Morgunblaðið - 22.08.2020, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 22.08.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 Hefurðu áhuga á rekstri húsbílaleigu? Komdu á fót nýtískulegu og arðbæru fyrirtæki og njóttu ávinningsins af sérleyfisneti Touring Cars er húsbílaleigukeðja um alla Evrópu og er að leita að nýjum frumkvöðli á Íslandi þar sem eftirspurn eftir sérsniðnum húsbílaorlofum er að aukast. Okkur vantar traustan frumkvöðul sem getur veitt gæðaþjónustu þegar kemur að húsbílaorlofum fyrir innlenda og erlenda ferðamenn á þínum sívinsæla áfangastað ferðalanga, Íslandi. Leggur þú kapp á að stækka núverandi fyrirtæki þitt með alþjóðlegum leiguviðskiptum eða viltu stofna nýtt? Sérleyfi Touring Cars mun færa þér allt sem þú þarft til að ná afgerandi forskoti í hinni hörðu samkeppni á leigumarkaðnum og fá stöðugan sjóðstreymisvöxt allt frá byrjun. Viltu vita meira um húsbílaleiguna okkar? Hafðu samband við okkur í +358 40 707 3616. Skannaðu QR-kóðann til að fá nánari upplýsingar eða farðu á touringcars.eu/en/franchisee-iceland til að lesa meira um tækifæri í sérleyfisviðskiptum á Íslandi. /touringcars /touring_cars /touringcars /touringcars/company/touring-cars-finland Vertu nýi frumkvöðullinn okkar • Þaulprófuð sérleyfishugmynd frá árinu 1982 • Fyrirliggjandi, árangursrík viðskipti á Íslandi frá árinu 2009 • Yfirgripsmikill upphafspakki • Rótgróinn markaður og viðskiptavinahópur • 150 samstarfsaðilar um allan heim • Traust frumkvöðlanet í Evrópu • Hópastarf til að styðja við vegferð þína ...Við erum nú þegar á 20 stöðum um gervalla Evrópu og Rússland! Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Erfitt er að meta á þessu stigi hversu mikið af fiski hefur drepist í skyndi- legu flóði sem varð í Hvítá í Borgarfirði í vikunni. Sigurður Már Einarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir að talsvert hafi fundist af dauðum laxi, en heildarmyndin liggi ekki fyrir. Hann segist hafa talsverðar áhyggjur af afdrifum bleikjustofns í ánni, en minni af laxinum. Í gær var áin búin að hreinsa sig að mestu. Aðspurður segir Sigurður að við svona skyndilegt flóð sem beri með sér mikið af aur og leðju komist fiskurinn ekki undan. Drulla setjist í tálknin, fiskurinn nái ekki að anda og drepist. Hann segir að þessi áhrif af framburði í ánni hafi væntanlega verið mest efst í ánni næst upptökunum og dvínað eftir því sem neðar dró. Á undir högg að sækja Í Hvítá er staðbundinn bleikjustofn sem gengur úr sjó á sumrin og dvelur í ánni fram á haust. Bleikjan gengur seint til hrygningar í lindarám og -lækjum ofarlega við Hvítá í október og nóvember, meðal annars í Lamb- eyrarkvísl í Hvítársíðu. Sigurður segir að stofninn í Hvítá sé viðkvæmur og í heildina hafi bleikja átt undir högg að sækja í ám og vötnum á Íslandi síðustu ár vegna loftslags- breytinga. Hann segir að það sé sér- stakt áhyggjuefni ef stofninn í Hvítá hafi orðið fyrir áfalli í flóðinu og segist óttast að bleikjan geti hafa farið illa út úr hremmingunum fyrri hluta vikunn- ar. Talsverðar rannsóknir hafa verið gerðar á bleikjunni í og við Hvítá, með- al annars árið 2010. Sigurður segir að byggt verði á ofan á þær rannsóknir í haust og sérstaklega verði áhrif flóðs- ins á stofninn könnuð. Sigurður segist hafa minni áhyggjur af laxi í Hvítá, en þar er annars vegar um að ræða lax sem gengur í nokkrar af gjöfulustu veiðiár landsins og hafi vætanlega að stærstum hluta verið genginn upp úr Hvítá til hrygningar. Sigurður segist telja að á þeim fiski hafi ekki orðið tjón sem verði vart til framtíðar. Hins vegar sé um staðbund- inn lax að ræða, sem hrygnir í Hvítá og á næstunni ætti að koma í ljós hvort mikil afföll hafi orðið á Hvítárfiskinum. Áhyggjur af bleikju í Hvítá  Óljóst hversu mikið af laxi og bleikju hefur drepist í ánni í skyndiflóði í vikunni Ljósmynd/Kristrún Snorradóttir Hvítá Dauður fiskur á bakkanum. Mögulegt er að reglulega muni hlaupa úr lóni við jað- ar Langjökuls suður af Eiríksjökli, að því er fram kemur á heimasíðu Veðurstofunnar. Skyndilegt flóð varð úr lóninu á mánudagskvöld og aðfaranótt þriðju- dags og mikið vatnsmagn flæddi niður farveg Svartár og áfram niður í Hvítá. Í könnunarflugi á fimmtudag sáu sérfræðingar Veð- urstofunnar að hlaupið hafði runnið undir jökulsporð- inn við suðvesturenda lónsins og um tveggja kíló- metra leið undir jöklinum áður en það rann í farveg Svartár skammt sunnan Hafrafells. Lónið, sem var um 1,3 ferkílómetrar að flatarmáli fyrir hlaupið, hefur oftast haft afrennsli til norðurs og runnið úr því í Flosavatn. Vatnsborð lónsins lækkaði um u.þ.b. fimm metra við flóðið og það tæmdist nánast. „Það kemur í ljós á næstu vikum hvort útfall lónsins lokast aftur og vatn fer að safnast í lónið að nýju eða hvort sírennsli verður úr lóninu. Ef útfallið lokast er hugsanlegt að reglulega hlaupi úr lóninu á næstu ár- um. Líklegt er að lónið haldi áfram að stækka næstu árin vegna hörfunar jökuljaðarsins og því er ástæða til þess að fylgjast með þróun mála og leggja mat á hættu á frekari hlaupum,“ segir á heimasíðu Veð- urstofunnar. Ljósmynd/Veðurstofan Brúin í Húsafellsskógi Sjá má að flóðmörkin voru nærri veginum, en mikill framburður barst með flóðinu. Við brúna yfir Hvítá ofan við Húsafell má sjá ummerki um að vatnsborðið hafi náð upp undir brúarbitana. Lónið lækkaði um fimm metra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.