Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Síða 2
Er mikill heiður að vera valinn til að spila á
stofutónleikum í húsi skáldsins?
Já, það er auðvitað heiður út af fyrir sig að fá að koma fram
þar. Við ætluðum að vera með tríótónleika, ég, Arngunnur
Árnadóttir og Bryndís Þórsdóttir. En vegna endajaxls-
veikinda þurftum við því miður að endurskoða það og ég
ákvað að vera með einleikstónleika í staðinn. Þetta er því
bæði mikill heiður og óvænt ánægja.
Stofutónleikar eru frábrugðnir því sem þú
átt að venjast. Er undirbúningurinn óvenju-
legur?
Já, varðandi framkomu er þetta öðruvísi því það er svo
mikil nánd við áhorfendur. Þetta krefst annarrar sviðs-
orku og svo legg ég meiri áherslu á hvernig ég kynni verk-
in, sem á formlegri tónleikum er ekki þörf á. Þetta er
skemmtilegt að því leyti að maður fær skýrari orku frá
áhorfendum. Það eru allir svolítið saman í tónlistinni.
Geturðu sagt mér í stuttu máli frá verkunum
sem þú hyggst leika?
Já, ég ætla að byrja á verkinu Syrinx eftir Debussy sem er ein-
leiksverk fyrir þverflautu. Það er svolítið miðjuverk í flautubók-
menntum. Það verk vísar í söguna af Syrinx og Pan. Þar á eftir
flyt ég verk eftir de Leeuw sem var hollenskt tónskáld. Ég
hlustaði einhvern tímann á verkið á vínilplötu með Manuelu
Wiesler sem bjó hér á Íslandi og var mikil flautugoðsögn. Mér
fannst þetta alveg magnað verk. Það er mjög blæbrigðamikið og
skemmtilegt að flytja það. Svo ætla ég að enda á flautupartít-
unni eftir Bach sem er eitt af okkar stærstu barokkstykkjum
fyrir flautu.
Hvað er svo á döfinni hjá þér?
Ég legg af stað í næstu viku með kammersveitinni minni sem heitir Elja. Við
ætlum hringinn um landið og spilum úti um allt. Í ágúst spila ég á tónleikum
með Björk í Eldborgarsal Hörpu sem ég er mjög spennt fyrir. Og svo byrja ég í
nýju starfi í ágúst sem stjórnandi skólahljómsveitar Austurbæjar, sem er ekki
minna spennandi.
Morgunblaðið/Arnar Birkisson
BJÖRG BRJÁNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Skýrari orka
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2020
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Jólin komu snemma í ár hjá stærsta sértrúarsöfnuði landsins (mögulegaheimsins); nánar tiltekið á miðvikudagskvöldið var þegar Jordan Hend-erson, fyrirliði hins fornfræga knattspyrnufélags Liverpool, reif upp
Englandsbikarinn á Anfield. Þrjátíu ára bið er loksins á enda – bið sem hófst
nokkrum vikum áður en téður Henderson kom í heiminn á þjóðhátíðardegi
okkar Íslendinga árið 1990. Það viðraði vel á Akureyri þann dag, á nýstúd-
enta sem aðra dauðlega menn.
Menn mega vera samviskulausir og með stórkornótt storkuberg úr
feldspati í stað hjarta til að gleðjast ekki með Púlurunum á þessum merku
tímamótum. Þjáning þeirra hefur verið algjör, meðan þeir hafa í forundran
horft á alls kyns félög, meðal ann-
arra Blackburn Rovers og Leicester
City, hampa bikarnum; að ekki sé
talað um erkiféndurna í Manchester
United, sem hafa gert það þrettán
sinnum í millitíðinni. Fyrr má nú
rota en dauðrota.
En allt er það akademískt í dag;
Liverpool er aftur komið á toppinn
með Kloppinn í brúnni. Þvílíkur
kappi sem gæti lýst upp bæði Kópa-
sker og Raufarhöfn með brosið eitt
að vopni. Og hefur örugglega gert
það.
Sky Sports-sjónvarpsstöðin skalf og nötraði á dögunum þegar miðverðin-
um óárennilega Virgil van Dijk varð óvænt á í messunni í leik í úrvalsdeild-
inni. „Ég man ekki eftir að hafa heyrt Martin Tyler [sparklýsandann kunna]
segja þetta áður: Mistök hjá Virgil van Dijk,“ sagði kynnirinn, David Jones, í
leikhléi. Öll stasjónin fór á yfirsnúning og þremur mínútum síðar barst Jones
skeyti þess efnis að þetta væri í annað sinn í 88 deildarleikjum sem mistök
hjá Hollendingnum kostuðu Liverpool mark. Það er mergjuð tölfræði og seg-
ir allt sem segja þarf um manninn sem breytti Liverpool úr mjög góðu liði í
stórkostlegt lið.
Yfirburðirnir í vetur hafa verið fáheyrðir og stöðugleikinn magnaður; ekki
síst í ljósi þess að helsti keppinauturinn, Manchester City, hefur varla verið í
augsýn frá haustmánuðum. Það þarf ekki bara gæði, heldur ekki síður ein-
staka einbeitingu til að stinga af með þessum hætti og tryggja sér sigur á
mótinu með heila sjö leiki til góða. Það met verður seint slegið. Þetta er svo-
lítið eins og að setja heimsmet í 10.000 metra hlaupi án héra.
Ég er á hinn bóginn örlítið undrandi á því að Liverpool skyldi kasta frá sér
stigametinu í deildinni á lokasprettinum en á móti kemur að erfitt getur verið
að halda dampi eftir spennufallið sem fylgir því að vinna deildina og það eftir
allan þennan tíma. Mögulega munu menn naga sig í handarbökin út af því
síðar. En í dag skiptir það nákvæmlega engu máli. Bikarinn er farinn á loft –
Liverpool eru aftur besta liðið á Englandi. Walk on …
Jólin komu í júlí
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Þetta er svolítið eins og að setjaheimsmet í 10.000 metra hlaupi án héra.
Matthías Sveinn Einarsson
Á Akureyri.
SPURNING
DAGSINS
Hvar verð-
ur þú um
versl-
unar-
manna-
helgina?
Emil Hrafn Ómarsson
Á Akureyri.
Vigdís Löve Jónsdóttir
Ég er að fara í sumarbústað.
Kristín Einarsdóttir
Ég ætla að vera heima.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Arnþór Birkisson
Björg Brjánsdóttir flautuleikari flytur einleikstónlist á stofutónleikum á Gljúfra-
steini í dag, sunnudag, kl. 16. Miðar fást á staðnum og eru seldir samdægurs.