Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
það sem maður þarf að kynna sér á staðnum
svo ég er spenntur að smakka allan góða mat-
inn þarna,“ segir hann kátur í bragði.
„Einn af mínum bestu vinum er frá Höfn svo
ég er búinn að fá fullt af ráðum frá honum
varðandi það sem ég þarf að sjá svo dagurinn
fram að útsendingunni verður vel nýttur. Þar
ætlum við m.a. að tala um „slow tourism“ sem
er fyrirbæri sem ég hef ekki heyrt talað um
áður!“ sagði hann.
„Við á K100 erum mjög spennt fyrir því að
stækka útsendingarsvæðið okkar þannig að
við náumst á Höfn. Fyrsti liðurinn í því verður
að við verðum með tilraunaútsendingu á föstu-
daginn á FM 106,5 og vonumst við til að íbúar
á Höfn taki vel í það,“ bætti hann við.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Stjórnendur útvarpsþáttanna Ísland vaknar
og Síðdegisþáttarins elska Ísland og ætla að
gerast ferðamenn í eigin landi og ferðast um
landið með hlustendum í sumar, en næsti
áfangastaður K100 er Höfn í Hornafirði.
Dagskrá K100 föstudaginn 3. júlí verður öll
úr útsendingarhjólhýsi K100 á besta stað í
bænum fyrir utan Sundlaug Hafnar. Þangað
munu koma ýmsir góðir gestir úr bænum.
Morgunþáttur stöðvarinnar, Ísland vaknar,
með þau Kristínu Sif, Ásgeir Pál og Jón Axel
innanborðs, hefst stundvíslega klukkan sex að
morgni. Auðun Georg verður með fréttirnar
eins og venjulega og Siggi Gunnars og Logi
Bergmann í Síðdegisþættinum munu skoða
hvað gerir Höfn að áhugaverðum stað og eft-
irsóknarverðum til að heimsækja og búa á.
Dagurinn verður vel nýttur
Siggi Gunnars hlakkar til að heimsækja
Höfn en hann segist í samtali við Morgun-
blaðið og K100.is vera sérstaklega spenntur að
kynnast matarmenningunni í bænum sem oft
er kallaður Humarbærinn.
„Það verður gaman að koma á Höfn en
þangað hef ég ekki komið í mörg ár, áður en
túristabyltingin hófst hér á landi, svo það verð-
ur spennandi að sjá alla uppbygginguna sem
hefur átt sér stað þar í ferðamennsku. Mér
skilst að matarmenningin sé efst á lista yfir
Morgunblaðið/Golli
Fegurð Það er margt hægt að gera og skoða á Höfn sem stundum er nefnd Humarbærinn.
K100 heillast af Höfn í Hornafirði
Útvarpsstöðin K100 ætlar að
kynnast landinu betur í sumar
og kynna þá stórkostlegu staði
sem eru í boði fyrir landsmenn
innanlands. Á morgun, 3. júlí,
verður öll dagskráin í beinni frá
Höfn í Hornafirði.
Hress Ísland vaknar verður á sínum stað frá
útsendingarhjólhýsinu á Höfn.
Siggi og Logi K100 ferðast með frábærum fararskjóta frá Toyota og hjólhýsi frá Víkurverki.
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • Selena undirfataverslun
Mix & Match
sundföt frá Panache
Frábær snið og fjölbreyttar stærðir
Höfum opnað netverslun www.selena.is