Morgunblaðið - 22.08.2020, Síða 22

Morgunblaðið - 22.08.2020, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Demókrata-flokkurinnbandaríski hefur formlega val- ið Joe Biden fyrr- verandi varaforseta til að vera fram- bjóðandi flokksins til forseta í nóvember. Hæpið er að segja að mikil spurn hafi verið eftir Bi- den en þrautseigja og ítrekuð framboð hans í forvali á síðustu áratugum dugðu að lokum. Val- ið á Biden stóð tæpt framan af í forvalinu, en óttinn við að Ber- nie Sanders kynni að sigra varð til þess að flokksforystan fylkti sér að baki Biden og ýtti honum alla leið. Bent hefur verið á að Biden standi ekki fyrir neitt sérstakt. Hann sé viðkunnanlegur maður en standi ekki föstum fótum þegar kemur að stefnumálum og hafi ítrekað á löngum ferli skipt um skoðun og standi nú gegn ýmsu sem hann barðist fyrir, jafnvel fyrir ekki svo mörgum misserum eða árum. En þó að Biden segi, eins og all- ir frambjóðendur gera, að hann standi fyrir ákveðna stefnu þá snýst kosningabarátta hans fyrst og fremst um að vera á móti núverandi forseta, Donald Trump. Þetta kann að vera skynsamleg leið enda á Trump marga gagnrýnendur og lætur oft frá sér fara ummæli, ekki síst á Twitter, sem mættu vera ósögð. Þessi sérkennilega að- ferð forsetans hefur þó skilað honum miklu og gæti gert það aftur. Það er varasamt að af- skrifa hana þó að hún veki oft furðu og jafnvel gremju. Þá kann að vera að Biden og stuðningsmenn hans – eða öllu heldur andstæðingar Trumps – gangi of langt í árásunum á for- setann. Eitt af því sem Trump var mjög legið á hálsi í ræð- unum í tengslum við útnefningu Bidens eru mistök hans í tengslum við kórónuveiru- faraldurinn. Í því sambandi halda demókratarnir því blákalt fram að Trump beri ábyrgð á þeim sem látist hafa úr faraldr- inum og gefa til kynna að á þeirra vakt hefði verið allt öðru- vísi að málum staðið. Meðal þeirra sem stilla þessu upp á þennan hátt eru bæði Barack Obama fyrrverandi forseti og Biden sjálfur. Í þessu sambandi hafa demó- kratar gjarnan nefnt hve vel hafi tekist til í tíð Obama og Bi- dens að hindra Ebólu-veiruna, en aðeins tveir hafi látist af hennar völdum árið 2014. Stað- reyndin er þó sú að ebóla olli litlu mannfalli á Vesturlöndum, enda smitast hún ekki nærri eins auðveldlega og hefðbundin flensa eða kórónuveira. Vegna þessarar áherslu demókrata er nú farið að benda á aðra pest sem kom upp í tíð Obama og Bidens og sýndi síður en svo traust tök, en það var H1N1-svínaflensan sem skók heiminn árin 2009 og 2010. Þessi svínaflensa barst til Bandaríkj- anna frá Mexíkó og olli miklum ótta, en skilaboð forsetans og varafor- setans voru óskýr. Obama hvatti til þess að fólk héldi ró sinni en Biden varaði við flug- ferðum og almennings- samgöngum. Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunin varaði við því að pestin ógnaði „öllu mannkyn- inu“ og sérfræðingar töldu að hún kynni að fara úr böndum þannig að spítalar réðu ekki við ástandið. Bandarísk stjórnvöld héldu sig við það að taka þessu af ró og lokuðu til dæmis ekki landa- mærunum við Mexíkó en lýstu yfir neyðarástandi þó að þau verðu litlu fé í baráttuna. Engu að síður lofuðu þau að láta bólu- setja 100 milljónir haustið 2009, en komu tölunni ekki upp í nema 11 milljónir. Áætlað var á þeim tíma að 22 milljónir hefðu smitast, 36 þúsund börn hefðu verið lögð inn á spítala og 540 börn hefðu látist, en svínaflens- an lagðist sérstaklega illa á börn, ólíkt kórónuveirunni. Til að setja þessar aðgerðir Obama og Bidens í samhengi má nefna að hér á landi var þetta tekið alvarlega og um 150 þúsund voru bólusettir, sem er ámóta og 150 milljónir í Banda- ríkjunum. Ýmsir demókratar, meðal annars starfsmannastjóri Bi- dens, viðurkenndu að stjórn- völd hefðu verið heppin að ekki fór verr og það hefði stafað af því að pestin reyndist ekki eins illvíg og óttast hefði verið. Starfsmannastjórinn sagði beinlínis að ef stjórnvöld hefðu ekki verið svo lánsöm sem raun varð á mætti ætla að pestin hefði getað orsakað mesta mannfall í sögu Bandaríkjanna. Kimberley A. Strassel, blaða- maður á The Wall Street Journ- al, fjallar um þetta og reiknar út að miðað við þann fjölda sem smitaðist af svínapestinni og þann fjölda sem nú hefur smit- ast og látist af kórónuveirunni, hefðu tvær milljónir manna lát- ist af svínapestinni hefði hún reynst álíka hættuleg. Vissulega er freistandi fyrir frambjóðandann Biden að ráð- ast á Trump fyrir að hafa staðið sig illa í baráttunni við kórónu- veiruna og auðvelt er að benda á að Bandaríkin hafi staðið sig verr en ríki sem eðlilegt er að bera þau saman við þó að hæpið sé að ætla að skella allri þeirri skuld á forsetann. En þetta get- ur verið varasamt þegar ferill Bidens í þessum efnum er ekki flekklausari en raun ber vitni. Þetta gæti þess vegna snúist í höndum hans, ekki síst ef veiran verður á hröðu undanhaldi þeg- ar nóvember nálgast. Biden á ekki farsælli feril í veiruvörnum en Trump. En Biden var heppnari.} Ræður veiran úrslitum? H ér áður fyrr voru réttindi veiks fólks fótum troðin og það sett í nauðungarvistun og jafnvel flutt hreppa á milli í ánauð við óvið- unandi aðstæður. En hvernig er staðan á þessum málum í dag í okkar ríka lýðræðisríki? Er verið að nauðung- arvista lamað fólk inni á hjúkrunarheimilum? Já, það erum við að gera og einnig að gera fjár- nám hjá einstaklingi, því hann getur ekki borg- að fyrir ólöglega vistunina. Já, það er verið að neyða hreyfihamlaðan einstakling til að vera á stofnun sem hann vill ekki vera á og þá einnig að gera fjárnám í hús- eign hans. Er hægt að ganga lengra fram í of- beldi gegn einum einstaklingi? Því miður er fjöldi dæma á undaförnum árum um svipaða meðferð á veiku fólki sem getur ekki varið sig og verður að lifa við svona ömurlegar aðstæður. Veikt fólk og hvað þá ungt eða miðaldra fólk sem á rétt á NPA-samningi á ekki að vista á hjúkrunarheimili sem eru fyrir 67 ára og eldri. Það má ekki útvíkka heimildir og brjóta mannréttindi á hreyfihömluðu fólki með nauðung- arvistun á hjúkrunarheimili bara til að spara hjá ríki og sveitarfélögum. Já, spara á kostnað þeirra sem ekki geta varið sig og það á sama tíma og það virðist vera til fullt af peningum til að takast á við COVID-19. Spurning er hvort þetta sé það sem koma skal og ríkið og sveitarfélög séu búin að finna breiðu bökin hjá hreyfihömluðum, öryrkjum og eldri borg- urum og hjá þeim eigi bara að spara vegna COVID-19? Aðgengi fatlaðs fólks og hreyfihamlaðs að almenningssamgöngum: Það var að koma svar við fyrirspurn minni um aðgengi hreyfihamlaðra að almennings- samgöngum á landsbyggðinni frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Svörin eru auðvit- að í þeim anda sem búast mátti við, um að það verði ekki í forgangi að hreyfihamlaðir geti nýtt sér þær samgöngur eins og þeim hentar, þegar þeim hentar. Nei, því það verða bara fjórir vagnar með lyftubúnaði fyrir hjólastóla komnir í notkun í síðasta lagi eftir rúmt ár. Já, bara einn fyrir hvern landsfjórðung eftir eitt ár í fyrsta lagi og þeir sem vilja nota þá verða að panta tíma í þeim með 24 klukkustunda fyrirvara. Já, það er gert ráð fyrir að þeir sem hyggjast nota þjónustu þessara „sérútbúnu vagna“ til- kynni það með 24 klst. fyrirvara. Með þeim hætti verði tryggt að „sérútbúinn vagn“ verði til taks þar sem hans verður þörf hverju sinni. Þannig verði tryggt að sá vagn verði hluti af þeirri áætlun sem starfrækt er. Já, það á ekki að sjá til þess að allir „almenningsvagnar“ séu fyrir alla, heldur eiga fatlaðir að fá far með sér- útbúnum vagni. Hvers vegna eru ekki allir almennings- vagnar útbúnir til þess að ferja alla sem vilja fá far með þeim, því ef svo er ekki þá eru þeir ekki almennings- vagnar, heldur sérútbúnir vagnar – fyrir hverja þá? Hina heilbrigðu? Gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Krist- insson Pistill Fjárnám og nauðungarvistun Þingflokksformaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fram undan er hefðbundinnhaustleiðangur til mælingaá stærð loðnustofnsins.Eftir tvö ár án loðnu- vertíðar eru vonir bundnar við að nægilegt magn finnist til að staðfesta eða auka þann upphafskvóta sem Al- þjóðahafrannsóknaráðið, ICES, gaf út með bráðabirgðaráðgjöf á síðasta ári fyrir vertíðina í ársbyrjun 2021. Bergmálsmælingar á loðnu í haust verða gerðar í samvinnu Hafrann- sóknastofnunar og grænlenskrar systurstofnunar eins og síðustu ár. Grænlendingar hafa leigt norska skipið Eros í verkefnið eins og í fyrra. Leiðangur skipsins hefst 7. sept- ember og verður fólk frá Hafrann- sóknastofnun um borð. Rann- sóknaskipið Árni Friðriksson heldur síðan af stað 15. september. Verkaskiptingin er þannig að Eros mælir á suðursvæðinu norður með landgrunni Austur-Grænlands í átt að Vestfjarðamiðum, en Árni tekur norð- urhluta Vestfjarðamiða, norður með Grænlandi og allt austur að Jan Ma- yen. Reiknað er með að mælingum skipanna ljúki um 5. október. Síðustu ár hefur útbreiðsla loðnunnar að hausti verið vestlægari en áður og að mestum hluta í grænlenskri lögsögu. Fannst á litlu svæði Í fyrrahaust fannst megnið af ung- loðnu, sem myndar veiðistofninn í vetur, á tiltölulega litlu svæði vestast og sunnan til á rannsóknasvæðinu. Þá mældust 83 milljarðar einstaklinga eða 608 þúsund tonn af ókynþroska loðnu, en samkvæmt aflareglu frá 2015 þarf yfir 50 milljarða til að mælt sé með upphafsaflamarki. Í kjölfarið voru gögn frá Hafró lögð fyrir ICES, sem í lok nóvember gaf út upphafs- aflamark upp á tæp 170 þúsund tonn og hafði þá verið tekið tillit til var- úðarnálgunar. Að loknum leiðangrinum í fyrra- haust kom fram í Morgunblaðinu að bjartsýni ríkti um loðnuvertíð fyrstu mánuði ársins 2021. Jafnframt að mikið ætti eftir að gerast í lífi loðn- unnar, sem er skammlífur fiskur, frá lokum mælinga fram að vertíð 14 mánuðum síðar. Heildarloðnuafl i við Ísland frá 1970 Þús. tonn 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 Heimild: Hafrannsóknastofnun Engar loðnuveiðar 2019 og 2020 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 Upphafsafl amark 2021 er 169.520 tonn Vonir bundnar við loðnumælingar í haust Meginhrygning loðnunnar er við sunnan- og vestanvert landið í mars og apríl. Síðustu ár hefur hrygning aukist við landið norð- anvert og staðið allt fram í júlí. Ekki liggur fyrir hversu stór hluti stofnsins hefur hrygnt fyrir norð- an. Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis hjá Hafrannsóknastofnun, segir að í vor hafi verið gerð tilraun til að bergmálsmæla og taka sýni af loðnu á handfærabáti í Þistilfirði og víðar við Norðausturland til að reyna að fylgjast með hrygn- ingu á þeim slóðum. Þetta verkefni hafi verið tak- markað, en eigi að síður hafi það lofað góðu þannig að það verði útfært frekar næsta sumar og þá verði fleiri smábátar nýttir í þessar rannsóknir við Norður- land. Styrkur hefði fengist í verk- efnið frá sjávarútvegsráðuneyt- inu. Færeyjaloðnan rannsökuð Í vor varð vart við loðnu á nokkr- um stöðum við Færeyjar, en slíkt mun ekki hafa gerst áður. Ekki er talið að mikið magn hafi verið á ferðinni, en það liggur þó ekki fyrir. Líklegast er talið að um loðnu úr norðlægri hrygningu við Ísland hafi verið að ræða. Guðmundur segir að vefjasýni úr Færeyjaloðnunni hafi verið send til erfðarannsókna í Noregi, en þar er í gangi verkefni um að- greiningu loðnustofna. Niður- stöður liggja ekki fyrir. Smábátar við rannsóknir VAXANDI HRYGNING VIÐ NORÐURLAND Morgunblaðið/Sigurður Bogi. Rannsóknir Árni Friðriksson RE.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.