Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Síða 11
lokaákvörðun en ýmsir aðrir í þeirri von að
hægt yrði að halda Þjóðhátíð í einhverri mynd.
Á endanum urðum við þó að taka af skarið
enda fjöldatakmarkanir ennþá í gildi á land-
inu.“
Spurður hvort hann skilji þá ákvörðun
stjórnvalda að fara að ráðum sóttvarnalæknis
og framlengja 500 manna hámarkið fram yfir
mánaðamót svarar Hörður Orri: „Ég treysti
þessu fólki alveg en í ljósi þess hversu fá smit
hafa verið að greinast á landinu undanfarnar
vikur og mánuði veltir maður samt fyrir sér
hvort ekki hefði verið óhætt að fara upp í 2.000
manns eitthvað fyrr. En það skiptir ekki öllu
máli úr þessu, þetta er búið og gert.“
Sjálfur ætlar Hörður Orri að vera í Eyjum
um verslunarmannahelgina og tjalda sínu
þjóðhátíðartjaldi heima í garði. „Eflaust munu
menn reyna að gera gott úr þessu; reyna að
færa stemninguna heim í garð og halda sína
eigin Þjóðhátíð. Það heyrist mér alla vega á
fólki í kringum mig.“
– Verður ekki óvenju mikið í Þjóðhátíð 2021
lagt?
„Það er alltaf mikið lagt í Þjóðhátíð og hún
haldin með pomp og prakt en þetta rof í ár ger-
ir hátíðina á næsta ári vissulega ennþá áhuga-
verðari. Við bjóðum fólki, sem búið var að
kaupa miða í ár, upp á að flytja miðana sína yf-
ir á næsta ár. Ekki liggur fyrir hvenær forsala
hefst, það hefur venjulega verið í febrúar eða
mars en við byrjum mögulega eitthvað fyrr
núna.“
Hefðbundin helgaráætlun
Eins og áður var Vestmannaeyjaferjan
Herjólfur búin að stilla upp siglingaáætlun í
samstarfi við ÍBV fyrir verslunarmanna-
helgina. Sú áætlun fór að vonum fyrir lítið þeg-
ar Þjóðhátíð var aflýst. „Eins og planið lítur út
núna verður þetta bara hefðbundin helg-
aráætlun hjá okkur miðað við árstíma; við
reiknum með að sigla sjö sinnum á dag frá
fimmtudegi og fram á þriðjudag,“ segir Guð-
bjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri
Herjólfs. „Þegar þar að kemur þurfum við svo
bara að meta hvort bæta þurfi við ferðum að
höfðu samráði við þar til bæra aðila. Við fylgj-
um að sjálfsögðu fyrirmælum og gætum þess
að virða fjöldatakmarkanir.“
Hann á von á því að nokkur fjöldi fólks komi
til með að stefna skónum til Vestmannaeyja
um næstu helgi. „Við göngum alla vega út frá
því að það verði töluvert af fólki. Ætli þetta
verði ekki eins og stór goslokahátíð. Brott-
fluttir Eyjamenn og aðrir tengdir Eyjum
munu örugglega vilja vera á staðnum, jafnvel
þótt Þjóðhátíð verði ekki haldin og engin form-
leg dagskrá.“
Spurður hvort hann ætli sjálfur að vera í
Eyjum kveðst Guðbjartur ekki viss. „Ég er bú-
inn að vera í mikilli vinnu undanfarið en stökk
upp í hjólhýsið í vikunni og er að reyna að vera
í smá sumarfríi. Maður sér til hvar maður end-
ar um verslunarmannahelgina; eins og áður
hefur veðrið býsna mikið um það að segja.
Maður hefur tilhneigingu til að elta bara besta
veðrið.“
Ekkert fast í hendi
Hafdís Kristjánsdóttir, sem rekur tjaldsvæðin
í Vestmannaeyjum, segir mikla óvissu ríkja
með fjölda gesta um verslunarmannahelgina.
„Maður heyrir orðróm um að straumurinn
liggi hingað en ekkert er fast í hendi. Þetta
verður allt öðruvísi en við eigum að venjast,
ekki hægt að miða við neitt, og ég hef enga
hugmynd um hvað við eigum von á mörgum.
Eitt er þó víst; við verðum tilbúin að taka á
móti öllum, hvort sem það koma margir eða
örfáir,“ segir hún.
Hægt er að skipta Herjólfsdal í tvö svæði
þannig að þar geta 1.000 manns verið í tjöldum
og reiknar Hafdís með að stefna yngra fólkinu
þangað. Á Þórsvellinum eru þrjú svæði þannig
að þar geta 1.500 manns verið og þá aðallega
fjölskyldufólk, að sögn Hafdísar. „Allir eru vel-
komnir, svo lengi sem pláss leyfir. Og ef tjald-
svæðin fyllast höldum við bara neyðarfund
með bæjaryfirvöldum. Við erum vön að hugsa
og vinna í lausnum hér í Eyjum.“
Hún segir veðrið alltaf mikinn áhrifavald og
því ábyggilegri sem langtímaspáin verði þeim
mun betra verði að undirbúa sig.
Sjálf hefur hún misst af seinustu sjö Þjóðhá-
tíðum vegna vinnu. „Ég hef haft öðrum hnöpp-
um að hneppa hérna á tjaldsvæðunum en auð-
vitað fer stemningin ekkert framhjá manni.“
Hún heyrir ekki annað en að Eyjamenn ætli
að gera sitt besta til að halda eins konar
Þjóðhátíð í ár, þó ekki væri nema heima á lóð.
„Það verður Þjóðhátíð hérna, í einni eða ann-
arri mynd. Þetta er það stór partur af okkur að
hjá því verður ekki komist. Þjóðhátíð er ein-
stakur viðburður.“
Hafdís á von á góðri stemningu um næstu
helgi. „Það verður þvílíka stuðið og fólk úti um
allt. Vonandi fær lögreglan liðsauka til að
tryggja að allt fari vel fram. Annars megum
við ekki gleyma því að Þjóðhátíð er fyrst og
fremst fjölskylduhátíð, jafnvel þótt auðvitað sé
alltaf eitthvað djammað líka.“
Hafdís telur ekki ólíklegt að margir komi til
með að staldra við og þakka fyrir allt sem
Þjóðhátíð hefur gert fyrir þá gegnum tíðina.
„Þess vegna finnst mér nýja Þjóðhátíðarlagið
hans Ingós veðurguðs, Takk fyrir mig, algjör
snilld. Textinn er í senn tilfinningaríkur og
stórkostlegur. Þetta er allt svo satt. Þjóðhátíð
hefur gert svo óendanlega margt fyrir okkur
öll, ekki bara Eyjamenn, heldur gestina okkar
líka. Það er svo margt sem okkur þykir sjálf-
sagt í lífinu og þegar það er ekki lengur til
staðar kallar það fram þakklætið. Við getum
ekki gengið að neinu vísu.“
Að dómi Hafdísar er það ekki síst ÍBV, sem
heldur hátíðina, sem á þakkirnar skildar. „Það
þrengir óhjákvæmilega að rekstri ÍBV að
Þjóðhátíð falli niður í ár og ég vona að sem
flestir Eyjamenn, brottfluttir og aðrir velunn-
arar, taki höndum saman og styrki ÍBV með
því að borga fyrir þjóðhátíðarmiðann sinn í ár.
Það myndi muna um minna. Mér hefur aldrei
fundist dýrt á Þjóðhátíð; þetta er þriggja daga
skemmtun fyrir svipað verð og einir jóla-
tónleikar sem standa í tvo tíma.“
Spurð hvernig hún haldi að Þjóðhátíð verði
að ári þarf Hafdís ekki nema eitt orð:
„Sprengja.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Morgunblaðið/Ófeigur
26.7. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11