Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Side 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020
Skrif hafa verið í blöðum aðundanförnu um að nú ríði á aðlaða „afburðafólk“ utan úr
heimi hingað til lands, einn vill leggja
íslensku af sem þjóðtungu svo við
sköpum slíku fólki engin óþarfa vand-
ræði, annar vill sérstakar skattaíviln-
anir afburðafólkinu til handa, sem
reyndar hefur ratað inn í skattapakka
Bjarna fjármálaráðherra „vegna
covid“ eins og sumt annað sem nú er
brallað í skjóli þeirrar veiru.
Ekki vil ég gera lítið úr því hve
mikilvægt það hefur reynst íslensku
samfélagi að fá hingað til lands fram-
úrskarandi einstaklinga til starfa á
ýmsum sviðum, til dæmis á sviði lista.
Hér eru dæmin ófá allar götur frá
miðri öldinni sem leið, ekki síst í tón-
listinni.
Þetta fólk varð okkur öllum lyfti-
stöng, dýpkaði tilveruna, blés kappi í
kinn, efldi sjálfstraust okkar sem
samfélags og
gerði það fyrir
vikið djarfara og
kröftugra en ella.
Þetta var sú
hugsun sem ein-
kenndi framfara-
sókn aldamóta-
kynslóðarinnar
sem svo hefur ver-
ið nefnd – þeirrar
kynslóðar sem
endurskóp Ísland
á öndverðri öld-
inni sem leið. Þar
var viðkvæðið að
allir yrðu að vera
með, saman héld-
um við framfara-
kyndlinum á lofti.
Menningin væri
allra, sagði Stefán
Ögmundsson, for-
ystumaður prent-
ara og stofnandi Menningar- og
fræðslusambands alþýðu, og Ragnar
í Smára færði öreigum Íslands dýr-
mætustu listaverk sem völ var á og til
varð Listasafn alþýðu.
Þetta var fyrir þá tíð að mennta-
stofnanir ættu að verða bestar í heimi
eða í hópi hundrað bestu eins og um
skeið var í tísku, heldur áttu þær ein-
faldlega að verða samfélaginu að sem
mestu og bestu gagni.
Viljanum til framfara er ekki
hægt að ganga að sem vísum. En
framfaraviljann er hægt að glæða.
Sigurður Nordal, heimspekingur,
fræðimaður og kennari, án efa einn
fremsti hugsuður Íslands fyrr og
síðar, flutti merka fyrirlestra í út-
varpinu árið 1940. Efni þeirra átti
eftir að seytla inn í þjóðarvitundina
á komandi árum og áratugum. Um
það get ég borið vitni því móðir mín
sá til þess að öll hennar börn læsu
hina stórkostlegu dæmisögu Sig-
urðar um ferðina sem aldrei var far-
in. Ætla ég að svo hafi verið á fleiri
heimilum.
Í dæmisögunni segir frá ungum
manni á annarri öld í Rómaveldi sem
lifað hafði gjálífi en fékk nú það
verkefni frá Marcusi Árelíusi keis-
ara að undirbúa ferð sem krefðist
allra hans mannkosta, alls þess sem
hann hefði fram að bjóða, ætti hann
að rísa undir ætlunarverki sínu.
Hinn ungi maður, Lucius, venti nú
sínu kvæði í kross, sagði skilið við
fyrri lifnað og tók að rækta sjálfan sig
til huga og handar. Ferðin var svo
aldrei farin. En Lucius hafði hins veg-
ar fundið allt hið besta sem með hon-
um bjó. Þetta vildi Sigurður Nordal
kenna samferðarmönnum sínum til
eftirbreytni; hann vildi vekja hvern
og einn til lífsins,
ekki til að þjóna
sínum sérþörf-
um einvörðungu
heldur fyrst og
fremst til að efla
samfélagið.
Á fæðingar-
degi Sigurðar
Nordals, 14.
september 2010,
flutti Pétur
Gunnarsson, rit-
höfundur, frá-
bæra hugvekju
um þennan
mikla andans
jöfur. Gerði Pét-
ur að sínum loka-
orðum í þessari
minningarræðu
orð Sigurðar
sjálfs sem hann
hafði flutt á
Rafnseyri við Arnarfjörð á lýðveldis-
daginn 17. júní árið 1944:
„Hvert býli, hver uppblásinn og
vanræktur blettur biður um betri að-
hlynningu eftir þúsund ára arðrán.
Jafnvel sjórinn biður um vernd og
ræktun, ef hann á að halda áfram að
vera bjargargjafi og auðsuppspretta.
… Hvert barn, sem fæðist og oss er
falið til forsjár, biður um tækifæri til
þess að þroskast samkvæmt hæfi-
leikum sínum og fá að neyta krafta
sinna í réttlátu og samstilltu þjóð-
félagi, þar sem enginn smælingi er
fyrir borð borinn, hver óbreyttur liðs-
maður gerir skyldu sína eftir bestu
vitund og hver sá, sem þykist kall-
aður eða kvaddur er til forystu telur
það eitt frama sinn og gæfu að vinna
Íslandi því dyggilegar sem honum er
meira veitt…“.
Ef íslenskan væri horfin þyrfti
flinkan þýðanda til að snara texta á
borð við þennan og fortíðinni yfirleitt
yfir á ensku.
Til þess þyrfti afburðamenn.
Spurningin er hvernig þeir verði best
búnir til, innfluttir á sérreglum eða
samkvæmt aðferð Sigurðar Nordals;
að notast við það sem í okkur býr –
hverju og einu, rækta mannkostina
og samkenndina.
Ég aðhyllist aðferð Sigurðar.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Aðferð Sigurðar
Nordals
Úr ólík-
um áttum
Ögmundur
Jónasson
’Skrif hafa verið íblöðum að undan-förnu um að nú ríði á aðlaða „afburðafólk“ utan
úr heimi hingað til lands,
einn vill leggja íslensku af
sem þjóðtungu svo við
sköpum slíku fólki engin
óþarfa vandræði, annar
vill sérstakar skattaíviln-
anir afburðafólkinu til
handa, sem reyndar hef-
ur ratað inn í skatta-
pakka Bjarna fjármála-
ráðherra „vegna covid“
eins og sumt annað sem
nú er brallað í skjóli
þeirrar veiru.
Höfundur mælist til þess að við
fylgjum orðum Sigurðar Nordal og
notumst við það sem í okkur býr.
Árni Sæberg