Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Síða 14
Í MYNDUM
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.7. 2020
Þ
ið eigið kollgátuna, ég þarfnast Íslands,“ segir kona nokkur úti í
hinum stóra heimi í athugasemdum við auglýsingu úr markaðs-
herferðinni Looks Like You Need Iceland á efnisveitunni You-
Tube. Annar áhorfandi kveðst munu varðveita Ísland í hjarta sér
um alla eilífð og ung kona segist beinlínis verða að komast sem
fyrst til Íslands enda sé unnusti hennar búsettur þar. Til allrar óhamingju er
hún hins vegar í Bandaríkjunum og gerir því ráð fyrir að þurfa að bíða í ein-
hverja mánuði enn. Enn einn áhorfandi spyr hvort gönguleiðin til Íslands sé
fær, því engar séu flugvélarnar. Ekki fylgir sögunni hvort hann kemur úr
öðru tímabelti.
Egill Þórðarson hjá auglýsingastofunni Peel, sem kom að gerð auglýsing-
anna ásamt alþjóðlegu auglýsingastofunni M&C Saatchi, segir viðtökur hafa
verið vonum framar. „Ég kom að mörgum Inspired By Iceland-herferðum
sem gengið hafa mjög vel en þessi nýja herferð er þegar farin að slá met. Í
grunninn snýst þetta um að búa til PR-gildi, það er að fá erlenda fjölmiðla til
að fjalla um herferðina, og það hefur gengið ótrúlega vel. Á tiltölulega
skömmum tíma höfum við fengið umfjöllun í um sjö hundruð fjölmiðlum um
allan heim sem samtals ná til ríflega tveggja milljarða manna. Verðmæti
þeirrar umfjöllunar er verðlagt á 1,8 milljarða króna. Það er ekki amalegt.“
Hafa ferðast víðar en við bjuggumst við
Aðalmarkaðurinn alla jafna er Bandaríkin og hefur herferðin gengið mjög
vel þar enda þótt Bandaríkjamenn séu ekki á leið til landsins í bráð. Að sögn
Egils hafa þekkt markaðssvæði eins og Danmörk, Bretland og Þýskaland
einnig tekið vel við sér, eins Rússland, sem komi þægilega á óvart. Þá hafi
komið viðbrögð frá framandi svæðum, svo sem Indlandi, sem ekki var lagt
sérstaklega upp með. „Þessar auglýsingar hafa ferðast víðar en við bjugg-
umst við,“ segir Egill en þess má geta að yfir fjórar milljónir manna hafa
horft á efnið á YouTube. „Við hefðum ekki getað óskað eftir betri byrjun.“
Myndirnar hér á opnunni tók Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðins,
við tökur á auglýsingum sem bera yfirskriftina „Let It Out“ um miðjan síð-
asta mánuð. Tökurnar fóru fram vítt og breitt, svo sem á Skólavörðustígnum
í Reykjavík, í Reynisfjöru, við Skógafoss, á Sólheimajökli og í helli við Hjör-
leifshöfða.
Bara fyrsti fasinn í þessari vinnu
Leikstjórar voru Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson hjá Skoti
productions og tökumaður Óttar Guðnason. Í hlutverkum í téðum tökum
voru hin íslenska Anna Jia og Murphy Cardenas, sem er frá Kúbu og Ung-
verjalandi. Tugir Íslendinga komu að gerð auglýsinganna en á sama tíma og
upptökur fóru fram á Suðurlandi var annar hópur á Vesturlandi og Vest-
fjörðum. Að sögn Egils er „Let It Out“ aðeins fyrsti liður í Looks Like You
Need Iceland-herferðinni en stefnt er að vetrarherferð í samstarfi við M&C
Saatchi. „Þetta er bara fyrsti fasinn í þessari vinnu fyrir Íslandsstofu,“ segir
Egill og bætir við að samstarfið við M&C Saatchi hafi gengið afskaplega vel.
„Það er frábært að vinna með þeim. Í svona verkefnum skiptir miklu máli að
hafa erlenda samstarfsaðila með þekkingu á þeim mörkuðum sem við erum
að tala við.“
7
Markaðsherferðin Looks
Like You Need Iceland þykir
hafa farið vel af stað og hróp
og köll úti í náttúrunni eru
farin að toga í fólk vítt og
breitt um heiminn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ljósmyndir
ÁRNI SÆBERG
Hrópað á
heiminn