möguleika að fljúga
frekar en að aka. Flugfélagið Ernir
fagnar 50 ára afmæli í ár og býður
af því tilefni upp á 50% afslátt af
fargjöldum. „Við gerum þetta bæði
til að fagna þessum tímamótum hjá
félaginu en líka til að koma betur til
móts við landsmenn og gera þeim
auðveldara að fljúga innnanlands í
sumar og nýta sér alla þá afþrey-
ingu og þjónustu sem er í boði á
áfangastöðum okkar,“ segir Ásgeir
Örn Þorsteinsson, sölu- og mark-
aðsstjóri flugfélagsins.
Það getur gjörbreytt ferðalaginu
að fljúga frekar en að aka og segir
Ásgeir að muni ekki síst um tíma-
sparnaðinn. Ernir fljúga frá
Reykjavík til Vestmannaeyja, Hafn-
ar í Hornafirði, Húsavíkur, Bíldu-
dals og Gjögurs, en allt eru þetta
staðir sem tekur um og yfir 6 klst.
að ferðast til á bíl. „Eina und-
antekningin er Vestmannaeyjar,
þar sem aka þarf í um 2,5 tíma og
svo bíða eftir ferjunni. Allir hinir
áfangastaðirnir kalla á töluverðan
akstur og getur fólk sparað sér
mikinn tíma og líka sparað peninga
með því að fljúga,“ segir hann.
„Með því t.d. að fljúga frekar en að
aka 5-6 klukkustunda leið er fólk í
reynd að græða allt að 12 klukku-
stundir til að verja á áfangastaðn-
um og njóta svæðisins, og upplagt
að fljúga ef ætlunin er að skjótast í
stutta helgaferð.“
Þá á það við um alla áfangastaði
flugfélagsins að þar eru starf-
ræktar bílaleigur. „Má fá mjög hag-
stæð kjör í sumar og er fólk með al-
gjört ferðafrelsi þó að
heimilisbíllinn hafi verið skilinn eft-
ir á höfuðborgarsvæðinu,“ segir
Ásgeir. „Á öllum þeim stöðum sem
við fljúgum til er fjölbreytt þjón-
usta í boði, gisting, afþreying og
góður matur og verða ferðalangar
ekki fyrir vonbrigðum.“
Magnað útsýni yfir landið
Kórónuveirufaraldurinn varð
þess valdandi að margir landsmenn
hafa ekki stigið um borð í flugvél í
óvenjulangan tíma. Ásgeir segir
ekki gerða kröfu um það í innan-
landsflugi að farþegar beri andlits-
grímur en þeim tilmælum sé beint
til farþega að gæta ýtrasta hrein-
lætis. „Það gerum við sjálf með því
að þrífa vandlega og reglulega all-
ar vélar milli flugferða og öll þau
rými sem farþegar og starfsfólk
nota, og eins með því að tryggja
gott aðgengi að sótthreinsispritti.“
Ernir flýgur til allra áfangastaða
5-6 sinnum í viku, nema til Gjögurs
sem flogið er til einu sinni í viku í
sumar. Má reikna með að ferðum
fjölgi ef eftirspurn eykst þegar líð-
ur á sumarið. Afmælistilboð flug-
félagsins varir út ágústmánuð og
segir Ásgeir miðaverðið ákaflega
hagstætt og gilda fyrir öll fargjöld
hvort sem um er að ræða nettilboð
eða almenn verð. „Það má t.d. finna
flugmiða til Hafnar í Hornafirði
sem kosta allt niður í 10.300 kr aðra
leið og gætu því tveir flogið fram
og til baka fyrir rétt rúmar 40.000
kr.“
Flugið sjálft getur líka verið
ævintýri og segir Ásgeir að þótt
aldrei sé hægt að lofa því að
skyggni sé gott alla leið jafnist fátt
á við það að líta út um flugvél-
argluggann þegar háskýjað er eða
heiðskírt og sjá alla fegurð landsins
breiða úr sér. „Það er algjörlega
einstakt að sjá landið úr lofti, og
hvað þá að koma inn til lendingar á
stöðum eins og Höfn í Hornafirði
þar sem flogið er yfir og niður með
jöklinum.“ ai@mbl.is
● Góð þjónusta er í boði á áfangastöðum Flugfélagsins Ern-
is og vel hugsað um gesti ● 50% afsláttur af flugi út ágúst
Þægindi Ásgeir segir engu líkt að sjá landið úr lofti þegar háskýjað er eða
heiðskírt. Í aðflugi á Höfn í Hornafirði er flogið niður með jöklinum.
Geta sparað sér hálfan sólarhring með því að fljúga