Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.07.2020, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 2020
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 669.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Aðaltónleikadagskrá Innipúkans fer að sjálfsögðu fram innan-
dyra, en að þessu sinni færir hátíðin sig yfir í Gamla bíó, auk
þess sem efri hæð Röntgen verður einnig með dagskrá. „Á
svæðinu verður sannkölluð hátíðarstemning alla helgina enda
verður nóg um að vera á götunni fyrir utan staðina sem og inni á
stöðunum sjálfum,“ segir í kynningu.
Boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld. Meðal listamanna sem koma
fram í ár eru Birgitta Haukdal & Moses Hightower, Bríet,
Emmsjé Gauti, Eyþór Ingi, Floni, GDRN, Hipsumhaps,
Mammút, Pamela Angela, Reykjavíkurdætur, Skoffín, Teitur
Magnússon og Une Misère.
Armband á hátíðina gildir alla helgina og þau má nálgast á
svæðinu frá og með föstudeginum. Einnig er hægt að kaupa
miða inn á stök kvöld. 20 ára aldurstakmark er á hátíðina.
Reykjavíkurdætur eru til alls
líklegar á Innipúkanum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Innipúkinn enn á stjá
Söngkonan GDRN er meðal listamanna sem koma
fram á hátíðinni sem fram fer um næstu helgi.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður að
venju haldin um verslunarmannahelgina.
„Kvenflokkur Í.R. sýndi leikfimi
á íþróttavellinum á þriðjudags-
kvöld. Var veður hið besta, en
fremur fáir áhorfenndur og olli
þar miklu um hve margir eru í
sumarfríum, en hinsvegar tóm-
læti bæjarbúa fyrir fögrum leik-
fimissýningum.“
Þessa frétt mátti lesa í Morg-
unblaðinu fyrir réttum níutíu ár-
um, 26. júlí 1930.
„Enginn verður spámaður í
sínu föðurlandi, enginn er met-
inn heima, datt mjer í hug í
fyrrakvöld við sýninguna suður á
Íþróttavelli,“ hélt blaðamaður-
inn áfram en nafns hans var ekki
getið. „Leikfimisflokkur, er getið
hefir sjer frábært frægðarorð í
Englandi, Frakklandi, Noregi og
Svíþjóð, verður að sýna hjer
heima fyrir fáeinum hræðum.“
Um sýninguna sjálfa var það
að segja, að hún tókst yfirleitt
vel, þótt smámistök mætti sjá, –
„en oft hefir þessum ágæta
flokki tekist betur. Flugstökkið
var mjög fallegt og sumar æfing-
arnar á slánni“.
Loks kom fram að lúðrasveit-
in hefði leikið undir öðru hvoru
meðan á sýningunni stóð.
GAMLA FRÉTTIN
Tómlæti
bæjarbúa
ÍR-ingar efndu reglulega til leikfimisýninga á íþróttavellinum á Melunum á
meðan sá ágæti völlur var og hét. Myndin tengist þó ekki téðri sýningu.
Ljósmynd/ Þjóðminjasafn Íslands
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Arnar Birkir Hálfdánsson
handboltamaður
Fannar Sveinsson
leikstjóri og fv. hraðfréttamaður
Shkodran Mustafi
knattspyrnumaður