Morgunblaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég hef unnið í myndlist eins og tök hafa ver-
ið á síðan 1979, þegar ég útskrifaðist úr mynd-
listarnámi, og fram á þennan dag,“ segir
myndlistarkonan Ásta Ólafsdóttir sem í dag
opnar yfirlitssýningu sína, sem nefnist Hjart-
sláttur, í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu.
Sýningin er opin á venjulegum starfstíma
safnsins, miðvikudaga til sunnudaga frá
klukkan 12 til 18, og stendur til 4. október.
Verkin á sýningunni eru sum yfir 40 ára
gömul en einnig eru á sýningunni ný verk,
meðal annars glænýtt bókverk.
Ásta segir sýningarsalinn ótrúlega fallegt
rými. „Það er afskaplega bjart og hvítt; birtan
er einstök hér. En fermetrafjöldinn og vegg-
svæðið er ekki mikið þannig það varð að velja
verkin vel.“
Varð til í gegnum samtalið
Sunna Ástþórsdóttir, sýningarstjóri, segist
hafa unnið sýninguna í miklu samstarfi við
Ástu. „Við Ásta erum búnar að hittast mjög
reglulega og fara í gegnum verk-arkívið henn-
ar, sem er stórt og umfangsmikið. Hún hefur
varðveitt það vel. Hún á ljósmyndir af öllu,
skissur og mikið af skemmtilegum módelum.
Þessi sýning hefur orðið til í gegnum sam-
talið. Ég er titluð sýningarstjóri en við
vinnum þetta algjörlega í sameiningu. Það er
oft svo gott að vinna með öðrum og það er það
sem okkar samstarf hefur lagt til sýning-
arinnar.“
Á sýningunni má sjá fjölbreytnina í mynd-
listariðkun Ástu í gegnum tíðina. „Ásta er
mjög tilraunagjörn og hefur unnið í ýmsa
miðla í gegnum tíðina. Hún hefur sagt að
henni finnist skemmtilegast að vinna í þrívídd,
þannig það er mikið af innsetningum í rým-
inu,“ segir Sunna. Auk þess verða til sýnis
málverk, teikningar, skissur, myndbandsverk
og geisladiskur, og verk á hugmyndastigi.
Sunna segir verkin kallast vel á sem ein heild.
Ásta bætir við að á sýningunni sé að finna
úrval verka sem fara vel saman og njóta sín í
rýminu. „Síðan væri hægt að gera aðra álíka
stóra sýningu með verkum mínum sem eru
annars eðlis því þetta er heilmikið sem maður
á til,“ segir hún. „Maður reynir að hafa sam-
hljóm milli verka og svo getur komið á óvart
hvaða verk fara vel saman.“ Hún segir að
þurft hafi talsverða útsjónarsemi að raða
verkunum saman, enda verkin margvísleg.
„Þetta er öðruvísi en þegar maður setur upp
myndlistarsýningu þar sem allt er hengt á
nagla. Hér er heilmikið stúss að setja upp eitt
verk,“ segir Ásta. Sýningin ber yfirskriftina
Hjartsláttur en Sunna segir að margar hug-
myndir að titli sýningarinnar hafi komið fram.
„En vegna þess að Ásta vinnur í ýmsar áttir
og er að skoða ýmsar víddir tilverunnar, allt
frá litlum sandkornum upp í himingeiminn, þá
fannst henni við hæfi að velja titil sem er sam-
einandi á einhvern hátt. Hjartsláttur er eitt-
hvað sem allar lífverur á jörðinni eiga sameig-
inlegt. Hjartsláttur minnir líka á tifið í klukku
og tíminn er Ástu mjög hugleikinn og birtist á
svolítið lífrænan hátt í verkunum hennar,“
skýrir Sunna.
Létt og fjölbreytileg
„Það er alveg yndislegt að Nýlistasafnið
hafi boðist til þess halda einkasýningu yfir
verk mín því ég er Nýlistasafnskona,“ segir
Ásta. Hún er einn af stofnfélögum Nýlista-
safnsins og hefur tekið virkan þátt í starfsemi
safnsins frá upphafi. „Okkur í Nýló finnst sér-
staklega gaman að geta boðið upp á þessa
sýningu, sem er létt og fjölbreytileg. Hún er
mjög skemmtileg fyrir sögu safnsins og fyrir
Ástu sjálfa,“ segir sýningarstjórinn Sunna.
„Þegar maður er að vinna að listum gengur
þetta náttúrulega út á það að fólk sjái hvað
maður er að gera,“ segir myndlistarkonan
Ásta að lokum og bætir við: „Maður er partur
af þessu samfélagi og sýningin er tækifæri
okkar til þess að bjóða fólki að skoða og
skynja hluta af lífsverki myndlistarmanns.
Myndlist hefur mikil sálfræðileg og félagsleg
áhrif á fólk ef það opnar sig fyrir því sem það
sér. Allir eru velkomnir og það er engin regla
um hvernig þú átt að skilja listina.“
Hjartslátturinn sameinar
Sýningin Hjartsláttur verður opnuð í dag Yfirlit yfir verk Ástu Ólafsdóttur myndlistarkonu
Morgunblaðið/Eggert
Hjartsláttur „Ásta er mjög tilraunagjörn og hefur unnið í ýmsa miðla í gegnum tíðina.“
2020 árgerðina af GMC
færðu hjá IB.is
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
Einkasýningar tveggja
myndlistarmanna, Aniara Om-
ann og Maríu Rúnar Þránd-
ardóttur, verða opnaðar í dag í
Kling & Bang í Marshallhús-
inu og eru sýningarnar á dag-
skrá Listahátíðar í Reykjavík.
Aniara Omann er dönsk og
nefnist sýning hennar Porous
Tomorrow, eða Holóttur
morgundagur.
Omann vinnur jöfnum hönd-
um með skúlptúra, vídeó,
hljóð, texta og gjörninga í
rannsóknum sínum á mörkum
efnislegra hluta og á mörk-
unum á milli þeirra, segir í til-
kynningu, og nýtir sér aðferðir
leikmunagerðar og sækir inn-
blástur í fagurfræði vísinda-
skáldskaparins sem endur-
speglar svo sterklega ástand
mannkyns í samtímanum með
vísan til ímyndaðrar framtíðar
eða hliðarveruleika.
Omann vinnur með nið-
urbrjótanleg efni, tilbúna leik-
muni og tónlist úr kvikmynd-
um og sjónvarpi; hún setur hér
fram innsetningu sem ein-
kennist af sjálfbærum og
framtíðarkenndum efniviði,
skapar þannig hugleiðingu um
ástand vistkerfisins og ýjar að
mögulegri útgáfu af framtíð-
inni, segir í tilkynningu og að
Omann sé afar eftirtekt-
arverður danskur listamaður
sem búi og starfi í Glasgow.
Hún verður með lista-
mannaleiðsögn og spjall á
löngum fimmtudegi 27. ágúst
kl. 20.
Í samtali við tíðarandann
María Rún Þrándardóttir er
einn fulltrúa ungu kynslóð-
arinnar á Listahátíð í Reykjavík
í ár. Hún útskrifaðist úr mynd-
listardeild Listaháskóla Íslands
í fyrravor og á sýningu hennar í
Kling & Bang, sem nefnist
Hverfandi, birtast ný verk sem
hafa brýnt erindi, eins og því er
lýst í tilkynningu en sýningin er
jafnframt hennar fyrsta einka-
sýning í opinberu rými.
„Viðfangsefni Maríu eiga í
sterku samtali við tíðarandann
en bregða upp óvæntu og
áleitnu sjónarhorni á málefni á
borð við umhverfismál og sam-
band manns og náttúru, auk
þess sem verk hennar hafa oft-
ar en ekki skírskotun í fem-
ínisma. Tungumálið leikur einn-
ig stórt hlutverk í verkum
listakonunnar sem sækir í
brunn persónulegrar reynslu
við sköpun gjörninga og vídeó-
listar,“ segir í tilkynningu um
listsköpun Maríu.
Sýningarnar tvær standa yfir
til og með 27. september.
Porous Tomorrow og Hverfandi
Tvær einka-
sýningar í
Kling & Bang
Dönsk Aniara
Omann.
Íslensk María Rún
Þrándardóttir.
Leiðsögn um útisýn-
inguna Yfir Gullinbrú
fer fram á morgun,
sunnudag, kl. 16 en
leiðsögumenn verða
þær Eygló Harð-
ardóttir, Þórdís Alda
Sigurðardóttir og
Elísabet Bryn-
hildardóttir auk Birtu
Guðjónsdóttur sýning-
arstjóra.
Leiðsögnin nær yfir
þrjú af verkum útisýn-
ingarinnar sem er í
Grafarvogi og er sýn-
ingin sú þriðja af fimm
í aðdraganda 50 ára afmælis Myndhöggvarafélagsins í
Reykjavík.
Birta og Eygló taka á móti gestum við verk Eyglóar kl. 16
og verður þaðan haldið að verkum Þórdísar Öldu Sigurð-
ardóttur og Elísabetar Brynhildardóttur sem báðar segja frá
verkum sínum. Verk Eyglóar er á Geirsnefi og verður hist á
bílastæðinu vestan megin. Verk Þórdísar er staðsett við
Geldinganes og bílastæði við Kayakklúbbinn. Verk Elísabet-
ar er við sjóinn í Gorvík og eru bílastæði annars vegar við út-
skot frá Strandvegi en hins vegar er hægt að leggja inni í
hverfi við enda götunnar að Garðastöðum og ganga þaðan
eftir göngustíg niður að sjó.
Frekari upplýsingar má finna á vefslóðinni hjolid.is/is/
yfir-gullinbru.
Leiðsögn veitt um verk
á útisýningunni Yfir Gullinbrú
Sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir.