Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 46

Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020 það sem maður þarf að kynna sér á staðnum svo ég er spenntur að smakka allan góða mat- inn þarna,“ segir hann kátur í bragði. „Einn af mínum bestu vinum er frá Höfn svo ég er búinn að fá fullt af ráðum frá honum varðandi það sem ég þarf að sjá svo dagurinn fram að útsendingunni verður vel nýttur. Þar ætlum við m.a. að tala um „slow tourism“ sem er fyrirbæri sem ég hef ekki heyrt talað um áður!“ sagði hann. „Við á K100 erum mjög spennt fyrir því að stækka útsendingarsvæðið okkar þannig að við náumst á Höfn. Fyrsti liðurinn í því verður að við verðum með tilraunaútsendingu á föstu- daginn á FM 106,5 og vonumst við til að íbúar á Höfn taki vel í það,“ bætti hann við. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Stjórnendur útvarpsþáttanna Ísland vaknar og Síðdegisþáttarins elska Ísland og ætla að gerast ferðamenn í eigin landi og ferðast um landið með hlustendum í sumar, en næsti áfangastaður K100 er Höfn í Hornafirði. Dagskrá K100 föstudaginn 3. júlí verður öll úr útsendingarhjólhýsi K100 á besta stað í bænum fyrir utan Sundlaug Hafnar. Þangað munu koma ýmsir góðir gestir úr bænum. Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar, með þau Kristínu Sif, Ásgeir Pál og Jón Axel innanborðs, hefst stundvíslega klukkan sex að morgni. Auðun Georg verður með fréttirnar eins og venjulega og Siggi Gunnars og Logi Bergmann í Síðdegisþættinum munu skoða hvað gerir Höfn að áhugaverðum stað og eft- irsóknarverðum til að heimsækja og búa á. Dagurinn verður vel nýttur Siggi Gunnars hlakkar til að heimsækja Höfn en hann segist í samtali við Morgun- blaðið og K100.is vera sérstaklega spenntur að kynnast matarmenningunni í bænum sem oft er kallaður Humarbærinn. „Það verður gaman að koma á Höfn en þangað hef ég ekki komið í mörg ár, áður en túristabyltingin hófst hér á landi, svo það verð- ur spennandi að sjá alla uppbygginguna sem hefur átt sér stað þar í ferðamennsku. Mér skilst að matarmenningin sé efst á lista yfir Morgunblaðið/Golli Fegurð Það er margt hægt að gera og skoða á Höfn sem stundum er nefnd Humarbærinn. K100 heillast af Höfn í Hornafirði Útvarpsstöðin K100 ætlar að kynnast landinu betur í sumar og kynna þá stórkostlegu staði sem eru í boði fyrir landsmenn innanlands. Á morgun, 3. júlí, verður öll dagskráin í beinni frá Höfn í Hornafirði. Hress Ísland vaknar verður á sínum stað frá útsendingarhjólhýsinu á Höfn. Siggi og Logi K100 ferðast með frábærum fararskjóta frá Toyota og hjólhýsi frá Víkurverki. Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • Selena undirfataverslun Mix & Match sundföt frá Panache Frábær snið og fjölbreyttar stærðir Höfum opnað netverslun www.selena.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.