Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 8
LÍFSLOK 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020 Þ egar umræðan um dán- araðstoð fór af stað hérna í Kanada var ég ekki fylgjandi henni. Ég þekki til löggjafarinnar í bæði Hollandi og Sviss, þar sem faðir minn býr, og finnst hún of víð- tæk. Þess utan var ég sannfærð um að líknarmeðferðin sem við beitum væri svo góð að ekki væri þörf fyrir þetta úrræði. Hér í Kanada er lög- gjöfin hins vegar miklu strangari og smám saman áttaði ég mig á því að dánaraðstoð, eins og hún er skil- greind hér, kemur ekki í staðinn fyr- ir líknarmeðferðina, heldur er hún hluti af henni. Það breytti afstöðu minni. Ég styð þessa löggjöf af heil- um hug í dag enda er hún mjög vönduð, fagleg og byggist umfram allt á mannúð. Það er mikilvægt og í raun sjálfsögð mannréttindi að fólk með langt gengna sjúkdóma hafi þennan valkost og geti fengið að deyja með virðingu og reisn.“ Þetta segir Guðlaug Einarsdóttir, klínískur sérfræðingur í krabba- meinshjúkrun og líknandi meðferð, sem starfar innan stórs líknarteymis í York Region, úthverfi Toronto í Kanada, og hefur verið hluti af dán- araðstoðarteymi þar um slóðir síðan lögin tóku gildi árið 2016. Guðlaug hefur búið í York Region í bráðum ellefu ár. Áður bjó hún í ellefu ár í Bandaríkjunum með sex ára við- komu hér heima í millitíðinni. Hún er í hópi átta sérfræðinga sem annast líknarmeðferðir og kennslu fyrir lækna, hjúkrunar- fræðinga og aðra heilbrigðisstarfs- menn á svæðinu. Skoðanir voru mjög skiptar Alls búa 1,2 milljónir í York en um 330 þúsund í hverfinu sem Guðlaug sinnir. Hlutverk hennar er að vera milliliður milli lækna og hjúkrunar- fræðinga við meðferð en ávallt er unnið út frá því að fólk sem þarf á líknandi meðferð að halda fái hana heima en ekki á spítölum, sé því við komið. Í hennar teymi eru fimm sér- hæfðir læknar sem hún getur ráð- fært sig við. Guðlaug annast á bilinu 90 til 120 sjúklinga hverju sinni. Að- eins lítið brot þeirra óskar eftir dán- araðstoð. Guðlaug segir brögð hafa verið að því að sjúklingar óskuðu eftir dánar- aðstoð í Kanada áður en slík aðstoð var bundin í lög í landinu árið 2016. Það ýtti umræðunni af stað. „Það var löngu tímabært að ræða þetta mál og skoðanir voru mjög skiptar. Til að byrja með voru margir á móti þessum áformum og vísuðu máli sínu til stuðnings bæði til Hollands og Sviss. Þar er löggjöfin á hinn bóginn miklu víðari en hérna, þar sem skilyrðin fyrir aðstoðinni eru mjög ströng. Það er þó aðeins mis- jafnt eftir fylkjum; hér í Ontario þarf sjúklingur til dæmis ekki að ráðfæra sig við sálfræðing og félags- ráðgjafa eins og í Saskatchewan- fylki, aðeins lækni og sérhæfðan hjúkrunarfræðing,“ segir Guðlaug. Að hennar áliti er löggjöfin mjög skýr en til að byrja með vantaði þó að gera breytingu á hegningarlög- unum. Fyrir vikið gátu sumir læknar og hjúkrunarfræðingar ekki hugsað sér að veita dánaraðstoð enda refsivert að svipta annan mann lífi fyrir beiðni hans. „Þetta var lag- að strax árið 2017 til að fyrirbyggja alla réttaróvissu og síðan hefur eng- inn vafi leikið á því að dánaraðstoð er lögleg,“ segir Guðlaug. Í þeim tilvikum sem Guðlaug þekkir til er raunar hvergi getið um dánaraðstoð á dánarvottorðinu, heldur sjúkdómur viðkomandi ein- staklings skráður sem dánarorsök. „Strangt til tekið kemur þetta eng- um við nema sjúklingnum sem óskar eftir aðstoðinni og teyminu sem veit- ir hana og réttarlækninum sem okk- ur er skylt að láta vita.“ Hluti af líknandi meðferð Líknandi meðferð miðast við að gera dauðvona sjúklingi lífið eins bæri- legt og unnt er uns yfir lýkur. Líknarsvefn er lokaskrefið í þeirri meðferð, þegar talið er affarabest að halda viðkomandi í djúpum svefni til að lina þjáningar hans. Dánaraðstoð snýst á hinn bóginn um að grípa inn í ferlið og flýta fyrir andláti sjúk- lingsins. „Það er auðvitað munur á þessu en afleiðingin er alltaf sú sama; þannig að ég lít á dánarað- stoð, eins og hún þekkist hér í Kan- ada, sem hluta af líknandi meðferð. Þegar gripið er til dánaraðstoðar hér þá á sjúklingurinn yfirleitt ekki langt eftir; kannski eina eða tvær vikur. Sá tími getur þó auðvitað ver- ið lengri.“ Óski sjúklingur eftir dánaraðstoð gildir einu hvort læknirinn er hlynntur henni eður ei, honum er skylt að vísa sjúklingnum áfram til fagaðila í kerfinu. „Það vilja ekki all- ir læknar koma að þessu ennþá en það breytir ekki því að þeir geta ekki stöðvað sjúklinginn. Þeir verða að færa beiðnina til bókar og senda sjúklinginn áfram. Það eru sérhæfð- ir læknar sem taka lokaákvörðun, ekki hvaða læknir sem er.“ Ferlið er skýrt. Sjúklingurinn þarf að leggja fram skriflega beiðni um dánaraðstoð og rökstyðja hana vel. Að því búnu skrifar hann undir að viðstöddum tveimur óháðum og vandalausum vottum. Fjölskylda hans hefur ekkert um málið að segja og dæmi eru um að hún sé áform- unum gjörsamlega andvíg og jafnvel ekki viðstödd þegar hinsta stundin rennur upp. „Það er mun sjaldgæf- ara en hitt en í nokkrum tilfellum sem ég hef komið að hefur þetta gerst. Eðli málsins samkvæmt er það afskaplega erfitt; reynir veru- lega á fólk, bæði sjúklinginn og að- standendur. Sem betur fer er þetta ekki algengt, alla vega ekki hérna hjá okkur,“ segir Guðlaug sem þekkir meira að segja dæmi þess að ókunnugt fólk hafi boðið einstaklingi að deyja heima hjá sér vegna þess að viðkomandi vildi ekki deyja á stofnun eða spítala og fékk ekki að gera það hjá ættingjum. „Þetta er þó algjör undantekning.“ Stofnaður hefur verið stuðnings- hópur í York Region fyrir aðstand- endur fólks sem fengið hefur dán- araðstoð. „Það var ákveðin skömm og hula yfir þessu í byrjun en það er sem betur fer að breytast og umræðan orðin opnari. Það skiptir miklu máli enda er það mikilvægur liður í sorg- arferlinu að geta talað opinskátt um tilfinningar sínar,“ segir Guðlaug. Ekki fyrir hvern sem er Eins og fram kom í Sunnudags- blaðinu fyrir viku, í viðtali við Ingva Hrafn Jónsson vegna ákvörðunar bróður hans, Jóns Arnar, um að þiggja dánaraðstoð, eru skilmálarnir mjög strangir. „Það þýðir ekkert fyrir hvern sem er að óska eftir þessari aðstoð. Það er algjört lyk- ilatriði í þessari umræðu,“ segir Guðlaug. Fólk þarf að hafa náð átján ára aldri og um ólæknandi sjúkdóm þarf að vera að ræða. Löggjöfin nær ekki til fólks með geðsjúkdóma, langvar- andi fötlun eða læknanlega sjúk- dóma. Skilyrði fyrir aðstoðinni er að sjúklingurinn eigi rétt á heilbrigð- isaðstoð í Kanada og sé tryggður fyrir henni; er það gert til að koma í veg fyrir það sem kallað er „sjálfsvígstúrismi“. Þannig gæti ís- lenskur sjúklingur ekki óskað eftir þessari aðstoð nema tryggja sér fyrst aðgang að heilbrigðisþjónust- unni í Kanada og útvega sér trygg- ingu. Allt ferlið er sjúklingnum að kostnaðarlausu. Ekki er heimilt að óska eftir að- stoðinni fyrir fram; þannig að fólk sem greinist með elliglöp eða alz- AFP Mannréttindi að fá að deyja með reisn Guðlaug Einarsdóttir, klínískur sérfræðingur í krabbameinshjúkrun og líknandi meðferð í Kanada, segir löggjöf um dánaraðstoð hafa sannað gildi sitt frá því hún var tekin upp í landinu árið 2016. Sjálf á Guðlaug aðild að teymi sérfræðinga sem kemur að slíkri aðstoð. Hún segir löggjöfina hnitmiðaða og þröngt skilgreinda og að hún hafi þann tilgang einan að heimila dauðvona fólki að kveðja þennan heim með reisn. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is „Dauðinn er alla jafna ekki mikið í umræðunni. Þess vegna er ég einmitt svo ánægð með að þessi umræða um dánaraðstoð sé aðeins að byrja þarna heima,“ segir Guðlaug Einarsdóttir.  10

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.