Morgunblaðið - 02.07.2020, Qupperneq 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
AYJA - K129
3ja sæta, 2ja sæta og stóll.
Margir litir af áklæði eða leðri.
Komið og skoðið úrvalið
úr silki
LEIKFÖNG
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Við munum spila efni af nýrri plötu
sem kemur formlega út 9. júlí en
verður samt til sölu á tónleikunum,“
segir bassaleikarinn og tónskáldið
Ingibjörg Elsa Turchi um tón-
leikana sem hún heldur ásamt
hljómsveit sinni í Kaldalóni í Hörpu í
kvöld, fimmtudag, og hefjast þeir
klukkan 20.
„Þessi lög eru eftir mig og voru
tekin upp í Sundlauginni í sept-
ember síðastliðnum,“ bætir hún við.
Þetta er fyrsta breiðskífa Ingi-
bjargar og nefnist Meliae. Hún
sendi árið 2017 frá sér stuttskífuna
Wood/Work og var hennar aðal-
hljóðfæri, bassinn, þar skiljanlega í
aðalhlutverki. „Á nýju plötunni eru
auk nýrra laga nokkrar nýjar út-
gáfur af lögum á Wood/Work. Og
með tónleikunum ætlum við að fagna
útgáfunni,“ segir Ingibjörg svo.
„Með mér í hljómsveitinni eru
Hróðmar Sigurðsson á gítar, Magn-
ús Trygvason Eliassen á trommur
og slagverk, Magnús Jóhann Ragn-
arsson á flygil og Rhodes-píanó og
Tumi Árnason á saxófón auk þess
sem hann grípur í klarínett.“
Ingibjörg og hljómsveit munu
koma víðar fram á árinu; eru bókuð
á Jazzhátíð í september og á Nordic
Jazz Comets í Helsinki í desember.
„Þessir þrennir tónleikar eru plan-
aðir og vonandi verður eitthvað
meira,“ segir hún og vonast til að
undir lok ársins verði ferðalög milli
landa orðin auðveldari og þau nái að
troða upp í Finnlandi.
En hvernig lýsir Ingibjörg tónlist-
inni á nýju plötunni – er bassinn út-
gangspunkturinn hjá henni?
„Þetta er jú bassalínudrifið, bass-
inn er oft miðpunkturinn. Þetta er
instrúmental tónlist, blanda af
djassi, tilraunatónlist, mínimalisma
og mikill spuni.“
–Nú munið þið leika á djasshátíð-
um, skilgreinirðu þá tónlistina sem
djass?
Hún hugsar sig um. „Kannski að
einhverju leyti,“ er svo svarið. „Svo
getur þetta líka passað inn annars-
staðar, þetta er mjög flæðandi í
formi.“ Og hvað það varðar er hljóm-
sveitin vel skipuð, allir liðsmennirnir
þekktir fyrir að takast vel á við allra-
handa tónlist.
Þá var ekki aftur snúið
Ingibjörg Elsa hefur verið afar
sýnileg í íslensku tónlistarlífi síðustu
ár og hefur komið fram með mörg-
um af vinsælustu listamönnum þjóð-
arinnar. Hún leikur til að mynda á
bassann í Stuðmönnum, lék á bassa
á plötunni 18 konur með Bubba
Morthens, með Emilíönu Torrini á
Bræðslunni og Drangey festival
2014 og 2015, með Teiti Magnússyni,
Soffíu Björgu og Ylju svo einhver
séu nefnd. Þar að auki kemur hún
reglulega fram undir eigin nafni þar
sem hún kannar hljóðheim raf-
magnsbassans. Í tilkynningu sem
send var út vegna tónleikanna í
kvöld segir að tónlist Ingibjargar
megi lýsa sem eins konar blöndu
hins rafmagnaða og hins nátt-
úrulega. Í gegnum endurtekningar
skapi hún „einstakan og dáleiðandi
hljóðheim, sem hún brýtur upp með
melódískum bassalínum. Þannig
gerir músík hennar tilraun til að
víkka út mörk þess sem rafmagns-
bassinn er fær um.“ En hvernig stóð
á því að hún byrjaði að leika á bassa?
„Ég lærði á mörg hljóðfæri frá því
ég var lítil og í menntaskóla byrjaði
ég í hljómsveit, sem heitir Rökkur-
ró, en ekki á bassa til að byrja með.
En svo tók ég bassann upp og þá var
ekki aftur snúið. Ég fór svo að læra
meira á hann í tónlistarskóla FÍH.
Ég tengdi svakalega sterkt við hann.
Ég pikkaði upp allt sem mér fannst
áhugavert í bassaleik og það var
bara eitthvað óútskýranlega spenn-
andi við hljóðfærið.“
– Semurðu tónlistina á bassann?
„Bæði og. Ég er alltaf með hann
við hendina, skrifa tónlistina niður
og tek upp og prófa á bassa og gít-
ar.“
– Þú hefur verið áberandi á tón-
leikasviðum á síðustu árum, með
ýmsum listamönnum, eins og Bubba
og Stuðmönnum. Hvernig er það að
vera þannig í fremstu röð „sessjón-
leikara“?
„Ég hef verið nokkuð mikið í
þessu á undanförnum árum og mér
finnst frábært að fá tækifæri til að
spila fjölbreytta tónlist og að fá að
læra af fólki sem er búið að vera
lengi í bransanum. Það hefur verið
gaman að læra öll þessi lög og að
prófa þetta allt. Það eru auðvitað
forréttindi að komast í öll þessi
verkefni.“
– Og þú auðheyrilega það fjölhæf-
ur bassaleikari að allt verður jafn
áhugavert.
„Já, mér finnst þetta allt áhuga-
vert, spennandi að leggjast í nýja
hljóðheima og gaman að kynna mér
nýja hluti.“
Var að ljúka tónsmíðanámi
– Er nóg af verkefnum til að halda
þér upptekinni í tónlistinni hér á
landi?
„Heldur betur. Ég var líka að
klára tónsmíðanámið við Listahá-
skóla Íslands. Hlaut svo þann heiður
að vera valin úr hópi umsækjenda að
semja fyrir Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands á vegum Ung-Yrkju og það
verk verður flutt á næstu Myrku
músíkdögum. Það er því nóg að
gera, það vantar ekki.“
En gat Ingibjörg tengt þá tónlist
sem hljómar á nýju plötunni, Meliae,
tónsmíðanáminu í LHÍ?
„Nei, ég gerði það nefnilega ekki,
þó ég hefði eflaust getað það ef ég
vildi,“ segir hún og hlær. „Samt eru
nú ýmsir tæknilegir hlutir sem ég
tileinkaði mér í náminu sem ég not-
aði vissulega í þessa tónsköpun. Ég
finn mér marga farvegi fyrir tónlist-
ina. Það er gaman að hafa margt í
gangi, vinna að einu, hvíla það svo og
fara að gera allt annað. Ég var því að
vinna að annarri tónlist í náminu en
heyrist á plötunni og á tónleikunum.
Í skólanum var ég að semja meira
fyrir aðra hljóðfærahópa en eru með
mér á plötunni.“
– Og beið bassinn bara á meðan?
„Nei nei, hann var með mér í öll-
um hinum verkefnunum samhliða.
Og ég held alltaf áfram að æfa mig
og bæta mig sem bassaleikari.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bassaleikarinn „Ég pikkaði upp allt sem mér fannst áhugavert í bassaleik og það var bara eitthvað óútskýranlega
spennandi við hljóðfærið,“ segir Ingibjörg Elsa Turchi um rafmagnsbassann sem hún leikur bæði og semur á.
„Bassinn er oft miðpunkturinn“
Ingibjörg Elsa Turchi bassaleikari heldur útgáfutónleika með hljómsveit sinni í Kaldalóni í Hörpu í
kvöld Fyrsta breiðskífa hennar að koma út Hefur leikið með Stuðmönnum, Emilíönu og Bubba
Söfn á meginlandi Evrópu eru nú opnuð hvert á fætur
öðru eftir lokun vegna kórónuveirunnar og þar á með-
al var Pompidou-safnið í París opnað í gær. Þar er
meðal annars sýning tileinkuð verkum Christos og eig-
inkonu hans, Jeanne Claude, en Christo, sem öðlaðist
heimsfrægð fyrir að pakka inn ásamt Jeanne Claude
bæði merkum byggingum og náttúrufyrirbærum, lést á
dögunum. Hér er módel af Pont Neuf-brúnni í París
innpakkaðri en þann fræga gjörning frömdu þau árið
1985.
AFP
Aftur hægt að skoða Pompidou-safnið