Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Blaðsíða 19
sgagnasýning
sgagnasýning
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
ÁHönnunarsafni Íslands stendur yfirsýning á verkum Sveins Kjarvals hús-gagna- og innanhússhönnuðar. Hann
var afkastamikill hönnuður og á sýningunni er
sjónum beint að mikilvægu brautryðjanda-
starfi hans hér á landi á árunum 1950 til 1970.
Þar hitti ég fyrir Arndísi S. Árnadóttur, sýn-
ingarstjóra sýningarinnar. Hún segir að til-
tölulega mikið af gripum frá Sveini hafi safnast
á safnið á fyrstu árum þess. „Ég held að það
séu komnir yfir 50 gripir sem eru bara eftir
hann. Það er svolítil vísbending um að hann
hafi verið mikilvægt nafn í sambandi við þróun
á hönnun á þessum tíma.“
Að sögn Arndísar var vinsælt að fá Svein til
að hanna fyrir sig bæði innanstokksmuni sem
og innréttingar í bæði atvinnu- og einka-
húsnæði. „Þessar innréttingar eru að mestu
horfnar í dag, nema bókhlaðan á Bessastöðum
sem stendur enn,“ segir hún. „Hann var mjög
góður lýsingarhönnuður.“
„Algjörlega klassískt“
Sveinn fæddist árið 1919 og ólst upp í Dan-
mörku en hann átti danska móður og íslenskan
föður. „Hann kemur svo til Íslands 1939. Þá er
hann lærður húsgagnasmiður. Hann kynnist
svo íslenskri stúlku, þau eignast börn og eftir
seinna stríð fer hann aftur til Kaupmanna-
hafnar til að ljúka framhaldsnámi í húsgagna-
arkitektúr, eins og það var kallað.“
Hjónin komu heim 1949. „Þá hefst hann
strax handa við að kynna nútímaleg húsgögn
fyrir Íslendingum. Hann barðist á móti því að
þeir væru með þunglamaleg og glansandi hús-
gögn. Hann er einn af þessum boðberum nýrr-
ar tísku.“
Hönnun hans á við í dag eins og fyrir hálfri
öld. „Í dag er þetta algjörlega klassískt,“ segir
Arndís.
Rimlastólarnir vinsælir
Arndís segir að hróður Sveins hafi verið mest-
ur á þeim tíma sem blómaskeið íslenskrar hús-
gagnagerðar stóð yfir, á 6. og 7. áratugnum.
„Svo breytist þetta þegar við göngum í EFTA
1970. Þá opnast fyrir innflutning og borgar sig
ekki lengur að framleiða hér.“
Eitt af aðalsmerkjum Sveins eru rimlastól-
arnir. „Hann þróaði þessa rimlastóla. Byrj-
Rimlastólarnir voru eitt
af aðalsmerkjum Sveins.
Arndís S. Árnadóttir er
sýningarstjóri sýningar
verka Sveins Kjarvals.
Boðberi
nýrrar tísku
Sveinn Kjarval var brautryðjandi á sviði innanhússhönnunar.
Hann hannaði bæði innanstokksmuni og innréttingar og var
vinsæll frá árunum 1950 til 1970. Á Hönnunarsafni Íslands geta
gestir og gangandi virt fyrir sér verk þessa merka manns.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
26.7. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
STILLANLEG RÚM | HEILSURÚM OG -DÝNUR | GAFLAR | SÆNGUR | KODDAR | SVEFNSÓFAR | STÓLAR | SÆNGURFÖT, O.FL .
RUMÚTSAL
S A
A
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Í FULLU
FJÖRI
EKKI MISSA
AF ÞESSU!