Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Side 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2020
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKILLAUSNIR.IS
Týnirðu lyklum?
Gleymirðu PIN númerum?
Notaðu bara fingrafarið
Kynntu þér málið áwww.lykillausnir.i
!
s
Rio Tinto tilkynnti í vikunniað fyrirtækið hefði kvartaðtil Samkeppniseftirlitsins
vegna þess sem það telur vera
misnotkun á markaðsráðandi stöðu
af hálfu Landsvirkjunar. Jafnframt
segir Rio Tinto að láti Lands-
virkjun ekki af þeirri háttsemi
verði fyrirtækið að íhuga að segja
upp orkusamningnum við Lands-
virkjun. Með því er gefið í skyn að
álveri fyrirtækisins, ISAL, kunni
að verða lokað eftir rúmlega 50
ára starfsemi hér á landi.
Samkeppniseftirlitið mun fara
yfir sjónarmið Rio Tinto hvað
varðar samkeppnislöggjöfina. Yfir-
lýsing Rio Tinto um mögulega
uppsögn orkusamningsins er hins
vegar ekki síður alvarleg. Yfirlýs-
ingin framkallar að sjálfsögðu
óvissu um lífsviðurværi hundraða
starfsmanna ISAL og einnig
starfsmanna þeirra mörgu fyr-
irtækja sem
byggja afkomu
sína að verulegu
leyti á viðskiptum
og þjónustu við
álverið. Hún kall-
ar líka á vanga-
veltur um áhrifin
á Landsvirkjun, sem er í eigu
þjóðarinnar í gegnum ríkið, og á
Hafnarfjörð og íslenskt efnahagslíf
almennt.
Mikilvægi ISAL
ISAL er mikilvægt fyrirtæki í
mörgu tilliti. Ætla má að nettó
gjaldeyristekjur af starfsemi þess
– þ.e.a.s. sá hluti af sölutekjum
ISAL sem rennur til innlendra að-
ila – nemi um það bil 25 millj-
örðum króna á ári. ISAL notar
eitthvað í námunda við 16% af öllu
rafmagni sem notað er í landinu.
Þá hefur fyrirtækið verið braut-
ryðjandi á ýmsum sviðum á undan-
förnum áratugum, ekki síst í ör-
yggismálum og starfsmennta-
málum. Risafjárfesting þess í
Straumsvík fyrir nokkrum árum,
sem nam um 50-60 milljörðum
króna til breytinga á steypuskála
og kerskálum, kom á góðum tíma
fyrir Ísland í kjölfar bankahruns-
ins og hafði töluverða þýðingu fyr-
ir efnahagslíf okkar.
Ákvörðun Rio Tinto um fjárfest-
inguna sýnir þá trú sem fyrirtækið
hafði á starfsskilyrðum á Íslandi.
Á sama tíma gerði Rio Tinto nýjan
langtímaorkusamning við Lands-
virkjun sem gildir frá árinu 2010
til ársins 2036.
Skuggi óvissu og skuggi
leyndar
Sem fyrr segir varpar Rio Tinto
með yfirlýsingu sinni skugga
óvissu yfir atvinnu hundraða
starfsmanna og mikilvægar fram-
tíðartekjur Landsvirkjunar, sem er
í eigu allrar þjóðarinnar. Í mínum
huga orkar tvímælis að varpa slík-
um skugga óvissu án þess að varpa
á sama tíma ljósi á uppsagnar-
ákvæði orkusamningsins. Fyrir-
tækið kýs að gera mögulega upp-
sögn að umtalsefni. Þá er eðlilegt
að gera ráð fyrir að fyrirtækið
upplýsi hvaða skilyrði gilda um
slíka uppsögn.
Ég hef þegar lýst þessari skoð-
un opinberlega í vikunni. Svör Rio
Tinto eru á þá leið að fyrirtækið
vilji ekki opna orkusamninginn
nema önnur stóriðjufyrirtæki geri
það líka. En önnur stóriðju-
fyrirtæki hafa ekki talað um að
segja upp sínum orkusamningum.
Vissulega væri almennt æskilegt
að betri upplýsingar lægju fyrir
um alla stóriðjusamninga. En það
er önnur og stærri umræða. Í
þessu tilviki er málið þrengra og
snýr að uppsagnarákvæðum eina
samningsins sem talað er um að
segja upp. Það er eðlileg krafa að
sá sem setur þá umræðu á dag-
skrá – umræðu sem felur í sér
risahagsmuni fyrir hundruð ein-
staklinga og raunar þjóðina alla –
leggi öll spilin á borðið.
Brotthvarf Rio Tinto úr ál-
framleiðslu utan Kanada
Það er viðbúið að þetta kalli líka á
umræðu um alþjóðlega
samkeppnishæfni
stórnotenda á Ís-
landi. Nýr lang-
tímaorkusamn-
ingur sem Rio
Tinto gerði árið
2010, til 26 ára,
var að sjálfsögðu
til marks um trú fyrirtækisins á
Íslandi. Ákvörðun Norsk Hydro
um að kaupa ISAL fyrir um tveim-
ur árum endurspeglar líka trú á
starfsskilyrðunum á Íslandi, þó að
kaupin hafi ekki gengið eftir af
öðrum ástæðum.
Það er líka nauðsynlegt að horfa
á heildarsamhengi hlutanna. Rio
Tinto hefur frá árinu 2008 selt eða
lokað öllum álverum sínum í Evr-
ópu nema ISAL, alls sjö talsins. Af
þessum sjö álverum voru/eru eitt í
Noregi, þrjú í Bretlandi og þrjú í
Frakklandi, sjálfri vöggu evrópsks
áliðnaðar. Til viðbótar hefur Rio
Tinto lokað, selt, reynt að selja eða
tilkynnt lokun á fimm álverum til
viðbótar; í stórum dráttum öllum
álverum sínum nema í Kanada. Í
Kanada fer fyrirtækið sjálft með
umfangsmikil vatnsréttindi og
framleiðir því að miklu leyti sína
eigin raforku, sem þýðir að orkan
sem álver Rio Tinto fá í Kanada er
ein sú ódýrasta sem þekkist í ál-
heiminum.
Samkeppnishæfni og arð-
semi
Ástæða er til að ætla að
umhverfisvænar orkulindir Íslands
verði áfram eftirsóttar. Við viljum
bjóða upp á samkeppnishæft um-
hverfi en við gerum að sjálfsögðu
líka kröfu um að sala á orku-
afurðum úr sameiginlegum auð-
lindum þjóðarinnar sé arðbær. Við
erum nýbúin að ganga í gegnum
langvinna umræðu um þriðja orku-
pakkann sem snerist að miklu leyti
um nauðsyn þess að standa vörð
um sameiginlegar orkuauðlindir
okkar. Af þeirri umræðu hlýtur að
leiða að talað sé gegn því að við
setjum þær á útsölu.
Staða Rio Tinto
og ISAL
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’ Rio Tinto hefur fráárinu 2008 selt eðalokað öllum álverumsínum í Evrópu nema
ISAL, alls sjö talsins.
Yuki Okinaga Hayakawa Llewellyn var tveggja ára
þegar hún var mynduð árið 1942 alein sitjandi á ferða-
tösku á brautarstöð í Los Angeles þar sem hún beið
þess að verða send í fangabúðir.
Myndin varð táknræn fyrir það misrétti, sem Banda-
ríkjamenn af japönskum uppruna voru beittir í síðari
heimsstyrjöld. Rúmlega 120 þúsund manns voru sendir
í fangabúðir eftir árás Japana á bandaríska herflotann
í höfninni í Pearl Harbor í desember 1942.
Gefin var út forsetatilskipun um að setja fólk af jap-
önskum uppruna í fangelsi án þess að það gæti leitað
réttar síns. Haldið var fram að hætta stafaði af því.
Ekki var gripið til neinna sambærilegra aðgerða vegna
Bandaríkjamanna af þýskum eða ítölskum uppruna
þótt Bandaríkin ættu einnig í höggi við Þýskaland og
Ítalíu í stríðinu. Bandarísk stjórnvöld báðust síðar af-
sökunar og 1988 var samþykkt á Bandaríkjaþingi að
greiða þeim, sem sendir voru í fangabúðir, bætur. Þeg-
ar myndin af Yuki var tekin var hún á leið í Manzanar-
fangabúðirnar í Kaliforníu ásamt móður sinni. Þær
voru í röð fyrstu fanganna, sem fluttir voru í búðirnar,
og meðal þeirra síðustu, sem látnir voru lausir.
Hún lést í mars, þá áttræð. Andlátið féll í skuggann
af kórónuveirufaraldrinum þar til fjölskylduvinur lét
dagblaðið Los Angeles Times vita. Hún settist að í
Cleveland í Ohio, gekk í háskóla og eignaðist fjölskyldu
og einn son, að því er fram kom í andlátsfrétt í The
News Gazette.
AFP
Á leið í fangabúðir