Morgunblaðið - 22.08.2020, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 33
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með
30. ágúst 2020. Frekari upplýsingar er að
finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security
Guard. The closing date for this postion is
August 30, 2020. Application instructions
and further information can be found on
the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA)
Embætti lögreglustjóra
í Vestmannaeyjum
laust til umsóknar
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Hann annast daglega stjórn
og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Góð þekking og yfirsýn á verkefnum lögreglunnar æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,
nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. nóvember 2020. Um laun og starfskjör
lögreglustjóra fer eftir ákvörðun kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri í síma 545 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að fela nefnd að fara
yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum
umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun, 3) reynslu af
lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni
og sjálfstæði, 6) aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem
máli skipta fyrir störf lögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum og upplýsingar um
umsagnaraðila.
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Ert þú
raforku-
verkfræðingur
Við hjá Norconsult leitum að
rafmagnsverkfræðingum í
öfluga raforkuteymið okkar.
Helstu kostir:
• Þekking á sviði háspennukerfa, dreifikerfa og liðaverndar
• Reynsla af hönnun tengivirkja eða annarra flutningsmannvirkja
• Reynsla af kerfisathugunum og líkanagerð
• Reynsla af forritun og gagnagrunnum
• Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu, miðla henni og leysa
krefjandi verkefni víða um heim
• Gott vald á einu Norðurlandamáli er kostur
Norconsult ehf er í eigu norska ráðgjafafyrirtækisins Norconsult AS.
Hjá Norconsult starfa um 4.800 starfsmenn, þar af 400 á orkusviði.
Norconsult AS er með starfstöðvar víða um heim, frá Kirkenes í Norður-
Noregi til Auckland á Nýja Sjálandi. Fyrirtækið vinnur að úrlausn spennandi
verkefna á öllum spennustigum innanlands og erlendis í samvinnu við
viðskiptavini og félög innan samsteypunnar. boði eru ölbreytt og
áhugaverð verkefni sem spanna allt frá hönnun raforkuutningsmannvirkja
til hugbúnaðarþróunar.
Norconsult ehf á Íslandi er rótgróið fyrirtæki þar sem starfsmenn vinna
saman í sterkri liðsheild og því er þetta einstakt tækifæri fyrir réttan aðila
til að starfa hjá fyrirtæki á alþjóðlegum vettvangi.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Páll Hauksson: bjarni.hauksson@norconsult.com
eða í síma + 45 25 40 74 28.
Umsóknir sendist á Birnu Eggertsdóttur: birna.eggertsdottir@norconsult.com
Tekið verður á móti umsóknum til 14. september nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.