Morgunblaðið - 22.08.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.08.2020, Qupperneq 32
• Embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum laust til umsóknar Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi, þ.e. Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum, Garði, Sandgerði og á Keflavíkurflugvelli. Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Hjá embættinu starfa um 170 manns. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur annars vegar á höndum stjórn almennrar löggæslu innan umdæmisins og fer hins vegar með stjórn og framkvæmd landamæraeftirlits í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, auk þess að sinna umfangsmiklu alþjóðasamstarfi. Embættið á í nánu samstarfi við tollayfirvöld vegna löggæsluverkefna í flugstöðinni og einnig Útlendingastofnun í tengslum við mál sem upp koma á landamærum í málefnum útlendinga. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Aðrar hæfniskröfur eru: • Góð þekking og yfirsýn á verkefnum lögreglunnar æskileg • Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg • Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg • Reynsla af alþjóðlegu samstarfi kostur • Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. nóvember 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra fer eftir ákvörðun kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri í síma 545 9000. Umsóknarfrestur er til og með 14. September 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, upplýsingar um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningarbréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni. Í umsókn skulu enn fremur koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lögreglustjóra. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.