Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020 Skrif hafa verið í blöðum aðundanförnu um að nú ríði á aðlaða „afburðafólk“ utan úr heimi hingað til lands, einn vill leggja íslensku af sem þjóðtungu svo við sköpum slíku fólki engin óþarfa vand- ræði, annar vill sérstakar skattaíviln- anir afburðafólkinu til handa, sem reyndar hefur ratað inn í skattapakka Bjarna fjármálaráðherra „vegna covid“ eins og sumt annað sem nú er brallað í skjóli þeirrar veiru. Ekki vil ég gera lítið úr því hve mikilvægt það hefur reynst íslensku samfélagi að fá hingað til lands fram- úrskarandi einstaklinga til starfa á ýmsum sviðum, til dæmis á sviði lista. Hér eru dæmin ófá allar götur frá miðri öldinni sem leið, ekki síst í tón- listinni. Þetta fólk varð okkur öllum lyfti- stöng, dýpkaði tilveruna, blés kappi í kinn, efldi sjálfstraust okkar sem samfélags og gerði það fyrir vikið djarfara og kröftugra en ella. Þetta var sú hugsun sem ein- kenndi framfara- sókn aldamóta- kynslóðarinnar sem svo hefur ver- ið nefnd – þeirrar kynslóðar sem endurskóp Ísland á öndverðri öld- inni sem leið. Þar var viðkvæðið að allir yrðu að vera með, saman héld- um við framfara- kyndlinum á lofti. Menningin væri allra, sagði Stefán Ögmundsson, for- ystumaður prent- ara og stofnandi Menningar- og fræðslusambands alþýðu, og Ragnar í Smára færði öreigum Íslands dýr- mætustu listaverk sem völ var á og til varð Listasafn alþýðu. Þetta var fyrir þá tíð að mennta- stofnanir ættu að verða bestar í heimi eða í hópi hundrað bestu eins og um skeið var í tísku, heldur áttu þær ein- faldlega að verða samfélaginu að sem mestu og bestu gagni. Viljanum til framfara er ekki hægt að ganga að sem vísum. En framfaraviljann er hægt að glæða. Sigurður Nordal, heimspekingur, fræðimaður og kennari, án efa einn fremsti hugsuður Íslands fyrr og síðar, flutti merka fyrirlestra í út- varpinu árið 1940. Efni þeirra átti eftir að seytla inn í þjóðarvitundina á komandi árum og áratugum. Um það get ég borið vitni því móðir mín sá til þess að öll hennar börn læsu hina stórkostlegu dæmisögu Sig- urðar um ferðina sem aldrei var far- in. Ætla ég að svo hafi verið á fleiri heimilum. Í dæmisögunni segir frá ungum manni á annarri öld í Rómaveldi sem lifað hafði gjálífi en fékk nú það verkefni frá Marcusi Árelíusi keis- ara að undirbúa ferð sem krefðist allra hans mannkosta, alls þess sem hann hefði fram að bjóða, ætti hann að rísa undir ætlunarverki sínu. Hinn ungi maður, Lucius, venti nú sínu kvæði í kross, sagði skilið við fyrri lifnað og tók að rækta sjálfan sig til huga og handar. Ferðin var svo aldrei farin. En Lucius hafði hins veg- ar fundið allt hið besta sem með hon- um bjó. Þetta vildi Sigurður Nordal kenna samferðarmönnum sínum til eftirbreytni; hann vildi vekja hvern og einn til lífsins, ekki til að þjóna sínum sérþörf- um einvörðungu heldur fyrst og fremst til að efla samfélagið. Á fæðingar- degi Sigurðar Nordals, 14. september 2010, flutti Pétur Gunnarsson, rit- höfundur, frá- bæra hugvekju um þennan mikla andans jöfur. Gerði Pét- ur að sínum loka- orðum í þessari minningarræðu orð Sigurðar sjálfs sem hann hafði flutt á Rafnseyri við Arnarfjörð á lýðveldis- daginn 17. júní árið 1944: „Hvert býli, hver uppblásinn og vanræktur blettur biður um betri að- hlynningu eftir þúsund ára arðrán. Jafnvel sjórinn biður um vernd og ræktun, ef hann á að halda áfram að vera bjargargjafi og auðsuppspretta. … Hvert barn, sem fæðist og oss er falið til forsjár, biður um tækifæri til þess að þroskast samkvæmt hæfi- leikum sínum og fá að neyta krafta sinna í réttlátu og samstilltu þjóð- félagi, þar sem enginn smælingi er fyrir borð borinn, hver óbreyttur liðs- maður gerir skyldu sína eftir bestu vitund og hver sá, sem þykist kall- aður eða kvaddur er til forystu telur það eitt frama sinn og gæfu að vinna Íslandi því dyggilegar sem honum er meira veitt…“. Ef íslenskan væri horfin þyrfti flinkan þýðanda til að snara texta á borð við þennan og fortíðinni yfirleitt yfir á ensku. Til þess þyrfti afburðamenn. Spurningin er hvernig þeir verði best búnir til, innfluttir á sérreglum eða samkvæmt aðferð Sigurðar Nordals; að notast við það sem í okkur býr – hverju og einu, rækta mannkostina og samkenndina. Ég aðhyllist aðferð Sigurðar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Aðferð Sigurðar Nordals Úr ólík- um áttum Ögmundur Jónasson ’Skrif hafa verið íblöðum að undan-förnu um að nú ríði á aðlaða „afburðafólk“ utan úr heimi hingað til lands, einn vill leggja íslensku af sem þjóðtungu svo við sköpum slíku fólki engin óþarfa vandræði, annar vill sérstakar skattaíviln- anir afburðafólkinu til handa, sem reyndar hef- ur ratað inn í skatta- pakka Bjarna fjármála- ráðherra „vegna covid“ eins og sumt annað sem nú er brallað í skjóli þeirrar veiru. Höfundur mælist til þess að við fylgjum orðum Sigurðar Nordal og notumst við það sem í okkur býr. Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.