Morgunblaðið - 24.07.2020, Side 12

Morgunblaðið - 24.07.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020 86 ÁRA Starfsmannafatnaður fyrir hótel og veitingahús Hótelrúmföt og handklæði fyrir ferðaþjónustuna Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Vikapiltinn • Hótelstjórnandann Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is Allt lín fyrir: Hótelið • Gistiheimilið Bændagistinguna • Airbnb Veitingasalinn • Heilsulindina Þvottahúsið • Sérverslunina Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við tókum málin í okkarhendur og ákváðum aðbúa sjálf til þær aðstæðursem við vildum hafa að- gang að og geta boðið öðrum upp á. Við erum hópur fólks með svipaðar hugmyndir um það hvernig vinnu- staðir eigi að vera reknir. Fraktal er starfsmannarekið vegankaffihús í bígerð, en þar verða líka vinnustofur fyrir listafólk eða aðra sem eru að skapa eitthvað. Fraktal er í raun ennþá í sköpun en við fórum af stað í október og fengum fljótlega hús- næði,“ segir Friðrik Boði Ólafsson, einn þeirra sem standa að baki fyrirtækinu Fraktal sem er til húsa í JL-húsinu við Hringbraut í Reykja- vík. „Við sem stöndum að baki Fraktal erum fjölþjóðlegur hópur frá Íslandi, Þýskalandi, Póllandi, Frakklandi, Spáni og Afganistan. Við komum úr ólíkum áttum, úr þjónustugeiranum, úr tölvunarfræði, menningarfræði, umönnunarvinnu og láglaunastörfum. Einnig eru meðal okkar listamenn og aðgerða- sinnar. Að sjálfsögðu eru allir vel- komnir á Fraktal og við reynum að láta fólki líða þannig, hvaðan sem það kemur og hvort sem það ætlar aðeins að fá sér kaffi eða leigja vinnustofu.“ Viðburðir tengdir sjálfbærni Fraktal býður einnig upp á ýmsa viðburði og nú þegar hafa nokkrir farið fram. „Við höfum haft jógakennslu, danskennslu, kimchikennslu, kynn- ingu á loftslagsbreytingum, tón- listarviðburði og fleira. Við eigum von á því að viðburðirnir verði áfram eitthvað í þá áttina en við höfum sérstakan áhuga á viðburðum sem tengjast á einhvern hátt sjálfbærni. Þessa stundina erum við í fram- kvæmdum og tökum því ekki við fleiri viðburðum að svo stöddu.“ Friðrik Boði segir að þau á Fraktal trúi á mannlegt samstarf frekar en samkeppni, og að fólk njóti sín best þegar það hafi stjórn yfir bæði einkalífi sínu og starfi. „Samvinnufélög starfsmanna eru til úti um alla Evrópu og Amer- íku, en við teljum það vera sann- gjarna leið til að skipuleggja vinnu- staði. Stærsta og frægasta dæmið um slíkt er Mondragon-samsteypan á Spáni, en þar starfa yfir 74.000 manns. Persónulega fannst mér Motion Twin, sem eru tölvuleikja- framleiðendur í Frakklandi, vera mjög hvetjandi dæmi. Ég held að besti samnefnarinn fyrir Fraktal sé eitthvert af þeim anarkista- bakaríum sem finnast hér og þar um veröldina,“ segir Friðrik Boði og bætir við að undarlega mikið af þröskuldum standi í vegi fyrir þeim við að stofna fyrirtækið eins og þau vilji hafa það. „Draumurinn væri náttúrlega að það væri jafn auðvelt að stofna starfsmannasamvinnufélag eins og það er að stofna hefðbundið eigin- hlutafélag.“ Unga fólkinu á Fraktal tókst að safna með hópfjármögnun á Karo- linafund rúmlega sjö þúsund evrum til að geta opnað vegankaffihús á Fraktal. „Ef okkar bjartsýnustu spár rætast og okkur gengur vel í sam- starfinu við borgina vonumst við til að opna kaffihúsið eftir fjóra mánuði.“ Starfsmannarekið vegankaffihús Unga fólkið í Fraktal trú- ir á mannlegt samstarf frekar en samkeppni og að fólk njóti sín best þeg- ar það hefur stjórn á einkalífi sínu og starfi. Fraktal Fjölþjóðlegur hópur, f.v.: Natka (liggur), Raphaël, Phil, Christina, Marti, Tom, Mariam og Friðrik Boði. Fyrir framan eru þau Anna og Máni. Notaleg stemning Hljómsveitin Nornagal með tónleika á Fraktal í tilefni hópfjármögnunar. Rokktónlist mun hljóma víða um Ár- bæjarsafn nk. sunnudag, 26. júlí, en þá er gestum boðið að upplifa ferða- lag aftur til sjötta og sjöunda áratug- arins. Rokk og ról er yfirskrift dags- ins og eru gestir og starfsfólk hvött til að klæða sig upp í stíl við þema dagsins. „Félagar í Fornbílaklúbbi Íslands kíkja í heimsókn með drossíurnar sínar, spjalla við gesti og geta gefið góð ráð um meðferð fornbíla. Í Hábæ vinnur húsfreyjan Katrín Rósa fyrir sér með því að greiða nágrannakon- unum. Hún veit allt um galdurinn á bak við flotta pin-up-hárgreiðslu. Í Lækjargötu stendur Heiða förðunar- fræðingur og farðar dömurnar áður en þær skella sér á ball í sínu fínasta pússi. Ilmurinn af nýbökuðum lumm- um leikur um svæðið í kringum gamla Árbæinn og á baðstofuloftinu verður unnið að tóskap,“ segir í tilkynningu frá safninu um viðburðinn. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til kl. 16 síðdegis. Allir eru velkomnir, ókeypis aðgangur fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Vert er að taka fram að opið verður á kaffihúsi safnsins í Dillonshúsi. Rokk og ról á Árbæjarsafni næsta sunnudag Upplifið ferðalag aftur til sjötta og sjöunda áratugarins Æðislega flottar Þessar hafa klætt sig upp í viðeigandi klæðnað á safninu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.