Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 72
ER HAFIN!
ALLT AÐ
50%
AF
VÖLDUM VÖRUM
2. júli - 10. ágúst
Útsalan
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
Gítarleikarinn Reynir del Norte heldur í tónleika-
ferðalag hringinn um landið, 2.-17. júlí, þar sem hann
mun leika flamenco-tónlist. Fyrstu tónleikarnir verða í
dag, fimmtudag, kl. 17, í Einkunnum við Borgarnes.
Reynir, sem starfar sem flamenco-listamaður á Gra-
nada á Spáni, mun flytja lög af sinni fyrstu sólóplötu
sem kom út í fyrra, sem og íslensk þjóð- og dægurlög í
hans eigin útsetningu fyrir flamenco-gítar. Næstu tón-
leikar verða á Hótel Selfossi föstudaginn 3. júlí kl.
20.30 og í Hannesarholti 4. júlí kl. 20.
Reynir del Norte leikur flamenco-
tónlist í hringferð um landið
FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 184. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hans í Everton eygja
von um Evrópusæti eftir góðan sigur á Leicester, 2:1, í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Gylfi skoraði
seinna mark Everton í leiknum en það var fyrsta mark
hans í deildinni í átta og hálfan mánuð. »62
Gylfi skoraði langþráð mark
og Everton eygir Evrópusæti
ÍÞRÓTTIR MENNING
draga 3.000 tonna dráttarbát frá Nýfundnalandi til
Danmerkur. „Skrúfur bátsins voru ekki fjaðraðar og
við vorum mánuð á siglingu.“
Áhafnir Óðins og Ægis fengu það erfiða verkefni að
aðstoða dráttarbát sem var með flotkví í togi til
Hafnarfjarðar 1998. Jón Páll segir að beita hafi þurft
mikilli útsjónarsemi í slæmu veðri og þakka megi fyrir
að ekki hafi farið illa, en þeir Vilbergur Magni Ósk-
arsson, skipherra á Óðni, hafi skipulagt aðgerðina við
að taka kvína í tog. „Ekkert mátti út af bera.“
Siglingin með hlera fyrir gluggum á Óðni í brjáluðu
veðri frá Grundarfirði til Flateyrar með björgunarfólk
eftir snjóflóðið 1995 og sú sýn sem við blasti í þorpinu
situr í Jóni Páli. „Erfitt var að horfast í augu við rúst-
irnar, reynsla sem gleymist aldrei. Þetta var átakan-
legt.“
Bræðurnir hafa lengi notað sumarfríin til að gera
upp húsakost í Akureyjum og Jón Páll sér fram á góð-
ar stundir. „Þar eru engar áhyggjur,“ segir stýrimað-
urinn sem hefur að mestu unnið á aðgerðasviði Gæsl-
unnar undanfarin ár. „Mjög góður vinnuandi er hjá
Gæslunni, ég hef starfað með frábæru og skemmtilegu
fólki og á eftir að sakna þess.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sjómennska hefur verið lifibrauð Jóns Páls Ásgeirs-
sonar í yfir hálfa öld, en hann lýkur farsælum samtals
35 ára ferli hjá Landhelgisgæslunni í dag, á 70 ára af-
mælinu.
„Ævintýri,“ segir stýrimaðurinn um sjómennskuna,
en hann stígur áfram ölduna með Jóhanni, bróður sín-
um. Þeir stunduðu grásleppuveiðar á trillunni Brana
RE frá Akureyjum á Breiðafirði í yfir 30 ár, hættu því
2015, en nota bátinn til sjóstangaveiði og gamans. „Við
höldum áfram að njóta lífsins,“ segir afmælisbarnið,
sem er í Akureyjum á þessum tímamótum.
Jón Páll bjó í Stykkishólmi til sex ára aldurs, fór í
Iðnskólann og náði sér í meistararéttindi í netagerð.
„Pabbi var netagerðarmaður og ég vann mikið í net-
unum sem polli,“ segir hann. „Haustið 1969 plataði Jón
Sigurðsson, vinur minn, mig í síldartúr í Norðursjóinn
sem háseti á nótaskipinu Reykjaborg RE 25 og ég hef
verið sjóari síðan.“ Hann var á síld og loðnu og rifjar
upp að hann hafi farið á þorsknót síðasta árið sem hún
var leyfð. „Þorskdrápið var svakalegt, við fengum nær
600 tonn af stórum hrygningarþorski á sex dögum, en
síðan var nótin bönnuð.“
Þorskastríð og björgunarstörf
Eftir þrjú ár á Reykjaborginni fór Jón Páll í Stýri-
mannaskólann, sigldi á skipum Eimskipafélagsins í frí-
um og lauk farmannaprófi 1975. 2. júlí var hann skráð-
ur á varðskipið Ægi og var hjá Gæslunni næstu fimm
árin, þar af lögskráður hvern einasta dag 1976. „Þegar
ég byrjaði var landhelgin 50 mílur og þá vorum við að
eltast við Þjóðverja innan lögsögunnar, klipptum til
dæmis vörpuna aftan úr einum eftir langa eftirför og
skutum púðurskotum að öðrum.“ Landhelgin var færð
út í 200 mílur 15. október 1975 og þá hófst þriðja og
síðasta þorskastríðið sem stóð til næsta vors. „Þá var
harðasta baráttan,“ segir Jón Páll, sem fór á Baldur í
janúar 1976. „Baldur var ansi sjúskaður eftir þessi
átök,“ minnir hann á og getur þess sérstaklega þegar
gat kom á síðu freigátu í árekstri skipanna. „Sjóliði
bjargaði málverki af drottningunni sem var á leið út
um gatið ásamt fleiri hlutum og fékk heiðursmerki fyr-
ir!“
Jón Páll var á nótabátum í áratug, byrjaði á Eldborg
HF og endaði á Sigurði RE. Haustið 1989 var engin
loðna og hann fór að taka túr og túr sem stýrimaður
hjá Gæslunni, meðal annars á Fokker-vél hennar í um
sex vikur eftir áramótin. „Þá fór ég á loðnu á Sigurði
og við fengum 18.000 tonn á einum mánuði, en síðan
hef ég alfarið verið hjá Gæslunni.“
Margs er að minnast á undanförnum áratugum. „Ég
hef lent í ýmsu,“ segir Jón Páll og nefnir að fiskveiði-
eftirlit fyrir Evrópusambandið í Miðjarðarhafinu, á
Flæmska hattinum og í Síldarsmugunni sé eftir-
minnilegt. „Þegar við vorum í Miðjarðarhafinu var yfir
40 gráðu hiti, mikill raki og engin loftkæling.“ Tveggja
mánaða úthald við aðstoð flotans í Barentshafi hafi líka
tekið á. „Spara þurfti vatnið og til dæmis var sjór sett-
ur í salernin.“ Eitt sinn hafi Týr verið leigður til að
Kátur sjóari í hálfa öld
Jón Páll Ásgeirsson lýkur farsælum ferli á 70 ára afmælinu
Stýrimaðurinn Jón Páll Ásgeirsson hefur sinnt mikil-
vægum störfum fyrir Gæsluna í 35 ár.